Leita í fréttum mbl.is

,,Heldur frelsa oss frá illu"

drunk6Eftir að Sigurður Ingi hafði lagt á eftir samtalið við Sigmund Dávíð hlammaði hann sér niður á knén, spennti greipae og ákallaði Almættið með þessum orðum, ,,eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu" upp aftur og aftur þangað til hann valt allur í gólfið og lá þar afvelta um stund. Meðan á þessu stóð, dansaði Sigmundur Dávíð fyrir hugskotssjónum Sigurðar í líki púkafjanda með hnýfla og klær. Nú er að sjá hvort Sigurður Ingi stenst ásókn Hins Illa, eða hvort hann slangrar eins og langdrukkinn auðnuleysingi í félagsskap Sigmundar og Bjarna og heldur áfram að eyðileggja samfélagið með frjálshyggjurugli og auðvaldsgripdeildum.

Það getur á stundum verið erfitt að vera formaður Framsóknarflokksins, ráðsmaður gömlu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu, enda greinir sagan frá ýmsum kárínum sem þessir voluðu formenn hafa mátt þola. Sjálfstæðismenn reyndu á sínum tíma að koma Jónasi frá Hriflu á geðveikraspítalann Klepp; Bretar nernámu Ísland þegar Hermann Jónasson var ráðsmaður í Fjósinu og jafnframt forsætisráðherra; kratar sökuðu Óla Jó um að vera innvinklaður í Guðmundar- og Geirfinnsmál; og skemmst er að minnast þess þegar sálarlausir fréttsnápar afjúpuðu Sigmund Dávíð, þáverandi ráðsmann og forsætisráðherra, í beinni útsendingu svo að múgurinn þursti bandbrjálaður út á götur og æpti ókvæðisorð um blessaan wintrisdrenginn og linnti ekki látum fyrr en þingflokkur Framsóknar rak Sigmund eins og hundsræfil úr stóli forsætisráðherra. Allt þetta veit Sigurður Ingi og gerir sér aungva grein fyrir hvort Framsóknarflokkurinn er últrahægrisinnaður frjálshyggjufíflaflokkur eða samvinnuflokkur.

Meðan þessu fer fram halda raunir Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns áfram. Síðasliðna nótt svaf hann undir bárujárnsplötu langt inni í Elliðaárdal og var næstum frosinn í hel. Hann hefir nú sannfærst enn betur um, að setið sé um líf sitt og einungis tímaspurmál hvunær hann fellur fyrir vopni morðingja. Og það eru tveir morðflokkar á eftir honum, það er Kolbeinn viss um, annarsvegar frú Ingveldur, sem áreiðanlega leitar hans með Brynjari Vondulykt og Apakettinum og hinsvegar útsendarar úr Framsóknarfjósinu, sem þyrstir að bíta hann á háls og rífa hann í sig eins og kattafjandi rottu. Undir hádegi leitað Kobeinn svo skjóls, dulbúinn sem göturóni, í knæpu Arinbjörns Arinbjörnssonar verts, en það er eitt hið skuggalegasta veitingahús Reykjavíkur, eingöngu sótt af útskúfuðum eiturætum og hættulegum glæpamönnum, auk illa leikinna kvenmanna, sem sýna öll einkenni þess að vera útlifaðar skækjur. Í þessum félagsska situr Kolbeinn sem sé núna, titrandi og glamrandi og þorir ekki að hræra legg eða lið, nema til að lyfta glasinu að vörunum.


mbl.is „Engin komment“ um samskipti annarra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband