Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2011

Eru loðnuveiðar umhverfisslys ?

Það verða þá kanske bræðslukallarnir sem bjarga loðnustofninum með löngu verkfalli ?
mbl.is Vinnustöðvun samþykkt í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímamótaræða frú Ingveldar hitti menn í hjartastað

femma5.jpgJájá, fólk má fimbulfamba eins og því lystir útaf einhverju andskotans neysluviðmiði sem er álíka merkileg og önnur auðvaldslýgi. Ennfremur kemur mér ekkert við þó Skaga-Gutti éti neysluviðmið í hvert mál þar til hann verður magaveikur eins og hundurinn sem dó úr uppgerð í fyrravor.

Afturámóti voru frú Ingveldur og eiginmaður hennar, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, heiðursgestir á þorrablóti Heimdalls, félgs ungra Sjálfstæðismanna, síðastliðinn laugardag. Það var falleg samkoma þar sem andrúmsloftið bókstaflega logaði af góðvild og eindrægni í bland við súrþef ýmiskonar.

Þegar allir vóru orðnir mettir af kæstum kjóabringum, súhveli, álaborgarákavíti og öli af gerðinni Carlsberg Elefantur, stóð frú Ingveldur upp og flutti Heimdellingum innblásið hátíðarávarp. Eins og fyrri daginn mæltist henn sérlega vel; ræddi fjálglega um yfirburði aríska kynstofnsins, kvótakerfisins í sjávarútvegi og hinnar ósýnilegu handar markaðarins sem er alltumlykjandi og blessandi í mannlegu samfélagi. - Hin algóða ósýnilega hönd markaðarins, hrópaði frú Ingveldur yfir hina ungu Sjálfstæðismenn sem erfa munu landið, -hin algóða ósýnilega hönd markaðarins hefur leyst Guð af hólmi, sýnt okkur frammá að Hymmnafaðirinn er mannkyninu með öllu óþarfur og Jésú ómerkilegur kommatittur af sama tagi og Hugo Chavez. Þá hefir hin ósýnilega hönd markaðarins gert ríkisrekið skólakerfi, heilbrigðiskerfi og aumingjatryggingarkerfi að merkingarlausum skítabúllum og gróðrastíu djöfla og andskota.

Þegar þarna var komið sögu í ræðu frú Ingveldar, lustu hinir góðglöðu Heimdallsunglingar upp slíku langdregnu og ógurlegu fagnaðarorgi að frú Ingveldur varð að gera hlé á máli sínu í rúma hálfa klukkustund. Ræðuhléið notaði hún til að innbyrða úr hálfri ákavítisflösku frá Álaborg meðfram því að skima sínum haukfránu augum um salinn. En þegar allt var að verða kyrrt aftur og Heimdellingar sestir, kom frú Ingveldur auga á Kolbein eiginmann sinni í undarlegum fangbrögðu undir borði í dimmasta horni salarins. Og eins og hagsýnni húsmóður sæmir, óð frú Ingveldur tafarlaust á þann vettvang sem bóndi hennar hafði haslað sér völl. Þar undan borðinu dró hún Kolbein Kolbeinsson ósæmilega illa gyrtan og þar á eftir telpukorn á nítjánda ári, svo gjörsamlega ógyrta sem mest má vera. Þegar frú Ingveldi varð ljóst hverskyns var, öskraði hún uppyfir sig að nú skyldu þau skötuhjúin sem hún hafði dregið undan borðinu fá að kynnast hinni ósýnilegu hönd markaðarins svo um munaði. Að svö búnu flengdi hún hin ógyrtu lostasvín þar til hún var farin að fá blöðrur í lófana, þá sneri hún aftur til ræðustólsins og lauk máli sínu eins og ekkert hefði í skorist á afar sannfærandi hátt, en Heimdellingar stukku, eða skriðu, veinandi uppá borð og stóla og fögnuðu sleitulaust þar til frú Ingveldur var farin á braut og komin heim til sín með eiginmann sinn og hið lífsglaða nítján ára telpukorn.    


mbl.is Grunnviðmið 86.530 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blámaðurinn ógurlegi hoppar eins og álfur útúr hól.

xd7_1058606.jpgÓsköp er raunarlegt að verða vitni að því að blámaðurinn ógurlegi, Björn Bjarnason fyrrum ráðherra og einkavinur Jóhannesar í Bónus, skuli vera orðinn svo utangátta og afturúrsiglandi í pólitík að hann sjái ekki að frænda hans, Bjarna lögfræðings úr Garðabæ, gengur aðeins gott til með að snúast til fölskvalausrar trúar á Icesave-samninginn.

Þetta góða sem Garðabæjartröllinu gengur til snýst bara um að bjarga kvótakóngum eins og Þorsteini Má frá fyrningu sem og að bjarga veleðla stórfyrirtækjum frá löngu tímabæru gjaldþroti en láta almenning borga Icesave-glæpinn í staðinn. Ég hélt að fegurri hugsjón væri ekki til að dreifa innan Sjálfstæðisflokksins sem allir þar innanborðs væru innilega sammála um. Og til að undirstrika þetta góða og hugsjónina fögru fékk Bjarni engeyingur Frikka Sóf til að vera fundarstjóra á hinni kristilegu helgistund í Valhöllu í gær.

Það er raunar svo stórfurðulegt að karlanginn hann Björn átti sig ekki á þessari einföldu fléttu, að halda má að hann hafi haldið sig síðustu misseri í einsemd upp til fjalla í grasigrónum moldarbing, en kemur síðan á þessum tímapunkti hoppandi eins og álfur útúr hól og botnar ekki neitt í neinu.


mbl.is Þjóðin eigi síðasta orðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla Ísland, óskalandið, bráðum kemur þú.

xd1_1058396.jpgÞað er gríðarlegur sigur fyrir Bjarna Benediktsson að hafa tryggt sér stuðning hins mikla skörungs, Gjeirs H. Haaardy, í baráttunni um að hrossakaup Sjálfstæðisflokksins við ríkisstjórnina um óbreytt kvótakerfi og niðurfellingu skulda stórfyrirtækja eins og N1 gegn stuðningi Sjálfstæðisflokksins við Icesave-samninginn. 

Og herra Gjeir Hrun Haaardy bætir um betur og lýsir því yfir, af framúrskarandi traustvekjandi fjálgleik við mbl.is, að Bjarni lögfræðingur úr Garðabæ hafi rökstutt mál sitt af ábyrgð og með málefnalegum hætti. Því er ljóst að Bjarni hefur mikið lært af Gjeir í hrunsfræðum þegar hinn síðarnefndi sigldi þjóðarskútunni uppá sker á Góðærisbankamiðum í byrjun október 2008 eftir langa og stranga siglingu í þreifandi frjálshyggjubyl og úfnum loftbólusjó.

Úr því sem komið er, er ekkii eftir neinu að bíða fyrir Samfylkinguna að sparka VG útúr stjórnarráðinu og taka upp þráðinn góða við Sjálfstæðisflokkinn þar sem frá var horfið snemma árs 2009.

Lifi endurreisn Gamla Íslands, húrra húrra húrra húrraaa!


mbl.is Geir styður Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stagkálfur Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur

dori2.jpgÞegar ein báran rís er önnur vís. Við að Kristján úr Keflavík hrökklast með skömm frá formennsku Starfsgreinasambandsins er allt útlit fyrir að Björn nokkur Snnæbjörnsson frá Akureyri setjist í formannsstól sambandsins.

Um Björn þennan er það að segja, að hann er númer eitt, tvö, þrjú, fjögur og fimm framsóknarmaður; verkafólk skiptir hann litlu máli utan hvað hann hefur lifibrauð sitt af því. Það verður að teljast afar einkennilegt, að frá því að Starfsgreinasambandið var stofnað hefur forysta þess að mestu staðið saman af legátum sem ekki eru verkalýðssinar fyrir fimm aura, enda árangurinn eftir því. Aðalstarf þessara lítilmannlegu forystuseppa hefur aðallega verið í því fólgið að halda baráttufólki innanverkalýðshreyfingarinnar niðri, meðfram því að sleikja sig í algjörri undirgefni upp við valdastéttina í landinu, auðvaldið.

Mér er enn í fersku minni þegar skítseyðin Kristján úr Keflavík, Björn Framsóknarmaður og Hervar Gunnarsson, ásamt viðundrinu Halldóri Björnssyni, stóðu að samsæri og aðför að Birni Grétari Sveinssyni, sem þá var formaður Verkamannasambands Íslands, og flæmdu hann frá störfum í krafti meintrar stærðar þeirra innan VMSÍ. Nú er aðeins einn þessara samsærisfauta enn hangandi eins og tilberi á spena verkafólks: framsóknarmaðurinn Björn Snæbjörnsson, stagkálfur og meðhjálpari Halldórs Ásgrímssonar og Valgerðar Sverrisdóttur, sem nú býr sig undir að klifra uppí stól formanns Starfsgreinasambandsins. 

Fyrir hönd verkafólks vona ég að Björn Framsóknarmaður hverfi fljótlega af fóðrum hjá verkalýðshreyfingunni og fái sér sæti í skammarkróknum við hliðina á lagsbræðrum sínum, Kristjáni úr Keflavík og Hervari af Skaganum.


mbl.is Björn tekur við formennsku af Kristjáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðifrétt, - verkalýðsdragbítur fellur fyrir borð

asiÞað er sannarlega ástæða fyrir alla raunverulega verkalýðssinna á Íslandi að gleðjast yfir að einn alversti verkalýðsdragbítur landsins, Kristján úr Keflavík, skuli loks hafa hunskast til að segja af sér formennsku Starfsgreinasambandsins.

En betur má ef duga skal. Óskandi er að fall verkalýðsforstjórans úr Keflavík verði tilefni vakningar innan heildarsamtaka verkafólks sem leiði til þess að fleiri toppdragbítar og afætur á verkalýðsstéttinni fjúki sömu leið og Kristján Gunnarsson. Oft var þörf, en nú er nauðsyn.


mbl.is Kristján segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félag nefnt eftir Baldri gamla bófa, þeim merka sjálfstæðisref

fullur4Sjálfstæðisflokksfélagið Baldur í Kópavogi er afskaplega mekilegt félag, enda nefnt eftir Baldri nokkurm bófa, sem eyddi mestum hluta fullorðinsára sinna bak við lás og slá austur á Litla-Hrauni fyrir bankarán, innbrot, gripdeildir, líkamsárásir, svik, falsanir, íkveikjur, ránmorð og hórdómsbrot.

Í Sjálfstæðisflokksfélaginu Baldri leggja menn og konur ákaft stund á mannkærleika og góða siði. Og þar eru átvögl virt að verðleikum og áfengissvelgir bókstaflega dýrkaðir. Það kemur því ekki á óvart þó stjórn Sjálfstæðisflokksfélagsins Baldurs mislíki að þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilji nú ólmir borga Bretum og Hollendingum Icesave-féfléttuna rúmlega uppí topp. Stjórnarmenn í Baldri halda nefnilega að Bjarni Ben og þingflokkurinn hafi verið að samþykkja að Sjálfstæðisflokkurinn einn eigi að borga Icesavehappadráttinn, eins og honum ber að gera, sé alls réttlætis gætt.

Að lokum legg ég til að sjálfstæðismenn í Kópavogi breyti nafni félags síns í Sjálfstæðisflokksfélagið Gunnar I. í Kópavogi.


mbl.is Afstaða þingflokksins óskiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var nú dálítið öðruvísi þegar ég var í Hirtshals.

kol9_1057845.jpgÞá var það nú öðruvísi, en hjá þessum 23. í einum bíl, þegar ég var í Hirtshals hér á árum áður. Við vorum nefnilega á síld í Norðursjónum og lönduðum í Hirtshals, trúlega við sömu bryggjuna sem þessir 23 voru í Chryslernum. Að löndun lokinni fórum við einlægt í verslunina Próvíantinn og létum senda fullan sendiferðabíl af guðaveigum um borð. Þar næst fórum við í sturtu, svo í sparifötin og tókum til við guðaveigarnar. Um kvöldið fylltum við skipið af kátum kvenvörgum, sannkölluðum skipsjómfrúm, sem létu sér fátt fyrir brjósti brenna og upphófst þá gjarnan þvílíkur darraðadans í tvo til þrjá sólarhringa að allt ætlaði um koll að keyra.

Síðan þetta var hefur góðri skemmtan ungra manna hrakað svo að til hreinnar úrkynjunar má telja.


mbl.is 23 í einum bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega siðlausir og ábyrgðarheftir bæjarstjórar.

xd17.jpgÞað er vægast sagt ótrúlegt siðleysi fólgið í því hjá umræddum sveitarstjórum að ganga fram fyrir skjöldu og heimta því sem næst óbreytt kvótakerfi. Það virðist með öllu hafa farið framhjá þessum greyjum að þeir starfa í umboði íbúanna í viðkomandi sveitarfélögum en ekki gæpasamtaka eins og Sjálfstæðisflokksins og LÍÚ, sem í þessu tilfelli virðist vera raunin.

Ég veit ekki hvort fólk á að hlægja eða gráta yfir ósvífnum sveitastjórum bæjarfélaga, sem farið hafa mjög illa útúr kvótakerfinu, að rita nafn sitt undir kröfu um svo gott sem óbreytt kerfi, án þess að hafa minnstu hugmynd um hver vilji íbúanna er gagnvart kvótakerfinu. Enda vilja þessir hottinteglar ekki vita hvað lýðræði er, hafa óbeit á orðinu lýðræði, en taka þess í stað eins og hlýðnir hundar við skipunum frá leiðtogum lífs síns í spillingargreninu Valhöll við Háaleitisbraut í Reykjavík. Að mínu mati er þetta fólk ekki hæft til að veita sveitarfélögum forstöðu sökum spillingarnáttúru og ábyrgðarleysis.

Það er víðar en í Túnis og Egyptalandi sem alþýða manna þarf lífsnauðsynlega að losna við ófyrirleitna ráðamenn. Íbúar sveitarfélaga á Íslandi hafa ekkert að gera með bæjarstjórafígúrur og bæjarstjórnarmenn, sem fyrst og síðast ganga erinda óprúttinna samtaka, sem komu þjóðinni nánast á vonarvol með siðleysi og hreinni glæpamennsku. 


mbl.is Bæjarstjórar vilja samningaleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegur vænkast. Hrossakaup. Og faðirvorið á egypsku.

xv9_1057606.jpgNú er svo skemmtilega komið fyrir honum Steingími okkara hérna J. að honum er hvergi fagnað jafn innilega og í Sjálfstæðisflokknum og vissum hluta Samfylkingarinnar. Þykir mér vegur bóndasonarins að norðan hafa vænkast verulega eftir að mikilar ástir tókust með honum og erkiíhaldinu, enda sendi hann son sinn eingetinn, Björn Val Brimz, útaf örkinni til að kvótakerfi Þorsteins Más og LÍÚ öðlaðist eilíft líf með þjóðinni. Þá hefir Steingrímur, eins og sönnum mannkynsfrelsara sæmir, lagt á sig ómælt erfiði til að fremja kraftaverk á steindauðum fjámála- og trygginafyrirtækjum, mammoni til dýrðar, og reist þau upp frá dauðum eins og hverja aðra Lazarusa. Og kapítalistarnir hafa jafnóðum klappað honum lof í lófa.

Og nú hafa menn gert heilög hrossakaup: Fígúrurnar í Sjálfstæðisflokknum hafa fallist á að greiða götu óskabarns Steingríms og Jóhönnu, Icesave-samningsins, en fá á móti, ef að líkum lætur, lítið breytt kvótakerfi, sem LÍÚ-klíkan getur hæglega samþykkt.

Já piltar mínir, það ætlar að rætast skemmtilega úr honum Steingrími okkar. En hvað sósíalistar eru að gera við þennan bögubósa fyrir formann hjá sér er samt hálf óhugnanlegt. Enn óhunanlegra er þó að almennir flokksmenn í VG skuli ekki fyrir nokkru síðan hafa tekið túnisísku aðferðina á karlinum og kennt honum faðirvorið á egypsku.


mbl.is Fagnar afstöðu sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband