Leita í fréttum mbl.is

Maður veit nú hvaða kónar þetta eru

heim5.jpgÞað leynir sér ekki á handbragðinu að hinir skipulögðu þjófaflokkar sem vinna saman að innbrotum eru skipaðir náungum sem ekki hafa lengur tækifæri til að ræna banka innan frá eða komast til mannvirðinga í vissum stjórnmálaflokki í krafti auðs. Það eru einkum ungliðar vissa stjórnmálaflokksins sem grunaðir eru um að vilja komast í álnir með því að ræna að innan heimili saklausra þræla neyslusamfélagsins. Ungliðarnir vita nefnilega sem er, að þeir munu aldrei verða tekinir alvarlega á þeim vettvangi sem þeir þrá að lifa og hrærast nema þeir eigi ásættanlegt kapítal og geti slegið um sig og komist á forsíðu Séð og heyrt. Eins og er þá er fátt um fína drætti í æðri fjármálastarfsemi, sem er ástæðan fyrir því að framagjörn ungmenni bregða á það óyndisúrræði að reyna að auðgast á smáskítlegum innbrotum og hnupli, enda eru péningar sem sem eru tilkomir á vafasaman hátt, með arðráni, svindli og þjófnaði, þeir einir péningar sem mark er á takandi.
mbl.is Skipulögð þjófagengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

He he :-)

Já þeir eru samir við sig...

Níels A. Ársælsson., 8.2.2011 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband