Leita í fréttum mbl.is

Tjarnarböllurinn

artAlveg er dásamlegt þegar okkar langfremstu listamenn gjöra sér lítið fyrir og gefa þjóðinni ómetanleg listaverk til að njóta um aldur og ævi. Nú hefir það orðið að veruleik að stórmeistari í listamennsku hefir sett niður myndlistarverk í dýrari kantinum og það ofan í sjálfa Reykjavíkurtjörn, en það hefir þókt nokkuð svo áhættusamt fyrir listaverk að vera staðsett þar. Eitt sinn, að minnsta kosti, var sett upp dulítið hafmeyjulíkneski; þeim viðburði var mætt með að sprengja hafmeyjulíkneskið í loft upp þannig að ekki hefir enn fundist nýtur moli af listaverkinu.

En nú hefir sem sagt einn gríðarlegur myndlistarmaður borið list sína út á Tjörn þar sem hún mun vonandi gleðja núlifandi listunnendur sem og komandi kynslóðir um aldir alda. Listaverkið er einkar formfagurt og rímar glæsilega við turn Hallgrímskirkju uppi á Skólavörðuholtinu, sem fyrritíma óþokkar uppnefndu og kölluðu ,,drottins dýrðar drellir." En allt um það, þá rímar skúlptúr listamannsins ekki síður við hálsinn á álftunum og myndast ægifagurt samspil vatnsflatar, listaverk og svanahálsa. 

Það er gömul saga og ný, að lan heimsins fyrir vel unnið verk eru ævinlega vanþakklæti, háð og spé. Nú þegar hafa óþokkar gefið sig fram og skírt listaverkið á Tjörninni ,,Tjarnarböllinn" þó svo listamaðurinn sjálfur hafi valið því heitið ,,Hafpulsa". Og enn meiri óþakkar eru líka komnir á vettvang með glott á vör og segja hvurjum sem heyra vill, á ekki færri en fimm tungumálum, að listaverkið, sem blasir við úti á hinni fögru Reykjavíkurtjörn, sé uppfærð eftirlíking af mannakukk, sona eins og ferðamenn skilja eftir sig út um allar þorpagrundir á Íslandi. Ef fram fer sem horfir verða unnendur fagurra lista að taka til sinna ráða og sprengja ,,Tjarnarböllinn" í loft upp áður en ábyrgðarlausir galgopar ná að gera þetta hugnæma listaverk algerlega ærulaust með sóðalegu háði og óþverraskap.  


mbl.is Ekki typpi heldur lítil hafpulsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Þessi ólist sem ólistakonan Steinunn hefur framið er argasta sjónmengun og á að fjarlægja eins og skot. Að líkja þessu við typpi er móðgun við karlkyns kynfæri hvarvetna. Þessi kona, Steinunn veit ekkert hvað list er, hefur hvorki sköpunargáfu né hæfileika á því sviði og ætti þess vegna að leita að einhverju öðru starfi.

En hvað segir Ingveldur annars um þennan andskotans ófögnuð úti í Tjörninni? 

Aztec, 27.10.2018 kl. 20:51

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Sem stendur er frú Ingveldur önnum kafin við að halda helgarsamkvæmi að heimili sínu. En hún gefur ef til vill út fréttatilkynningu um málið á morgun.

Jóhannes Ragnarsson, 27.10.2018 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband