Leita í fréttum mbl.is

Reykingafasistar kenna tóbaksneyslu um lungnapestina

smoke2.jpgMerkilegt að málpípur reykingafasismans skuli ekki enn vera stokknir fram á vígvöllinn að tilkynna okkur að lungnpestin í rollunum í Mýrdalnum stafi eingöngu af tóbaksreykingum þeirra. En sem kunnugt er stafa allir kvillar sem nöfnum tjáir að nefna af reykingum og engu öðru að mati reykingafasistanna. Ég hef meira að segja heyrt reykingafasista halda því fram að tæplega tíræður karl hafi andast sökum reykinga, en karlinn hafði veist reykt eins og strompur í full 80 ár. Ef fullyrðing reyningafasistans er rétt, hefði gamli maðurinn líklega orðið minnst 300 ára.

Nú er bara að bíða rólegur eftir að ofangreindir tóbaksfasistar beri eigendum sauðkindanna sem dóu úr lungnapest, að þeir geti sjálfum sér um kennt því þeir hafi vanið búpening sinn á að reykja tóbak.

Svo ætla ég að fá mér eina Winston í tilefni af þessum gríðargóða pistli.


mbl.is Lungapest í sauðfé í Mýrdalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Við, hófsamir reykingamenn, erum nánast lagðir í einelti, vegna þess að við erum frjálslyndir gagnvart neyslu tóbaks. Tóbaksnotkun og/ eða ekki tóbaksnotkun á að vera einkamál fólks. Öll deyjum við að lokum, hvort sem við reykjum eða ekki.Þessi árátta eða leitni til að lengja líf getur verið tvíeggja mjög ! Með hærri aldri verður hætta á þrálátum öldrunarkvillum sífellt meiri og til hvers var þá barist ?

Kv., KPG.



Kristján P. Gudmundsson, 2.1.2011 kl. 20:28

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Jóhannes minn, farðu ekki að byrja með reykingar bara til að afsanna eða sanna eitthvað! Og gleðilegt nýtt ár svona án gamans.

Eyjólfur Jónsson, 2.1.2011 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband