Leita í fréttum mbl.is

Gamalli griðku att á fjölmiðlaforaðið til að refsa liðhlaupum

xb9.jpgÞað var rétt gáfulegt hjá gömlu Framsóknarmaddömunni að senda elstu griðkonu sína á vettvang til að skamma strokulýðinn úr Framsóknarfjósinu blóðugum skömmum og hella yfir það hyski dæmalausum svívirðingum í opinberum fjölmiðlum og verja í leiðinni hina sönnu húskarla  Mog griðkur maddömunnar fyrir að hafa staðið vaktina gegn múhámeðstrúarmönnum og hund-tyrkjum. Reyndar mun sú skoðun líka uppi, að það hafi verið frámunalega illa gert að Framsóknarmaddömunni að siga gömlu griðkunni á liðhlaupana, því þetta líti út eins og þegar fíflinu er á foraðið att, og eigi gamla griðkan, svo gigtveik og hrum sem hún er, ekki skilið að vera skipað að hlaupa um gjammandi eins og flón. Þess ber að geta, að gamla griðkan er orðin svo aldurhnigin, um það bil eins gömul og Framsóknarmaddaman sjálf, að það jaðrar við mannvonsku, jafnvel á framsóknarmælikvarða, að láta hana skrölta útum víðan völl með hávaða og derring í fjölmiðlum. Meðferð sem þessi á háaldrari konu hlýtur að varða við lög.

En gamla griðkan, Rúna Magg, er svo sem ýmsu vön og man tímana tvenna; hún var ung stúlka þegar Tyrkjaránið var framið og á besta aldri þegar Sölvi Helgason var flengdur fyrir flakk og óknytti og barðist í her Hriflu-Jónasar gegn helvítis klessumálurunum. Svo að hún á allt traust skilið þegar skildan býður frómum sálum að hefja heilagt stríð við múhámeðstrúarmenn.

Um hina blauðu liðhlaupa úr Framsóknarfjósinu þarf ekki að fjölyrða. En þann óþjóðarumpulýð ætti auðvitað að vera hægt að dæma fyrir föðurlandssvik og landráð og hegna í samræmi við það. Við vitum öll hvað gert er við svoleiðis skaðræðiskvikindi á stríðstímum og því er nauðsynlegt, að setja sem fyrst lög sem taka almennilega á strokudýrum úr Framsóknarfjósinu. Því slíkir fantar eiga hvergi annarsstaðar heima en í gálganum eða á höggsokknum.


mbl.is „Ég skil ekki mennina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sammála þessu.

Allir sem kjósa Framsóknarflokkinn eru rasistar. 

Sleggjan og Hvellurinn, 20.7.2014 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband