Leita í fréttum mbl.is

Borgarstjórnar-Marta og dularfulli vökvinn

full2Mikið þó helvíti er hún Borgarstjórnar-Marta kræf kerling og hraust og nú farin að veifa einhverju gruggi framan í þingheim, sem hún kalla svifryk. Ekki er að efa, að ef Marta tæki sig til og skvetti grugginu framan í Dag borgarstjóra eða Líf Magnínudóttur, þá mundi það vafalaust svífa dálítið úr krúsinni þar til það hitti í mark. Og vissulega er freistandi fyrir Borgarstjórnar-Mörtu að haf ókræsilega vökva með í farteskinu, er hún fer á borgarstjórnarfundi, til að stökkva á Líf, sem er so gjörn á að reka túnguna út úr sér í áttina að trýninu á Borgarstjórnar-Mörtu. Vér vitum enda til þess að Mörtu hefir marga nótt dreymt að hún væri að skvetta úr fullri fötu af tjöru beint framan í Líf og jafnaði þar með reikninginn við grettluna þá.

En nú verðum vér að gjöra eins játningu áður en lengra er haldið. Vér erum nefnilega full efasemda um að það sé nokkuð svifryk í krúsinni aðtarna. Nær væri að álykta að þetta sé gerjað rónahland í dollunni, sem Borgarstjórnar-Marta veifaði á borgarstjórnarfundinum. Þá kemur vel til greina að um skólp úr skópfötu Mörtu sé að ræða og að hún hafi fengið þá snilldarhugmynd að skúra elhúsgólfið hjá sér til að afla sér hráefnis í svifrykið sitt.

Þriðja tilgátan um vökvann í krúsinni Borgarstjórnar-Mörtu er að þetta sé misheppnaður gambri. Sú gamla hafi sem sagt lagt í og eitthvað farið úrskeiðis. En af því liturinn á gambranum var heillandi þá þókti henni og öðru Valhallarmenntuðu fólki alveg gráupplagt að kalla gutlið svifryk og halda á því sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar. Nú, ef rétt reynst að þarna sé um gambra að ræða, að vísu nokkuð misheppnaðan, þá má bæta hann heilmikið með því að hella góðum slurk af brennsluspritti saman við hann, og Borgarstjórnar-Marta og öll borgarstjórnin gætu farið á húrrandi fyllirí í Ráðhúsinu. En hún getur líka, með góðum árangri, blandað svifryksvökvann með brennslusprittskogara þó hann sé gerjað rónahland eða skólp upp úr skúringafötunni.

 


mbl.is Mætti með svifryk í pontu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband