Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Menningarlegt náhland fyrir 620 krónur og neytendur þess

kaffi.jpgÞað eru ljótu andskotans okursteggirnir sem voga sér að selja saklausum smá-pólitískum menningarvitum bolla af lattekaffi á 620 krónur. Ég veit satt að segja ekki hvað ætti að gera við soleiðis bölvuð mammonsverkfæri. Þar fyrir utan er lattekaffi þvílíkt náhland og skólp, á litin eins og vilpa í drullupolli og lyktar eins og sorp, að ólíklegt  má telja að nokkur vitiborinn maður leggi sér þessháttar óþrif til munns, hvað þá að borga morð fjár fyrir.

Þó er haft fyrir satt að einhver undanrennusmámenni, með dökka gáfumannabauga undir augum, sitji á kaffihúsum og slafri í sig lattekaffi og þvaðri vitleysu, sem þau kalla umræður um listir, menningu og stjórnmál í víðum skilningi. Þessir latteberserkir eru mest kratar, sem er viss tegund af framsóknarmönnum, vel hægrisinnaðir og í skítugum nærbuxum.  Svo fá þessi grey í magann af latteþambinu og slaga heim frá kaffihúsunum eins og þeir séu að missa fótavist. Þegar heim er komið berja þeir maka sinn, eigi þeir einhvern, snýta sér í sængurfötin og míga á gluggatjöldin. Þetta er öll menningin sem lattelepjandi lúxusliðið í 101 stundar.

Nú hefir sannast á Máríu Borgargagn að hún sé furðuveik fyrir lattakaffi á veitingahúsum, jafnvel þótt það kosti 620 krónur pr. bollinn. Þessi latteárátta hennar gerir að verkum, að öllum, nema einkennilega innréttuðu fólki, er gjörsamlega ólíft að standa fyrir aftan hana, til dæmis í biðröð, vegna lyktarinnar sem á upptök sín í millum þjóhnappa hennar. En Indriði Handreður er ánægður með þefinn af henni - og Kolbein Kolbeinsson líka.


mbl.is Kaffibollinn hækkaður í 620 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sem eiga upptök sín á milli rassakinna

aparSjáum nú til, Jón Bjarki, eða ,,Prjón Fjarki" eins og vinir hans kalla hann, er hættur á DV. Hann þoldi ekki eiturgufurnar af gömlu Framsóknarmaddömunni sem nú fylla alla króka og kima í húsakynnum blaðsins. Umræddar eiturgufur, sem eiga upptök sín a milli rassakinna Maddömunnar, ku vera einkar óhollar, þær rjúfa heilastarfsemi, stuðla að ólæknandi geðkrabbameini, gera einstaklinga að siðlausum péníngapervertum. En það er gott að Jón Bjarki (Prjón Fjarki) skuli hafa forðað sér útúr óloftinu og viðurstyggðinni sem nú hefir verið innleidd á DV.

En nú segja óljúgfróðir menn að brottflúnir og brottreknir félagar Jóns Bjarka (Prjóns Fjarka) af DV hafi stofnað fjölmiðilinn Stundina og fylgi þeim hvimleitt og óæskilegt draugamor af klikkuðustu og sjálfumglöðustu byltingarhetjum Búsáháldabyltingarinnar. Þessar byltingarhetjur eru ekkert blávatn, einlægt með buxurnar á hælunum og ósamkvæmar sjálfum sér í orðum og gerðum. Og eflaust á þetta rottugengi eftir að skella þeim feðgum Jóni Trausta og Reyni í svaðið á sama hátt og það gerði útaf við uppreisnina sem kennd er við búsáhöld.

Á meðan þessu fer fram gleðjast frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra fólk því þau vita sem er, að bestu hækjur kapítalísks þjófafélags, bjargvættir þess og varnarþing, er kratíska illþýðið sem iðulega eyðileggur andóf og uppreisnir gegn auðvaldinu með yfirborðsglamri, fábjánaskap og auðvirðilegri framgöngu. 


mbl.is Jón Bjarki hættur á DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnsi á leið í súpupottinn í Nígeríu, teboðstúttan braggast, þjóðkirkjan einkavædd

Ósköxynxed.jpgp er orðið að sjá hann Gunnar kallangann Björnsson. Hann er orðinn eins og fullhert skreið í framan af þreytu eftir slagsmálin við læknadraugana. Ef ekki semst á næstu klukkutímum, er næsta víst að einhver skreiðarverkandinn sér sér leik á borði og pakkar veslings manninum inní striga og sendir hann til Nígeríu. Það veður þá söguleg heimsatburður ef læknadeilunni lýkur með því að blámenn í Afríku sjóða sér súpu úr formanni samninganefndar ríkisins.

En meðan gamblerGunnar Björnsson veslast upp í klóm læknamafíunnar, túttnar teboðstúttan Ásdís Halla, Albaníu Ásdís, út eins og versta hlandsprengja svo glittir í að brátt eigi landsmenn allir líf sitt og limi undir sjúkdómsgróðastíunni Sinnum ehf. - það er að segja þeir landsmenn sem eiga pééénííínga fyrir læknisaðstoð og stöffi. Þeim, sem ekki eiga fyrir krabbameinsmeðferð eða hjartaaðgerð verður náttúrlega kastað beint í ofninn í Sorpu og málið dautt. Það er áreiðanlega ógurlega mikill stórgróði af slíku fyrirkomulagi og engin er eftirsjá af skrílmennum sem ekki ekki geta borgað fyrir heilsubætur hjá Sinnum og öðrum ámótaa einkareknum þjóðþrifalækningastöðvum.

preNú hefir heyrst, að Framsóknarflokkurinn, undir styrkri stjórn Sigmundar Davíðs, vilji ólmur fara í að einkavæða þjóðkirkjuna á fyrrihluta þessa árs. Sigmundur og hans stórgáfaða liðssveit segir, að eina skynsamlega lausnin á trúarbragðavanda þjóðarinnar sé að fela einkaaðilum trúarbragðaauðlindina. Kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki, Finnur Ingólfs, Ólafur stórbóndi að Miðhrauni I., Sigurður Einars og Skinney/Þinganes séu tilbúnir að fjárfesta í kirkjum, því þar sé að vænta góðra ávöxtunar, auk þess að nefndum aðilum sé í mun að kaupa sér örugga sælu í Hymmnaríki, en eins og staðan er nú þá er vegabréfsáritun þeirra að því eftirsóknarverða ríki í hæsta máta ótrygg. Það sé því ekki eftir neinu að bíða með að selja kirkjunar, safnaðarnefndirnar, prestana og kabélánana.


mbl.is Ásteytingarsteinarnir eru nokkrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógæfumönnunum er alls varnað

run.jpgAlveg er þetta hræðileg niðurstaða í kjöri á íþróttamanni ársins. Sú sorglega staðreynd blasir við, að ógæfumönnunum sem mega kjósa í þessu kjöri, er alls varnað, þeir eru það sem kallað er á fagmáli: úti að skíta. Megi þeir laugast í Hans blessaða blóði og verða að réttlátum og fullorðnum mönnum.

Já, það er hryllilegt að álappalegur og uppásnúinn krangi af karlkyni skuli vera kosinn íþróttamaður ársins og hafa ekkert til þess unnið annað en að skaprauna sönnum íþróttaaðdáendum. Allt eins hefðu þeir getað gert gömlu geðvondu stórreykingakellinguna á Grund að íþróttamanni ársins.

Nú leggjum við til, að öllum þessum íþróttafréttaköllum verði stampað, afhentir gjöreyðingardeild Sorpu til vinnslu. Þegar það verður frá, viljum við að konur, fémínískar valkyrjur með blóð á tönnunum, verði framvegis látnar sjá um kjör íþróttamanns ársins á Íslandi svo að við verðum okkur ekki meira til stórskammar í alþjóðlegu íþróttasamhengi.

Auðvitað hefði bilaða íþróttakosningaklíkan átt að kjósa Hjalta Úrsus íþróttamann ársins. Hún hefði átt það svo sannarlega skilð.


mbl.is Jón Arnór íþróttamaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn

fleng2Á vísum stað segir, ,,að sá sem sparar vöndinn hati son sinn, en þeim sem hann elskar refasr hann" Þessi algildu sannindi þekkir herra Dale Garcia greinilega vel og með þau í huga hefir hann eflaust hringt í lögregluna til að vera opinber vottur að því þegar hann rassskellti dóttur sína og rækti þar með uppeldislega skyldu sína gagnvart telpukorninu. 

En það eru fleiri en herra Dale Garcia sem þekkja fyrrgreint heilræði og hafa í hávegum. Ein af þeim er frú Ingveldur. Þegar Kolbeinn eiginmaður hennar fer yfir strikið, sem gerist því miður oftar en æskilegt er, þá refsar hún honum með viðeigandi harðræði svo hinum skiljist að heigi að halda sér á mottunni. Hún hefir í nokkur skifti farið með karlóhræsið sitt útí almenningsgarð og flengt hann þar á beran botninn fyrir framan nefið á fjölda manns, ungum sem öldnum. Þá hefir frú Ingveldur slegið Kolbein í rot á klósettinu, í svefnherberginu, þvottahúsinu og eldhúsinu. Og þegar hún kom að Kolbeini í bílskúrnum í óviðurkvæmilegum holdlegum samskiftum við Indriða Handreð og Máríu Borgargagn sló hún þau öll í öngvit á staðnum. Þannig hefir frú Ingveldi tekist að halda manni sínum að mestu í skefjum á krítískum stundum þegar óeðlið sækir á hann á róttækan hátt.


mbl.is Fékk lögreglu til að fylgjast með flengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með blautlega sjóræningjaútgáfu af Tarzani í lúkunum

xd12.jpgEitthvað held ég sé málum blandið sem haft er eftir brúðarmeynni Heiðu P. í fréttinni af brúðkaupi hennar. Þar er einkum átt við hina mjög svo hæpnu og dulafullu staðhæfingu hennar, að Jón Gnarr hafi lesið yfir henni og brúðgumanum úr bókinni um veginn eftir Lao tse. Það má vel vera að Gnarrinu hafi verið rétt bók í hendur, sem það hafi þóttst vera að lesa úr fyrir brúðhjónin. Og frekar gæti ég trúað að skræðan, sem Gnarrið hafði í lúkunum, hafi verið blautleg sjóræningjaútgáfa af Tarsani en Bókin um veginn.

Hitt er svo hulin ráðgáta hvernig brúðhjónunum gar dottið í hug að láta Gnarrið tafsa yfir sér eftir að sýslumaðurinn hafði gefið þau saman. Að sýslumaðurinn sýslumaðurinn skuli ekki hafa tekið fyrir þá óhæfu, eru helst til klaufaleg embættisafglöp hjá honum og ættu að réttu lagi að varða embættismissi.

Eg gott er að Heiða P. skuli vera hætt í stjórnmálum. Í þeim efnum var að vísu engu að hætta, því Heiða P. og Gnarrið voru aldrei í pólitík nema af nafninu til og að taka laun fyrir fíflaganginn. Þó setur að manni ugg varðandi hugsanlegt forsetaframboð Gnarrsins, því apparatið er farið að pissa innum skráargatið á Bessastöðum og því til alls líklegur með aðstoð vilausra og heilabrunninna manna.


mbl.is Jón Gnarr las úr Bókinni um veginn fyrir brúðhjónin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófalykill og bóluefni gegn framsóknarplágunni

xb5_1234393.jpgÍ tilefni af ráðherraskiftum í umhverfisráðuneytinu ætti starfsfólkið þar að lát slag standa og skifta um allar læsingar í húsakynnum ráðuneytisins. Þá held ég verði óbjörgulegt að horfa uppá veslings angann hana Sigrúnu reyna árangurslaust að komast inn í ráðuneytið og botnfrjósa kanske á stéttinni fyrir utan.

En því miður væri skammgóður vermir fyrir starfsfólk umhverfisráðuneytisins að læsa kerlingarálftina úti, því hún myndi bara skreppa niður í höfuðstöðvar Framsóknarflokksins og sækja þjófalykilinn og opna ráðuneytisdyrnar með honum.

Góðu fréttirnar, sem eru furðu góðar að þessu sinni, eru að nú ku vísindamennirnir vera búnir að finna framsóknarvírusinn þannig að bráðlega verður hægt að fara að bólusetja fólk við framsóknarsjúkdómnum. Það verður áreiðanlega helvíti gaman hjá farsóttarlæknunum þegar þeir heimsækja afturúrsiglarann Ásmund Daða og sprauta hann vægðarlaust í rassgatið með framsóknarbóluefninu  og ekki verður síðri skemmtun þegar Vigdís Hauks fær sitt dramm svo ósvikið í afturendann að hárið fýkur af henni eins og sinuruddi í stólkparoki.


mbl.is Sigrún tók við lyklavöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband