Leita í fréttum mbl.is

Ókennilegur sjúkdómur herjar líka á fjölskyldu frú Ingveldar

dog5Jú, þetta er vissulega dularfullur sjúkdómur í kynfærum hundsins, ekki er að efa það. En sennilega er best að láta dýralækna, þó ekki þennan í samgönguráðuneytinu eða vinkonu hans í Vegagerðinni, um að greina og lækna hundsspottið. En þó þetta sé íllt allt og bölvað og Matvælastofnun komin með lúkurnar í kynfærin á hundinum þá má alltaf hugga sig við að þeir félagarnir Kolbeinn Kolbeinsson, flokksbróðir samgönguráðherra, og Indriði Handreður fengu báðir kóvíð-níjándavírus í leyndarlimi sína.

Auðvitað þjáðust þeir félagar, Kolbeinn og Handreður, afskaplega mikið, enda einskorðaðist veikin í þeirra tilfelli við miðvígstöðvarnar og mátti segja að þeir engdust sundur og saman af óslökkvandi kvölum í hart nær viku, en þá vóru þeir svæfðir uppi á spítala og þurfti hrossameðal til að ná þeim alveg niður. Frú Ingveldur varð æf þegar hún komst að því hvurnig í pottinn var búið og kenndi Máríu Borgargagni um, hún hefði lagst í óleyfi með viðbjóðslegum péníngaróna og smitað síðan Handreð mann sinn og einnig Kolbein, en það hafði hún ekkert leyfi til að gera. Þess vegna gerðist það að frú Ingveldur kom vinkonu sinn að óvörum, hvar hún var stödd í mikilli verslunarmiðstöð í höfuðborginni, þreif til hennar og dró hana á hárinu um gólf og ganga og linnti ekki sókninni fyrr en Borgargagnið hafði misst niðrum sig. Þetta var ljót uppákoma og fengu sjónarvottar, allir sem einn, áfallahjálp hjá áfallafróðum spesíalístum.

En leyndarmálið um krankleik hundanna er enn óleyst. Varla hafa þeir fengið kóvíð nítjánda í æxlunarfærin? Eða hvað? Hvur fjandinn kom fyrir fjölskyldu frú Ingveldar? Og nú er Brynjar Vondalykt búinn að vera með ógnarskitu í mánuð og er orðinn eins og tálguð fjöl; frú Ingveldur hefir áhyggjur af heilsufari hans, telur hann í lífhættu, líka Sjálfstæðisflokkinn. Og nú er hann byrjaður að gelta.


mbl.is Ill meðferð á hundum kærð til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband