Leita í fréttum mbl.is

Krataeðlið og Íhaldið

RassakissÞeir eru óneitanlega fjári gamansamir blaðaljósmyndararnir atarna að láta durginn Gjeir Haaarde opna hina árlegu ljósmyndasýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Bæði er að Gjeir exitérast svo glimrandi vel á ljósmyndum og einnig hitt að karláftin slagar hátt uppí að vera eins sofandalegur og sjálfur Halldór Ásgrímsson kvótamagister.

Og þó að hr. Haaarde ljómyndist alltaf óstjónlega vel, þá er samt ein mynd af hönum sem slær allar aðrar út, en það er myndin sem tekin var af því þegar hann, af ástúðlegri manngæsku sinni, kyssti frú Ingibörgu Sólrúnu beint á munninn á hlaðinu við Þingvallabæinn. Það var óborganleg myndveisla.

Nú lái ég svo sem Gjeir karlanganum ekki þó hann heilsi góðum gesti og þarflegum að gömlum og góðum sveitasið. Hitt er blátt áfram tilefni til stórhlátra, að forstýriskona Samfylkingarinnar skuli purkunarlaut láta mynda sig í kossaflensi við höfuðpáfa stjórnmálaarms auðvaldsins á Íslandi. En auðvitað var samt ekki við öðru að búast; krataeðlið er samt við sig og kemur ævinlega fram í skefjalausu daðri og flaðri við húsbændurna á Höfubólinu.

Það ætti öllum að vera ljóst, að Samfylkingin var ekki stofnuð til að sameina ,,vinstrifólk" á Íslandi. Sá kjaftavaðall var bara yfirskin og fals, svosem komið hefur í ljós. Samfylkingin var náttúrlega sett á laggirnar til að samfylkja með Sjálfstæðisflokknum. En auðvitað er svona háttalag óheiðarlegt og ruddafengið. Ég vorkenni t.d. raunverulegum vinstrimönnum sem hafa fram að þessu látið glepjast af ,,samfylkingarhugsjóninni" og gengið erinda þessa auðvirðilega stjórnmálaflokks. Þeim hrekklausu og hjartahreinu sálum er hér með ráðlagt að yfirgefa þann frjálshyggjuauðvalsúlf í félagshyggjugæru sem Samfylkingin er.

Það er aldeilis sameiningarflokkur ,,vinstriafla" sem á sér þá hugsjón mesta að kyssa auðvaldið á rassinn hvenær sem færi gefst! Slíkt minnir dálítið á nornirnar og Erkidjöfulinn þegar nornaþing eru haldin, þá heilsa nornirnar hans hátign með því að smella dulitlum kossi á afturenda hans.   


mbl.is Blaðaljósmyndarar sýna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert J. Eiríksson

Hvað kemur svona "tuð" um stjórnmál því við að blaðaljósmyndarar sem eru í raun margir hverjir listamenn á sínu sviði opni sýningu á myndum sínum?

Ættum við ekki frekar að gleðjast yfir því að þeir sýni okkur almúganum afraksturinn í formi stærri mynda og betri sýnar á myndir ársins en birtust á síðum blaðanna á liðnu ári ??

Og þótt þér sé illa við Geir Haarde (ég virði alveg skoðanir þínar þar), væri þá ekki almenn kurteisi að skrifa nafnið hans rétt, hvert svosem lýsingarorðið fyrir framan eða aftan nafnið hans er frá þér.

Kv EJE

Eggert J. Eiríksson, 23.2.2008 kl. 14:44

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þú ert svo mikið krútt Jóhannes! You're A Cutie 





Ingibjörg Friðriksdóttir, 23.2.2008 kl. 15:00

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jæja, Eggert minn J., þú lætur svona já. Þú ættir heldur að taka hana Ingibjörgu hérna bloggvinkonu mína hér fyrir ofan til fyrirmyndar þegar þú ávarpar mig.

Svo þetta með hann Gjeir Haaarde. Frá mínum bæjardyrum er nafnið Geir Haarde helst til snubbótt fyrir mann af hans standi svo ég ákvað að gefa því meiri dýpt og myndarlegri áferð með því að rita það eins og ég geri: Gjeir Haaarde. Í þessu stafsetningartilbrigði fékk ég innblástur frá þeim æruverðuga presti og prófasti til Borgarfjarðarþinga, Gjeir Waage, en hann skrifar sig ávalt Gjeir - en ekki Geir. Hinsvegar er prófasturinn í Reykholti enn ekki kominn lengra á þróunarbrautinn að hann sé farinn að skrifa sig Waaage, en ég efast ekki um að hann byrji fljótlega á því.

Við skulum því vera sammála um, Eiríkur minn, að miklum embættismönnum fer mun betur að heita Gjeir Waaage og Gjeir Haaarde en Geir Waage og Geir Haadre.

Jóhannes Ragnarsson, 23.2.2008 kl. 15:26

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Andskotinn. Ég gleymdi að svara Eiríki J. hvað ljósmyndasýningin atarna komi hr. Haaarde og stjórnmálatuði við.

Svo er mál með vexti, Eiríkur minn, að vinur okkar, Gjeir Haaarde opnaði ljósmyndasýninguna formlega. Þess utan hangir myndin góða af hinu ástúðlega augnabliki, þegar Gjeir og frú IS. Gísladóttir kysstust beint á munninn á þingvallahlaðinu ,uppi á vegg á margnefndri sýningu. 

Jóhannes Ragnarsson, 23.2.2008 kl. 15:36

5 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er naumast

Hafðu það ævinlega sem best Jóhannes.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 23.2.2008 kl. 17:07

6 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Þetta er bara góð og nokkuð raunsönn færsla.

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 23.2.2008 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband