Leita í fréttum mbl.is

Nú ætti atvinnuspikbræðslufólk að venda sínu kvæði í kross

kapital4Þær eru geðugar brunavísurnar hennar frú Johnson, sem hefir lifibrauð af því að fara með slíkan kveðskap yfrir feitlögnum konum gegn gjaldi en á alls áragurs. Ég man eftir valdsmannslegri kerlingu, furðudigurri sem dúaði öll eins og vatnsblaðra þegar hún hreyfði sig hið minnsta. Þessi errilegi holdakvenmaður hefur í mörg ár stundað rándýrar brunaæfingar hjá heilsubótarfólki eins og frú Johnson með þeim undraverðu afleiðingum að hún hefur einungis bætt fleiri og fleiri kilógrömmum utaná sinn hlandsprengjulega kropp. Það síðasta sem ég frétti af þessari ágætu konu var að hún kæmist ekki lengur ínn í aðrar bifreiðar en vörubíla, tröllaukna trailera með vélum sem hæglega gætu drifið áfram þúsund tonna botnvörpunga.

Mér þætti þjóðráð hjá frú Johnson og öðru atvinnuspikbræðslufólki að venda nú kvæði sínu í kross, kveðja fitubrunann og snúa sér þess í stað af alefli að hlandbrunanum. Á sviði hlandbrunans er mikið verk að vinna fyrir þá sem vilja auðgast á heilsufari samborgara sinna. Það er nefnilega ekkert smáræði af andstyggilega lyktandi vökva sem stjórnmálamenn, útrásrarbófar, valdsmenn allrahanda og embættismannalýður hefur pissað framan í alþýðu þessa lands síðustu árin. 


mbl.is Svona áttu að fara að því að grennast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband