Leita í fréttum mbl.is

Andstyggilegt framferði sauðkindar á Snæfellsnesi í dag

x29Í dag lagði ég land undir fót og ók hátt í þjúhundruð og þrjátíu kílómetra, það er að segja: frá heimili mínu í suðausturátt og til baka aftur. Á leið um sunnanvert Snæfellsnes ók ég fram á sauðkind sem bar sig einkennilega í vegkantinum en álengdar stóðu lömb hennar tvö og horfðu stjörf á atferli móðurinnar. Þegar ég kom nær sá ég að ærin studdi með öðrum framfæti sínum ofan á hálsinn á fugli, líklega hettumávi, og reif áfergjulega kjöt frá beini á fórnarlambinu munnur hennar var blóðugur eins og á einu leóni í Afríku sem veitt hefir hvítan trúboða sér til matar.

Ég stöðvaði bifreið mína til að geta virt þennan atburð betur fyrir mér, en ég hefi aldrei heyrt um það áður að sauðfé jagaði sér fugla til að éta. Þegar ég opnaði bílinn og sté út hvæsti kindin að mér eins og grimmt rándýr og það var kaldur arnarsúgur í því hvæsi, en lömbin færðu sig fjær, áreiðanlega yfirbuguð af ógeði á framferði móðurinnar. Og skjátan hélt áfram að graðga mávnum í sig af einhverjum óskiljanlegum losta þar til fátt var eftir af hinum látna annað en stélið, vængirnir, hausinn og goggurinn. Eftir að hafa sleikt vel og vandlega út um eftir máltíðina tók rollan sig til og hneggjaði sem hross um leið og hún lyfti sér upp á afturlappirnar.

Þegar ég settist aftur upp í bifreið mína, nær friðlaus og lémagna af viðbjóði, sá ég útundan mér að ærin var farin að skima kringum sig eftir fleiri fuglum til að éta. Í bakaleiðinni sá ég hvorki tangur né tetur af þessari kostulegu sauðkind eða lömbum hennar, en vængirnir af hettu mávnum voru á sínum stað í vegkantinum og báru græðgi og íllsku sauðfjárkynsins ófagurt vitni. Þegar heim kom var fyrsta fréttin sem ég heyrði í útvarpinu um einhvern mannfjanda í Hong Kong sem þykist vera kominn með kóvíð nítjánda í annað sinn á nokkrum mánuðum, en sem betur fer er Kári þeirrar skoðunar að slíkur þvættingur sé álíka gáfulegur og framganga kindarinnar á sunnanverðu Snæfellsnesi sem át hettumáv í vegkanti í dag. 


mbl.is „Ekki sönnun á nokkrum sköpuðum hlut“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Góð saga - og miðað við hluti sem ég kynntist í sveitinni hjá ömmu, trúverðug. Þetta er þekkt með kindur, en manni þykir það ávallt jafn spánskt.

Bjánabólan er hins vegar ekki aðeins ótrúverðug, hún er sönnun á sálfræði sem er best sniðgengin. Vona að það móðgi engan, tja, fáa.

Guðjón E. Hreinberg, 24.8.2020 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband