Leita í fréttum mbl.is

Góðir tímar -

che6.jpgNú eru góðir tímar, eins og þeir segja í Amríku, í vændum hjá braskarastéttinni, því ríkisstjórnin, sem allt ætlar að svelta í hel af frjálshyggjusökum, gefur nú undir fótinn í algjörum fávitaskap allrahanda skattalækkanir. Og braskarastéttin kann sér ekki læti fyrir fögnuði og mígur stanslaust í buxurnar af eftirvæntingu, því þessari stétt mannleysa varðar ekkert um samfélag og vill ekkert með slíkt hafa, allrasíst siðaðra manna samfélag. Þetta óaldarhyski hugsar náttúrulega ekki um neitt annað en eigin skammtímahagsmuni og að fóðra eigin grægi með arðráni.

Best er þó þegar braskarafólin vaða froðufellandi að ríkinu og heimta ,,sinn rétt" og krefjast þess að fá forgang framyfir heiðarlegt fólk, t.d. varðandi læknisþjónustu og skólagöngu barna sinna. Með hliðsjón af eðli og hugsunarhætti braskarastéttarinnar, eiga þessar slefandi hýenur auðvitað engann rétt; þessi óféti ætti að öllu eðlilegu að reka úr landi, ef ekki kæmi þar á móti að ekki er á nokkurt samfélg leggjandi að taka við slíkum vörgum í véum.

Einhverjir hafa verið að orða það að núverandi ríkisstjórn sé vanhæf. Þeir sem það segja hafa á röngu að standa því þessi ríkisstjórn er ekki vanhæf heldur óhæf, gjörsamlega óhæf og til mikils skaðræðis í bráð og lengd. Þessháttar ríkisstjórn á að slá af eins og hvern annan dýrbít í varnarlausri fjárhjörð. Ekki tjóar að biðja ríkisstjórnina að hypja sig frá í góðu, svo að við verðum að steypa henni af stóli með illu og stofna í framhaldinu byltingarstjórn, sem hefur aungva meðaumkun með braskarastéttinni og glæpasamtökum hennar.
mbl.is „Íþyngjandi virðisaukaskattskerfi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Teitur Haraldsson

Það var „byltingarstjórn“ hérna.

Hún var sem betur fer kosin burt vegna þess að meirihluti lands og þjóðar sá að þetta var algjört glapræði og myndi bara steypa okkur í framtíðar stefnu niðurníðslu og afturhaldsstefnu.

Teitur Haraldsson, 23.8.2014 kl. 00:33

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei Teitur Haraldsson, nú ferð þú heldur betur villur vegar. Hér var ekki byltingarstjórn og hefur aldrei verið nema ef vera skyldi þær frjálshyggjustjórnir sem voru við lýði á árunum 1991 til 2009 og tókst að stórskaða samfélagið á Íslandi og sumir segja eyðileggja. Stjórn Jóhönnu og Steingríms, sem ég held að þú sért að vísa til, var hægristjórn sem fékk að busla í flórnum eftir að svartasta frjálshyggjuafturhaldið var búið að leggja efnahagskerfið á hliðina með stórbiluðum tiltektum sínum.

Ríkisstjórnin sem nú situr er gjörsamlega óhæf, enda er þetta afturhaldsstjórn, skipuð undirmálsfólki og í sumum tilfellum hreinum og beinum kjánum.

Jóhannes Ragnarsson, 23.8.2014 kl. 07:58

3 Smámynd: Teitur Haraldsson

Það hefur sem sagt engin stjórn verið hérna sem hefur verið hæf?

Ert þú kannski sá eini sem ert hæfur til að stjórna hérna?

Það er rosalega auðvelt að gagnrýna þá sem sitja og heimta aðra hallarbyltingu.

En segðu mér þá frekar hvaða menn eru svona hæfir og hvað villtu að þeir geri/ekki ?

Teitur Haraldsson, 23.8.2014 kl. 10:34

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það hafa margar stjórnir verið hæfar á sína vísu hér á landi, en uppúr 1991 urðu umskifti mjög til hins verra og síðan þá hefur þingheimi hrakað hreint með ólíkindum.

Hinsvegar virði ég þá skoðun manna, að sannarlega óhæfar stjórnir séu hæfar og hvítt sé svart o.s.frv. en mér finnst þeir sem þannig er ástatt fyrir brjóstumkennanlegir í barnaskap sínum. En ég tek undir, að það er auðvelt að gagnrýna þá sem nú sitja, því að þeir eru ekki aðeins óhæfir heldur stórskaðlegir í þokkabót, enda lugu þeir sig til valda með lágkúrulegum kosningaloforðaþvættingi.

Jóhannes Ragnarsson, 23.8.2014 kl. 10:50

5 Smámynd: Teitur Haraldsson

Þeir hafa staðið við það sem þeir lofuðu.

Það gerði fyrri ríkistjórn ekki.

Teitur Haraldsson, 24.8.2014 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband