Leita í fréttum mbl.is

Og hafa fyrir íþrótt að kokkála hvurja aðra

Strákar að slástAlltaf virkar það jafn kúnstugt þegar smágoggar, auðvaldsinnaðir péníngatittir, rjúka í hár saman út af einhverju sem skiptir litlu eða engu hvað varðar daglegt líf fólksins í landinu. Ekki fer miklum sögum í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum af slagsmálum þessara péníngahana á vertshúsum landsins, en sjónavottar segja að gaman sé að horfa á þessa vesalinga reyna að berja hverjir á öðrum, slefandi og bölvandi. Þá hefir löngum verið mikil íþrótt hjá péníngafurstum og aftaníossum þeirra að kokkála hvurja aðra með tilþrifum og er þá oftast heilmikið líf í tuskunum.

Einusinni gekk slagurinn hjá þessum péníngadrifnu endemum út á hvur væri ,,Baugspenni" og hver ekki. Í annan tíma snöru kvikindin bökum saman og stungu bönkum, síma og ýmsu öðru smálegu í rassvasann; þeir komust upp með ránskapinn en svo vóru þeir stórtækir að allt fór á hausinn og þá rifust hinir pénígasjúku þrælar hverjum um væri að kenna og klöguðu hvurn annan um þjófnað og undanskot. 

Og nú rífst fyrrum kommisar Sjálfstæðisflokksins í verkalýðshreyfingunni við hr. Mogensen, sjálfsagt að undirlagi einhverra, sem vilja fíflinu á foræðið etja eins og segir á helgri bók, eins og grimmur kjúklingshani út í hr. Mogensen flugkappa. Nú, hr. Mogensen rífst á móti, ekki vantar það, en aunginn hefir hugmynd um hversvegna villudýrin eru að þvarga og slást í fjölmiðlum. Flugfélag flugkappans fór á hausin í ,,heilbrigðri samkeppni" eins og péníngamennirnir kalla það af andlegri fátækt sinn. Og það þarf varla að slást mikið út af því gjaldþroti fremur en öðrum sem auðvaldsgripirnir stofna til.


mbl.is Stefán Einar boðar frekari gögn um WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband