Leita í fréttum mbl.is

Rolur með nefin nýkomin uppúr cocopuffspakkanum

coco_1055073.jpgHún er ekki töluð vitleysan þegar Sigmundur Davíð og Katrí Jakk eiga orðastað. Bæði eru rækilega kapítalísk í sjón og reynd og um hugarfarið þarf aunginn að efast. Þegar þau ganga erinda siðlausrar braskarastéttarinnar með dularfullum samræðum úr ræðupúlti Aþingis um afnám hafta minna þau á fátt meira en gamalt draugamor sem er að fjara út. Þess ber þó að geta, Sigmundi og Katrínu til varnar, að bæði eru þau strengjbrúður stærri og voldugri leikara, þeim er þvi vart sjálfrátt til orðs og æðis. En mikið andskoti eru þau samt leiðinleg, tilgerðarleg og innantóm í þessu einskisnýta, pólitíska vafstri sínu; að minnsta kosti yrði ekki héraðsbrestur þótt þau hyrfu af vettvangi ásamt sínum líkum, sem eru alltof margir.

Skoðun frú Ingveldar á fyrrnefndum skötuhjúum er ekki ýkja frumleg. Hún segir, að svona rolur, með nefin nýkomin uppúr cocopuffsdiskinum, muni aldrei verða flokkum sínum til annars en skaðræðis hversu vel sem eigendur þeirra reyna að stjórna þeim með spottum og spýtum.


mbl.is Mikilvægt að áætlunin sé leynileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband