Leita í fréttum mbl.is

Sem eiga upptök sín á milli rassakinna

aparSjáum nú til, Jón Bjarki, eða ,,Prjón Fjarki" eins og vinir hans kalla hann, er hættur á DV. Hann þoldi ekki eiturgufurnar af gömlu Framsóknarmaddömunni sem nú fylla alla króka og kima í húsakynnum blaðsins. Umræddar eiturgufur, sem eiga upptök sín a milli rassakinna Maddömunnar, ku vera einkar óhollar, þær rjúfa heilastarfsemi, stuðla að ólæknandi geðkrabbameini, gera einstaklinga að siðlausum péníngapervertum. En það er gott að Jón Bjarki (Prjón Fjarki) skuli hafa forðað sér útúr óloftinu og viðurstyggðinni sem nú hefir verið innleidd á DV.

En nú segja óljúgfróðir menn að brottflúnir og brottreknir félagar Jóns Bjarka (Prjóns Fjarka) af DV hafi stofnað fjölmiðilinn Stundina og fylgi þeim hvimleitt og óæskilegt draugamor af klikkuðustu og sjálfumglöðustu byltingarhetjum Búsáháldabyltingarinnar. Þessar byltingarhetjur eru ekkert blávatn, einlægt með buxurnar á hælunum og ósamkvæmar sjálfum sér í orðum og gerðum. Og eflaust á þetta rottugengi eftir að skella þeim feðgum Jóni Trausta og Reyni í svaðið á sama hátt og það gerði útaf við uppreisnina sem kennd er við búsáhöld.

Á meðan þessu fer fram gleðjast frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra fólk því þau vita sem er, að bestu hækjur kapítalísks þjófafélags, bjargvættir þess og varnarþing, er kratíska illþýðið sem iðulega eyðileggur andóf og uppreisnir gegn auðvaldinu með yfirborðsglamri, fábjánaskap og auðvirðilegri framgöngu. 


mbl.is Jón Bjarki hættur á DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband