Leita í fréttum mbl.is

Syndir þínar verða þér EKKI fyrirgefnar

fall2.jpgÞá komu þeir með konu nokkra til Jesú, sem þeir kváðu hafa drýgt hór, og spurðu hann hvort þeir ættu gera sér hægt um vik og grýta hana í hel. Meistarinn leit meðaumkvunaraugum á mennina og mælti: - Sá yðar sem sydlaus er kasti fyrsta steininum. Þá beygði ungur maður sig niður og tók hnullung upp af strætinu og fleygði honum í konuna. Þessi ungi maður var flokksbundinn í Sjálfstæðisflokknum. Þá gekk Kristur til mannsins, hastaði á hann og sagði: - Þú ert illgresi í nægtagarði Drottins, syndir þínar verða þér ekki fyrirgefnar. Að svo búnu reisti Meistarinn konuna upp af götunni og kom henni í skjól undan vörgum strætisins.

Já, Einar Kr. Guðfinnson, alþingismaður, það eru sannkölluð alvöru stjórnvöld sem tekst með ábyrgðarleysi og bíræfni að keyra efnahagslíf þjóðar sinnar í þrot með hægri öfgastefnu. Það er mikið álitaefni hvort ein þjóð getur fyrirgefið þessháttar alvöru stjórnvöldum.


mbl.is Verðlækkanir í kjölfar krísu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Einar K er svartur blettur á Sjálfstæðisflokknum...

Vilhjálmur Stefánsson, 5.8.2011 kl. 17:35

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha ha Einar K. Guðfinnsson aumasti sonur Vestfjarða og eitt mesta illgresi móður jarðar ..........

Níels A. Ársælsson., 6.8.2011 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband