Leita í fréttum mbl.is

Að rífa sýslumann í tættlur.

Það er dálítið umhugsunarefni, að reiði maðurinn sem var fullur, hafi haft hug á að láta rakka sína rífa umræddann sýslumann í tættlur. Venjulega nota morðingjar byssu eða hníf við iðju sína, en í einstaka tilfellum bandspotta eða kodda. En reiði maðurinn sem var fullur vildi fara aðra og fáfarnari leið að takmarki sínu. En betur fer fór ráðabrugg hans út um þúfur svo hlálega, að nú situr hann uppi sem eitt ómerkilegt skítseyði með 30 daga skilorðsbundið fangelsi á rassgatinu.

Satt að segja væri þessum hlandaula mátulegt að hljóta sömu örlög og Bretschneider leynilögreglumaður, sem étinn var af sínum eigin hundum.


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir að hóta sýslumanni lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband