Leita í fréttum mbl.is

Fuglategundin tortolian kondor

fuglÞað þýðir ekkert fyrir Frosta að segjast að hann hefði kanski átt að vita það. Hann átti að vita. Og hann vissi. En því miður fyrir Frosta þá er hann húskarl gömlu Framsóknarmaddömunnar og þar á bæ tíðkast mjög að bera fyrir sig minnisleysi þegar eitthvað óþægilegt kemur uppá. Það er ekki nema von að fuglalífið yfir Framsóknarfjósinu hafi dafnað einkar vel hin síðari ár, einkum hræfuglalífið. Nú hefir hrægammategundin tortolian kondor gert sér lítið fyrir og verpt á þaki Framsóknarfjóssins og sést þar ei lengur til sólar fyrir flögri þessara fugla né heyrist mannsins mál fyrir gargi unganna á þakinu. Vonast góðgjarnir menn til að brátt verði gefið út skotveiðileyfi á þessi illyrmi.

Ekki er fyrir að synja að þjóðin öll bíður í ofvæni eftir næsta framsóknarpokarassi sem hefði kanski átt að vita að hann átti kröfu á einhvern föllnu bankanna. Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hefir frá Hruni haldið utanum kröfur sinna manna af stakri leynd og jafnframt borið æti í fuglategundina tortolian kondor án þess að nokkur yrði þess var nema innvígðir í Framsóknarfjósinu. Það er því réttmætt að spyrja hvort ekki sé tilhlýðilegt að gefa líka út skotleyfi á Kolbein.

Og með því að böndin berast mjök at Framsóknarfjósinu ok gömlu Maddömunni hefir eitt og annað flögrað að stöku landsmanni. Þegar einstaklingur verður fyrir því að fá bakteríusýkingur er honum gjarnan gefið pensilín eða súlfa til að forða því að sjúklingurinn drepist og fari kanski til Andskotans. Á sama hátt hugsa allmargir á þann veg, að framsóknarmennska sé einhverskonar bakreríu- eða vírussjúkdómur sem á dugi aungin vettlingatök við ef takast á að koma henni fyrir kattarnef. Í því sambandi er áhrifaríkast talið að sprengja Framsóknarfjósið ásamt gömlu Maddömunni, húskörlum og griðkonum í loft upp með kjarnorkusprengju því dynamit og þessháttar púðurkerlingar vinni trauðla á annarri eins óværu, forynju og skrímsli og gamla Framsóknarmaddaman svo sannarlega er.


mbl.is „Ég hefði kannski átt að vita það“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband