Leita í fréttum mbl.is

Skrípalæti glanspíunnar

Mikið óskaplega er ég orðinn leiður á pólitískum loddurum eins og Þorgerði Katrínu. Hverju ætli svona háborgaraleg glanspía, hesthúseigandi, KB-bankaunnandi og kínafari geti bjargað eftir að hafa tekið virkan þátt í keyra efnahag þjóðarinnar, á rennireið frjálshyggjunnar, gjörsamlega í klessu? Svona lið gerir mest gagn með því að láta sig hverfa af sjónarsviðinu. Og víst er um það að orðin,,veruleikafirring" og ,,hræsni" hafa öðlast mun þrungnari merkingu eftir að söfnuður flottræfla og frjálshyggjubesefa tók öll völd á Íslandi.

Mér leiðast skrípalæti þessa innantóma fólks meir en nokkur orð fá lýst. Og er trúlega ekki einn um það.


mbl.is Tilbúin að endurskoða afstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Svona afturhaldssjónarmið eru ekki vænleg fyrir íslenska þjóð. Það er sjálfsagt að skoða hlutina,án þess að gefa sér fyrirfram ákveðna niðurstöðu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.11.2008 kl. 21:28

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Eru það afturhaldssjónarmið, Gunar Th., að vera kominn með leið á skrípalátum pólitískra loddara?

Jóhannes Ragnarsson, 2.11.2008 kl. 21:33

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þú ert alltaf svo pirraður Jóhannnes... gerir enginn vel

Jón Ingi Cæsarsson, 2.11.2008 kl. 22:28

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Þorgerður Katrín var flott að venju og sagði það sem segja þurfti!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 2.11.2008 kl. 22:39

5 Smámynd: Björn Birgisson

Nú er allt að verða vitlaust í Sjálfstæðisflokknum, alvarlegur klofningur í uppsiglingu og kjósendur flokksins að snúa sér annað. Er nema von að svo fari?

Björn Birgisson, 2.11.2008 kl. 22:48

6 Smámynd: Anna Guðný

Já Jón Ingi, hann er stundum pirraður, enda nota ég það á manninn minn þegar hann er pirraður. Hann er nefninlega líka Ólsari.

Ég ætla mér að óska þess og vona að Sjálfstæðismenn í brúnni komi nú fram hver á fætur öðrum og upplýsi okkur um  skoðanir þeirra óháð því hvort það deili þeim skoðunum með GH og co.

Hafðu það gott

Anna Guðný , 2.11.2008 kl. 22:55

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Það er mikið af sukkinu búið að laxera duglega en ég held að þetta sé bara byrjunin. Það þarf að sótthreinsa allt stjórnkerfið og  embættismannakerfið og koma á heilbrigðu kerfi með miklu eftirliti og að það séu viðurlög við að svíkja þjóðina á ábyrgðarlausan hátt eins og þetta er búið að ganga undanfarnar vikur og  mánuði.

Það var farið yfir þetta allt meira og minna í Silfri Egils í dag, sunnudaginn 2 nóv.  Í reynd var verið að flengja  ríkisstjórnina og þá sem hafa staðið að öllu sukkinu og eftirlitinu með  því. Hvar hefur ÞKG verið? Jú, í Kína.

Þetta hefur verið snarblind sukkveisla sem var vernduð af íslenskum yfirvöldum á kostnað almennings á Íslandi.  Nokkrar Kínaferðir gerðu þetta ekkert verra, ekki að ráði. Það var ekki hægt að sökkva þessu lengra og því var upplagt að fara nokkrar Kínaferðir.

Sigurður Sigurðsson, 3.11.2008 kl. 00:24

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Jóhannes.  Þetta er manneskjan sem fullyrti í sjónvarpinu að Sjávarútvegurinn væri enn að megin stoðum samféalgsins og stæði traustum fótum.  Hún veit sennilega ekki, að skuldir útgerðanna og sjávargreifanna er í dag 5oo milljarðar, voru fyrir hálfu ári um 380 milljarðar, svo þetta fer hríðversnandi.  Illa upplýstur hrokagikkur er þessi kona að mínu mati.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.11.2008 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband