Leita í fréttum mbl.is

Frjáshyggjumaður rænir gamla konu í Vonarstræti.

Það má ganga að því vísu, að náunginn sem rændi veskinu af gömlu konunni sé grjótharður sjálfstæðisflokksmaður af frjálshyggjuskólanum. Hann er búinn að horfa upp á trúbræður sína í pólitíkinni fara ránshendi um sjó og land síðustu 15 árin og orðinn sannfærður um að ránskapur sé af hinu góða, gott ef ekki guðlegrar artar. Og auðvitað hefur manngarmurinn vilja taka þátt í frjálhyggjudýrðarverkunum og talið upplagt að fylgja sinni pólitísku sannfæringu með því að ræna aldraða konu. Svo er þessi óbótamaður vís með að hafa lagst á knén á eftir við rúmstokkinn hjá sér og þakkað Guði fyrir góðan feng og trúlega hefur hann í leiðinni beðið Drottinn Alsherjar um að blessa og varðveita Georg Búsh, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson.  
mbl.is Eldri kona rænd í Vonarstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband