Leita í fréttum mbl.is

Óráðshjal flórgoðans í Framsóknarfjósinu

fullur2Það þarf varla að gera mikið veður út af óráðshjali fjósakarla gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem liggur ósjálfbjarga og dauðvona í kör sinni og bíður eftir næsta morfínskammti.

Nær hefði fjósakörlunum verið að lauma sér á einhverja rúmgóða krá og fá sér ærlega í staupinu og gráta heilsuleysi maddömunnar og búa sig með því undir að greftra hana innan skamms í kyrrþey. 


mbl.is Þarf að breyta stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Honum er nú bara ekki sjálfrátt "fornmanninum" og ekki skemmir fyrir honum að fá annan álíka við hlið sér hérna á Suðurlandinu...afar sönn lýsing á standinu þarna

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.5.2008 kl. 11:32

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þessi við hliðina fornmanninum er algjört metfé. Og báðir tveir taka sig aldeilis vel út með Árna Matt og Árna Johnsen, að ógleymdum stjörnusýslumanninum Stones.

Jóhannes Ragnarsson, 4.5.2008 kl. 20:14

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Metfé er rétta orðið Jóhannes, metfé er hann og Stones í "teymið" með þeim gerir þetta vígi heimskunnar algerlega óvinnandi...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.5.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Sjúbb!  Hvers eiga Sunnlendingar að gjalda?  Jú, sjáldan er ein báran stök!  Og bætti um betur ............!  Hvað í ósköpunum gengur á þarna á láglendinu?

Auðun Gíslason, 5.5.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband