Leita í fréttum mbl.is

Reimd telpa með vörurnar fram; einnig af Andrési morðingja og afturgöngu hans

barnafangelsiVissulega er telpan með vörurnar fram og bæði yndislega brún í framan af ókunnri ástæðu. En það er þetta með fangelsið sem hjúin ætla að láta loka sig inni í, en það er samkvæmt mbl.is, ,,reimdasta" tukthús í heimi, hvað sem það nú þýðir. Reimað fangelsi er eflaust mjög fullkomið, en hvort það er fangelsishúsið sjálft sem er reimað eins og skófatnaður, eða hvor fangarnir eru með einhverri aðferð reimaðir saman eða vafðir eins og rúllupylsur er ómögulegt að gera sér grein fyrir. 

Af greininni af parinu, sem eru svo brún í framan og hnátan með vörurnar fram, má einna helst skilja, að það séu jafnvel afturgöngur í fangelsinu sem þau ætla að láta læsa sig inni; sennilega ætla þau að freista þess að reyna að reima eins og eina afturgöngu og halda svo sýningar á henni og selja dýrt inn. Það vantar víst ekki græðgina hjá svona ofurhugum, en það er líkast til annað mál.

nautForföður frú Ingveldar, Andrési morðingja, sem uppi var á nítjándu öld, tókst eitt sinn að fanga afturgöngu, sem hann hafði heim með sér. Afturgönguna gjörði Andrés að varðmann og lífvörð hjá sér og var óspar á að nota hana gegn óvinum sínum. Hjónin á Lómabakka, Andrési var í nöp við, fengu heldur en ekki að kenna á afturgöngu hans, en þau fundust bæði steindauð í baðstofunni heima hjá sér og var til þess tekið að ekki eitt einasta bein hefði verið óbrotið í kroppum þeirra. Svo kom sýslumaðurinn með karska búhnubba úr sveitinni með sér og hugðist taka Andrés morðingja höndum. Þá sendi Andrés afturgönguna á sýslumann og lauk þeim viðskiptum með því að afturgangan kyrkti sýslumanninn eins og andarstegg með greip sinni. Búhnubbarnir lögðu umsvifalaust á flótta þegar þeir sáu að sýslumaður þeirra var örendur, en afturgangan elti þá og vann á tveimur þeirra og þeim þriðja nauðgaði vomurinn til óbóta. Þennan forföður sinn hefir frú Ingveldur löngum haft í hávegum og segir, að frá honum hafi hún stórbrotið geð sitt og hæfileika. Aunginn veit hvenær Andrés morðingi andaðist, því það er eins og hann hafi gufað upp án þass að nokkur tæki eftir því. Það er trú manna, þar á meðal frú Ingveldar sjálfrar, að Andrés hafi andast inn í griðung sinn, fimmvetra stólpagrip, sem hvarf líka, þá tvítugur að aldri, eins og hann hefði verið uppnuminn. Þá griðungurinn gjörðist ósýnilegur, hafði hann orðið tveimur húsfreyjum og einum niðursetningi að bana. 


mbl.is Láta læsa sig í „reimdasta“ fangelsi í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband