Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2021

Í gamla daga höfðum við fyrir satt, að ekta og sönn frygðarmeðul væru í umferð

perr3Í gamla daga, þegar ég og mínir jafnaldrar vorum innan við tíu ára, vissum við fullvel af því að til væru góð graðmeðul, sem virkuðu hressilega vel, væri þeirra neytt í hófi, en fóru með neytandann upp úr sjöunda himin ef þau voru tekin inn í óhófi. Þessu til staðfestingar kunnum við margar sannar sögur um persónur sem fóru flatt og urðu sér til skammar af skefjalitlu graðmeðalaáti. Muna ekki einhverjir eftir Ráðskonunni á Holtavörðuheiðinni? Eða karlfjandanum, sem fór í kaupstaðinn og fékk graðmeðal og trylltist á leiðinni heim á bæinn sinn í sveitinni? Það var hræðileg saga, sem ekki var sögð nema tryggt væri að enginn fullorðinn heyrði til sögumanns.

Nú þykist einhver útlensk rassagudda hafa fundið upp einhvern fídus, ,,fæðubót" kallar hún mélið, sem hún uppástendur að veki konum óstjórnlegan losta, svo við liggur að þær brenni yfir. Við sem lengra erum komnir og munum tímana tvenna, ef ekki þrenna, vitum vel að þarna er á ferðinni ómerkileg lýgi, því fæðubótarmélið æsir ekki upp meiri eðlunarfýsn í konu en þó hún gengi fram á úldinn hundsskrokk úti á víðavangi. Graðmeðulin í gamla daga voru aftur á móti sönn og ekta, enda sóktust strákar eftir því að komast yfir slíka munaðarvöru til að byrla náunganum án þess hann hefði minnstu hugmynd um. Þorparinn Nóri Steinbítskjaftur setti til dæmis slurk af móleitu graðmeðali, sem hann keypti á svörtu af útlendum sjómanni, og steypti því öllu í kaffibrúsa foreldra sinna áður en þau fóru út að vinna. Afleiðingarnar voru stórbrotnar: Faðir Nóra var dæmdur til margra ára betrunarvistar, að því sannað þókti að hann hefði þessa morgunstund nauðgað hart nær heilu frystihúsi í þorpinu, konum sem körlum. En móðirin, sem var kennslukona, var komið fyrir á geðveikrahæli til lífstíðar vegna svívirðingar,  sem hún framdi í skólanum þann dag og enginn maður hefir enn þorað að nefna á nafn í öllu héraðinu. 

viagraEn drengurinn Nóri Steinbítskjaftur lét ekki staðar numið þókt foreldrar hans væru teknir úr umferð. Skömmu síðar komst hann nefnilega yfir annan skammt graðmeðals hjá öðrum útlendum sjómanni. Þann skammt setti hann hálfan út í neftóbakið afa síns. Gamli maðurinn, sem fyrir löngu var orðinn náttúrulaus, varð klumsa við þegar hann fann allt í einu gamla kenndir vaða af tvíelleftum krafti fram í miðvígstöðvum hans; þetta var eins og gróft jökulhlaup hjá karli, því alls staðar flæddi kynofsinn hjá honum út yfir bakka sína. En hinn helminginn af frygðarefninu gaf hann hundinum, sem gerði sér lítið fyrir að svalaði uppmagnaðri ónáttúru sinni á heimilisköttunum. Þennan dag var amman borin í börum út af heimilinu of af spítalanum fór hún á hvíldarheimili og harðneitaði að fara aftur heim til bónda síns, sem hafði koxað svona illilega á graðmeðalsblandaða neftóbakinu, að hann var eftir það stjarfur af fordæmalausri kynferðisfíkn, blár framaní með bálviðrisglampa í báðum augum, og dvaldi í stofufangelsi að heimili sínu til æviloka. 

 


mbl.is Framleiðir fæðubótarefni sem eykur kynhvöt kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafsvíkurbréf: Um hæl sem gekk í millum þjóhnappa forstjórans og gott útspil Þórhildar Sunnu

kikkÍ morgun tók Swandeesý hin heilbrigða á sig rögg, dró fram hælaháu ballskóna sína og strunsaði upp á Landspítala og sparkaða þeim arma þrjóti, Páli forstjóra, eins og melrakka út af spítalanum. Við sparkið stakkst hái hællinn Swandeesýar djúpt á millum þjóhnappa forstjórans fyrrverandi og gerði þar mikinn usla. Það var víst hrein hörmung að sjá til Páls er hann fór í loftköstum út á götu og enn hræðilegra að sjá hann þegar hann var að reyna að brölta á fætur. Sjónarvottur sagði, að karlanginn hefði borið sig að eins og hundskvikindi sem hefir orðið undir vörubifreið elligar dráttarvél,- en sjónarvottur þessi hafði einmitt orðið vitni að þessháttar slysförum hunda í sveitinni í gamla daga.

En þar sem Swandeesý var orðin vel heit og herská eftir að hafa afgreitt Pál forstjóra, þá var hún ekki beint stimamjúk við hina ráðherrana þegar hún mætti þeim á fundi síðar í morgun. Þar spurði hún Bjarnaben, með miklu og viðeigandi þjósti, hvort hann vildi fá sömu traktéríngar hjá sér og Páll eitinn forstjóri, ha? Bjarniben lyppaðist niður við hótunina og greip þéttingsfast í læri ráðherra síns, er sat honum á hægri hönd á fundinum og ráðherra Bjarnaben brást við með því að fara að iða í stólnum, sem auðvitað er ráðherrastóll. Nú er það verðugt íhugunarefni hvort tilhlýðilegt sé af ráðherra að fara að iða og jafnvel leysa dálítinn vind í ráðherrastól sinn þókt formaðurinn, á ögurstundu, grípi í skelfingarlosta í lær hennar. Fólki getur að vísu orðið á í messunni,- jafnvel ráðherrum getur orðið á í hita leiksins,- en viðlíka framkoma við ráðherrastól er hugsanlega blautlegs eðlis og þar með vítaverð, forkastanleg og ber vitni um sóðalegt, ef ekki glæpsamlegt, innræti.

Það er sem sé allt á rúi og stúi hjá ríkisstjórninni í dag, kosningasvindl komið í hámæli, Páll forstjóri kominn á götuna, og uppskrúfuðu snobb- og grobbhænsnin fari að taka sér í munn nýyrðið ,,uppkosning", sem væntanlega er dregið af hugsun um flökurleika og uppköst. Þá ku Bjarniben, Katrín, SigIngi, og fleira vont fólk, alveg vera við það að skíta í sig út af tilboði Píratafraukunnar góðu, Þórhildar Sunnu, þess efnis að hún og aðrir Píratar séu þess albúin að verja ríkisstjórn VG, Samfylkingar og gömlu Framsóknarmaddömunnar falli, ef til kæmi. Þetta tilboð er svo vígalegt að VG getur ekki hafnað því, og í Fjósi Framsóknarmaddömunnar er ástandið viðsjárvert vegna þess arna, því innan Fjóssins eru skálkar sem brenna í skinninu að fá ástæðu til að troða SigInga og griðkunni Lilju Dögg báðum í einu út um taðgatið á Fjósveggnum, en það er staðsett, sem kunnugt er, beint fyrir ofan sjálfan Fjóshauginn, sem gleypir allt sem honum er fært. Hafni VG tilboði Þórhildar Sunnu, jafngildir það yfirlýsingu um að VG sé þinglýst eign Sjálfstæðisflokksins, hjáleiga hans, og Katrín, Mumu frá Brúarlandi, gjörvalt Flokkseigendafélagið og framkvæmdastjórnin samsafn þýlyndra lítilmenna. Höfnun VG merkir líka að flokkurinn sá innihaldi einungis aumingja, slefandi af borgaralegri undirmálsmennsku, sem skirrast ekki við að svíkja kjósendur sína og gera þá að fíflum fyrir allra augum. Ef flokksmenn þeir, sem enn eru til innan VG, grípa ekki inn í á þessari stundu og draga Katrínu á hornunum út úr poletisku losta- og svallbæli Íhaldsins í Valhöllu, væri best fyrir þá að gangast bara spillingu glæpasamtakanna á vald og ganga í Sjálfstæðisflokkinn. 


mbl.is Jákvæð persónuleg ákvörðun að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegferð meintra vinstriflokka frá aldamótum til þessa dags

x29Halda Katrín Jakobsdóttir og þetta stórskrítna fólk í VG, að stjórnmálaflokkurinn, sem enn kallar sig ,,Vinstrihreyfinguna grænt framboð" hafi verið stofnaður til að viðhalda völdum auðvaldsflokkanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og þjónusta kapítalismann og heimsvaldasinna í hvívetna? Ef þessir furðulegu stjórnmálaloddarar VG halda það í raun og veru að sósíalistarnir sem komu að stofnun flokksins hafi ætlað sér að stofna flokk, sem ætti að þá hugsjón eina að falbjóða sig til ríkisstjórnarþátttöku með hverjum sem er, þá er það auðvitað alrangt og fjarri öllum sannleika. Ef Katrín og hennar undanrennulið ætla að halda auðvirðilegri auðvaldsþjónkun sinni áfram, eiga þau auðvitað að ganga hreint fram og segja, sem satt er, að VG hafi í reynd og á bak við tjöldin, horfið með öllu og endanlega frá vinstristefnu. Þá væri heiðarlegast af þeim, að lýsa því formlega yfir, að VG sé borgaralegur flokkur, sem aðhyllist óbreytt þjóðskipulag, byggt á kapítalisma og nýfrjálshyggju.

Satt að segja er nöturlegt hvernig flokksnefnur, sem halda því að fólki að þær séu á einhvern hátt sósíalískir flokkar, sem sé vinstriflokkar, hafa hagað sér síðustu þrjá áratugina, eða svo. Fársjúkri sameiningu Alþýðubandalags og Alþýðuflokks lauk sem kunnugt er, með því að ,,afrakstur sameiningarinnar", Samfylkingin, stökk við fyrsta tækifæri í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, Hrundstjórnina frægu undir stjórn Gjeirs Haaardý. Vinstrihreyfingin grænt framboð virtist fyrstu árin vera sæmilega vinstri sinnuð og umhverfissinnuð, en það tókst svo sem fljótt af. VG gerðist formlega flokkur efrimillistéttarfémínísta og mjög fór að bera á mikilli ríkisstjórnarsýki flokkseigendanna, Stengrims, Álfheiðar og Svavarsfjölskyldunnar, og orðrómur, þess efnis að þetta fólk vildi fyrir alla muni komast í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum fór mjög að ágerast á kjörtímabilinu 2003-2007. En það var Samfylkingin sem vann kapphlaupið um að komast upp í hjá Sjálfstæðisflokknum í það skipti.

Eftir 2007 hefir saga hinna meintu vinstriflokka verið ein sorgarsaga svika, hörmunga og ófyrirleitni. VG og Samfylking mynduðu ríkisstjórnarmeirihluta eftir Hrunið góða og endurreistu Gamla Ísland nýfrjálshyggjukapítalisma og spillingar á fjórum árum upp í hendurnar á auðvaldinu. Fyrir nú utan, að VG átti ekkert með að bjarga Samfylkingunni frá Íhaldinu eftir Hrun, það átti að leyfa Hrunflokkunum að engjast sundur og saman í þeirri snöru sem þeir sjálfir hnýttu. Þessi fjögur ríkisstjórnarár sín gerðu Samfylkingin og VG nákvæmlega ekkert, sem sýndi að þar færu vinstriflokkar. Þvert á móti gerðu þeir auðvaldinu allt til hæfis, flöðruðu upp um það eins og auðvirðileg hundkvikindi, en spörkuðu óvægilega í rassinn á alþýðufólki og róttækari vinstrisinnum. 
Nú hlýtur að vera komið að því að raunverulegir vinstrisinnar í hinum meintu vinstriflokkum (Sósíalistaflokkur Gunnarssmára þar meðtalinn)líti í eigin barm og greini kjarnann frá hisminu og kanni í alvöru sameiningu vinstriflokkanna, eftir að búið verður að vinsa ekkisósíalistana, undanrennulýðinn og lukkuriddarana frá.  


mbl.is Katrín ræddi við Guðna í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband