Leita í fréttum mbl.is

Þá tók Drotin Allsherjar í taumana

demantFyrst Hera hafði ekki vit á að segja sig úr keppninni þá tók Drotin Allsherjar í taumana og lét hana falla úr keppni með fyrstu ferð. Það fer enginn með fullu viti út að skemmta sér með blóðgrimmum barnamorðingja, eða er það nokkuð? Og að taka þátt í skemmtun evrópskra sjónvarpsstöðva með uppvakningum, sem ekki eru einusinni í Evrópu, er afar kúnstugt, að ekki sé sagt fáránlegt. Hvur fjandinn ætli það sé sem knýr Íslending til að taka þátt í þessháttar ófögnuði?

Að vísu sátu sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, hönd í hönd og horfðu á Heru af fullkominni lotningu og leyfðu sér að öfunda hana af gullkjólnum og þessum áleitnu sögusögnum að undir gullkjólnum hafa Hera verið í demantsnærbuxum. Og Kolbeinn tautaði útúr sér milli samanbitinna tannanna, að ,,djöfull mundi hún frú Ingveldur vera skæsleg í demantsnærbuxum og dragast nærri því að vera hálfpartinn sexí í soleiðis múndéríngu".

Í kveld hringdi svo Máría Borgargagn algjörlega ær í sína bestu vinkonu, frú Ingveldi, og hótaði henni og koma og brytja hana niður eins og rolluskrokk sem verðlaun fyrir drápuna sem frú Ingveldur orkti í háðungarskyni til hennar á vissum tímamótum í lífi Borgargagnsins. Því sannleikanum verður hver sárreiðastur. Og það er nú svo. Að afloknu símtali þeirra vinkvennanna, tók frú Ingveldur fram haglabyssuna og fyllti hana með skotum og bjó sig þannig til varnar undir hugsanlega árás Borgargagnsins. Enn er allt með kyrrum kjörum, þegar þetta er ritað, á og við heimili frú Ingveldar og Kolbeins, hvað sem kann að gerast þegar líður á nóttina.


mbl.is Hera komst ekki áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband