Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, mars 2008

Skapvond eins og Hanna Birna?

konaNú er semsé komiđ uppúr dúrnum ađ kerlingin Pelosi ţjáist af fúlli skapvonsku, sem brýst úr í heimsku og illkvittni, auk siđgćđis í aumari kantinum. Ţetta sýnir, svo ekki verđur um villst, ađ frú Pelosi er alvöru stjónmálakvendi og gćti, sökum eđlislćgra eiginleika sinna, setiđ í ríkisstjórn Íslands.

Og ekki má heldur gleyma, ađ Reykvíkingar geta státađ af skemmtilega skapvondum forseta borgarstjórnar, sem er einkar ljúft ađ setja í brýrnar og rífa sig ofaní rassgat yfir hverjum pólitískum tittlingaskít sem á fjörurnar rekur.  


mbl.is Segja Pelosi skapvonda
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ruddalegur páskabođskapur

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Ţokkalegur páskabođskapur sem Sunnudagstelegrafiđ á Bretlandi fćrir oss íslendingum ađ ţessu sinni: Sem sé, ađ land vort sé baneitrađur myglusveppur, sem einungis sé á fćri ţrautţjálfađra eiturefnasérfrćđinga ađ međhöndla. Ţá gefur ţetta ruddalega breska klámblađ í skyn, ađ útrásarsnillar vorir séu ígildi galtómra jakkafata, en umfram allt vitlausari en allt sem vitlaust er.

Ţá er haft eftir ţessu sama Sunnudagstelegrafi, ađ stjórnvöld vor berjist um á hćl og hnakka viđ ađ koma í veg fyrir ađ sjálf Ţjóđarskútan farist ekki međ manni og mús á kólguköldu útsćvi fjármálalífsins. Ţarna fer Telegrafiđ auđvitađ međ rangt mál. Stjórnvöld vor tóku fyrir löngu stýriđ af Ţjóđarskútunni međ ţeim afleiđingum ađ hún hefur mátt hrekjast stjórnlaus undan válegum vindum einkavćđingar, grćđgi og flottrćfilsháttar.

Í dag, Páskadag 2008, á íslenska ríkisstjórnin ekki um annađ ađ velja en ađ segja drulluskítablađinu SundayTelegraph, ađ fara til helvítis og hóta Stór-Bretanum í leiđinni ađ gera loftárásir á parlament ţeirra og drottningu. 


mbl.is Eitrađur vogunarsjóđur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Framagosar og nautgripir

Árni ŢórSíđustu daga hef ég rekist á nokkrar kvartanir bloggara yfir ţví ađ alţingismađurinn Árni Ţór Sigurđsson hafi lokađ athugasemdakerfi bloggsíđu sinnar á ţá. Ţetta varđ til ţess ađ ég lagđi lykkju á leiđ mína og kannađi hvernig ađgangi mínum ađ athugasemdakerfi ţingmannsins vćri háttađ. Og viti menn: Ţingmađurinn var búinn ađ loka málgagni sínu, vel og vandlega, fyrir athugasemdum frá flokksbróđur sínum Jóhannesi Ragnarssyni verkamanni í Ólafsvík!

Ţađ var og ...

Í sjálfu sér kemur ţađ mér ekki sérlega mikiđ á óvart, ađ framagosinn og blókin Árni Ţór hafi lokađ á mig, slíkur framsóknarmađur sem hann er. En fyrst og fremst ţykja mér varnarađgerđir hans gegn mér og fleirum stórhlćgilegar. Ađ sönnu er Árni Ţór lítilfjörlegur stjórnmálamađur og ekki vex vegur hans međ ţví ađ ýta óţćgilegri gagnrýni frá sér međ einhverskonar ,,haltukjafti" ađferđ á blogginu. Haltukjafti ađferđin hefur reyndar lengi veriđ stunduđ af liđinu í flokkseigendafélagi VG, (en ţetta er einmitt sama liđiđ og stundađi flokkseigendastörf í Alţýđubandalaginu sáluga). Og ţar sem Árni Ţór gegnir stöđu aukagepils í flokkseigendafélaginu virđir hann ađ sjálfsögđu haltukjaftiregluna samviskusamlega.

En hvađa erindi á Árni ţessi Ţór yfirleitt í ţeim flokki, sem á hátíđarstundum, kveđst standa lengst allra flokka til vinstri í íslenskri Pólitík? Auđvitađ ekki neitt, nema ef vera skildi ađ svala hégómlegri og barnalegri framagirnd sinni; ađrar hugsjónir á ţessi mađur ekki svo ég viti. Á međan ég tók ţátt í ađ stofna VG var Árni Ţór ađ bögglast viđ ađ pota sjálfum sér áfram innan Samfylkingarinnar, en ţví miđur međ litlum sem engum árangri. Ţegar útséđ var, ađ Samfylkingin hefđi engan áhuga á hinni litlausu framsóknarblók, Árna Ţór Sigurđssyni, sneri hann sér ađ VG, eđa öllu heldur ađ flokkseigendaelítu VG, sem illu heilli dró hann um borđ til sín međ fyrirheitum um pólitískt framhaldslíf.

Nú kunna einhverjir ađ álykta sem svo, og ţađ međ réttu, ađ lofgrein um Árna Ţór Sigurđsson alţingismann VG eigi ekki heima sem viđhengi viđ frétt mbl.is um einhverjar kýr í Kanada. Ţví er til ađ svara, ađ umfjöllun um pólitíska spjátrunga og framagosa rímar, ađ mínu mati, ágćtlega viđ fréttir af nautgripum   


mbl.is Sluppu á leiđ á sláturhúsiđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sundríđingar eru glćfraspil

kapital5Ójá, ég hefi nú lengi haldiđ ţví fram ađ ţađ vćri vafasamt ađ sundríđa mótorhjóli. En knapinn var sannarlega stálheppinn ađ missa ekki meira undan sér en hjóliđ ţegar hann ţeysti útí Klifandaós. Ţessháttar kom einu sinni fyrir kunningja minn, Jón Guđbrandsson ađ nafni. Hann ćtlađi ađ stytta sér leiđ međ ţví ađ klofa yfir óvariđ drifskaft á einhverju landbúnađartćki, en var svo óheppinn ađ drifskaftiđ, sem var á fullri ferđ, náđi í klobbann á honum og sneiddi karlmennskustolt hans af á svipstundu. Ţetta atvik varđ til ţess ađ Jón kunningi minn neyddist til ađ breyta nafni sínu í Jóna Guđbrandsdóttir. Ţví segji ég ţađ, ađ ţegar menn á annađ borđ byrja ađ missa eitthvađ undan sér er mikil hćtta á ađ ţeir missi allt undan sér. Ţess vegna legg ég til, ađ hinn lánsami ökumađur torfćrumótorhjólsins, sem fréttin segir frá, fái sér alvöru hross nćst ţegar honum langar til ađ sundríđa árósa viđ brimasama strönd.
mbl.is Mótorhjól sogađist á haf út
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Frómleika frá sér kasta

kapital8Undirrót allra lasta
ágirndin kölluđ er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarnir,
sem freklega elska féđ,
auđi međ okri safna,
andlegri blessun hafna,
en setja sál í veđ.
(Hallgrímur Pétursson, 16 passíusálmur)

mbl.is Passíusálmarnir lesnir á Siglufirđi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Krossfestingar á Íslandi

RćningiÁ međan filippseyingar krossfesta hvern annan unnvörpum, fyrir drýgđar syndir síđasta árs, á föstudaginn langa, látum vér íslendingar oss nćgja ađ hengja krossa á embćttismenn og uppskafninga á nýársdag og 17 júní.

Nćr vćri oss ađ snúa dćminu omvent og negla einn og einn rćningja úr fjármálageiranum uppá kross öđrum skoffínum til varnađar. Til hátíđarbrigđa vćri upplagt ađ hinir útvöldu krosshangar hefđu Stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorđu nćlda í barminn á međan ţeir stćđu uppi međ timburkross í bak. Ţá held ég yrđi nú sjón ađ sjá eignirnar.   


mbl.is Krossfestingar á Filippseyjum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Undirrót allra lasta ...

kapital11Miklir hamingjumenn erum vér vesturlandabúar, ađ hafa hreppt grýluna Osama bin Landen svona beint í kjölfariđ á andláti Rússagrýlunnar, sem reyndar ekki jafn dauđ og haldiđ var í fyrstu.

Og ţađ má Osamagrýlan eiga, ađ hún hefur gefiđ borgarastétt Norđur-Ameríku og Evrópu aukna réttlćtingu fyrir tilveru sinni og valdabrölti, fćrt henni nýjan innblástur og tilefni til yrkja ódauđleg blóđsúthellingarljóđ, frelsinu og gullkálfinum til dýrđar.

Í heilagri baráttu sinni viđ ókindina Osama sendu hinir hákristilegu stríđsmenn Vesturlanda óvígan her inní Írak. Og árangurinn hefur ekki látiđ á sér standa: Ţúsundir, sumir segja mörg hundruđ ţúsundir, saklausra íraka liggja dauđir í valnum. Ţar á ofan, herma fregnir, ađ milljónir manna hafi flúiđ heimili sín og ćttjörđ.

Og stríđsherrar vorir ćtla síđur en svo ađ láta stađar numiđ í sinni kćrleiksríku og kristilegu umhyggju fyrir gjörvöllu mannkyni. Ţeir hafa ekkert ţroskast og enn minna lćrt í rás sögunnar. ,,Sívaxandi markađsţarfir reka borgarastéttina um alla jarđkringluna. Alls stađar verđur hún ađ hreiđra um sig, alls stađar verđur hún ađ búast um, alls stađar ađ treysta sambönd sín," sögđu Marx og Engels í Kommúnistaávarpi sínu fyrir rúmum 150 árum. Ţetta eru orđ ađ sönnu, eđa hver kannast ekki viđ ,,sívaxandi markađsţarfir borgarastéttarinnar" sem hún fylgir eftir međ góđu eđa illu, fagurgala, hótunum, smjađri og júdasarskildingum, eđa vopnavaldi ef ekki vill betur? Í dag er ţessi óhjákvćmilegi fylgifiskur borgarastéttarinnar, kapítalistana, kölluđ ,,alţjóđavćđing" og fólki er talin trú um gróđabrall fyrirbrigđisins sé mannkyninu nauđsynlegt ef ekki á illa ađ fara.

,,Undirrót allra lasta ágirndin kölluđ er" orti séra Hallgrímur sálugi Pétursson á sautjádu öld. Í raun og veru grundvallast tilvera og sálarlíf borgarastéttarinnar fyrst og síđast á ágirnd og óttanum viđ ađ fá ekki sađiđ ágirnd sína. Svo einfalt er ţađ nú, ţrátt fyrir undarlega tregđu mannfólksins viđ ađ rađa hlutunum í rétt samhengi.   

 


mbl.is Ný upptaka međ bin Laden
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Paul Scofield látinn finna fyrir ţví

full kona4Er nú Páll Skófíld úr heimi hallur:

Steindrapst á sjúkrahúsi í Sussex, ţrátt fyrir ađ hafa fengiđ Óskarverđlaun 1967.

En hann lék af sér og ţví fór sem fór.

Fann upp kryddblönduna All Seasons og fékk fyrir vikiđ viđurnefniđ: A Man for All Seasons.

En nú er Páll sem sagt dauđur, horfinn yfrum móđuna miklu, genginn fyrir ćtternisstapa, búinn ađ pissa út ...

Og ţó Páll hafi fengiđ ađ finna fyrir ţví í Sussex um ţađ bil er yfir lauk, ţá var niđurstađan best fyrir hann sjálfan. Ţađ fara hvor eđ er allir sína leiđ ađ lokum.


mbl.is Paul Scofield látinn
Tenging viđ ţessa frétt hefur veriđ rofin vegna kvartana.

Hćttuleg villidýr í kreppukrampa

furher2Ef mér skjöplast ekki ţví meir, ţá hafa hinir alrćmdu frjálshyggjumenn veri ađ verki í söluturnaránunum tveimur í Breiđholtinu.

Frjálshyggjumenn í kapítalískum kreppukrampa eru hćttuleg villidýr sem svífast einskis ef svo ber undir. Ţegar svo er komiđ, ađ ţessum peningaţyrstu skepnum nćgir ekki ekki ađ selja hverjum öđrum ömmu sína og systur, grípa ţeir ćvinlega til vopna til ađ seđja sárasta hungriđ. Í seinni tíđ hefur komist í tísku međal frjálshyggjumanna, ađ veifa sprautunálum, sem ţeir segja ađ séu útbíađar í eyđni og ólyfjan, framaní afgreiđslufólk verslanna og hóta ađ stinga ţađ međ umrćddum nálum, ef ţađ afhendir ţeim ekki alla péníngana í búđarkassanum.

Og ţar sem skollin er á kreppa í Fjálshyggjulandi, er fólk beđiđ um ađ vera vel á verđi gagnvart hungruđum frjálshyggjumönnum ţví ţeir eru, eins og áđur sagđi, hćttuleg villidýr.


mbl.is Rannsókn á ránum stendur yfir
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Höll undir ósćmilegan losta ?

hillaryHvern ţremilinn er veriđ ađ gefa í skyn í ţessari frétt? Er máske veriđ ađ ýja ađ ţví ađ frú Hillarý hafi tekiđ ţátt í kynferđissvalli Clintons bónda síns og ungfrú Lewinsky? Má vera ađ kerlingarröriđ sé ekki síđur höll undir ósćmilegan losta og eiginmađur hennar? Ţađ skyldi ţó ekki vera? 

Ţessar og margar fleiri óhugnarlegar spurningar koma óbeđnar uppí hugan viđ lestur fréttar af ,,skyldustörfum" Hillarýar Clinton, ţá hún var forsetafrú, sćllar minningar. Eđa hvađ var hún ađ vilja í Hvíta Húsinu á sama tíma og Bill átti ástarfundi međ lćrlingnum Monicu Lewinsky?

Og hvađ međ Georg Bush, núverandi forseta, og eiginkonu hans. Hafa ţau ef til vill líka tekiđ ađ sér lćrlinga eins og ţessa Móniku? 


mbl.is Lewinskymáliđ skýtur á ný upp kollinum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband