Leita í fréttum mbl.is

Náði aungvu prófi og féll með skömm. Endaði loks inn til dala hjá grunsamlegum framsóknarbónda

ing1Já, hún ferðaðist, eða öllu heldur flæktist, vítt og breitt á menntiskólaárunum, enda náði hún aungvu prófi og féll með sérstakri skömm. Á tímabili ræddu yfirvöld fjálglega um að leggja fram kæru á þennan vanmetaungling fyrir skróp og að draga dár að menntamálakerfinu. En á síðustu stundu var hætt við málaferli, en þá var sú stutta lent úti á galeiðunni og farin að drepa tittlinga framan í betra fólk og svara öllu út í hött eins og tunglsjúkur sálfræðingur. Auðvitað var þetta dapurt fyrir foreldrana, sem fóru að haga sér óskikkanlega eftir því sem leið á menntiskólanámið hjá dömunni.

Þó kastaði tólfunum þegar hún komst í kynni við frú Ingveldi og Kolbein. Telpan fór sem sé að sækja helgarsamkvæmin þeirra hjóna og þá má segja að kertið hafi byrjað að brenna í báða enda. Hún gjörðist líka fylgikona Brynjars Vondulyktar og skrapaði botninn þar til hann var orðinn eins og gatasigti. Svo tók frú Ingveldur hnátuna sér til handagagns og hýddi hana stórhýðingu vegna þess að hún hafði komið að stelpunni og Kolbeini Kolbeinssyni í innilegum faðmlögum í miðstöðvarkompunni. En Kolbein eiginmann sinn sló frú Ingveldur harkalega í rot við þetta tækifæri og mátti hann dvelja að sjúkrahúsi í margar vikur á eftir af því honum hafði nær því blætt út, auk þess sem hann var lengi ringlaður í kollinum eftir blíðuatlotin þessa nótt.

fullur3Eftir að menntiskólanámið hafði runnið eins og seyra út í sandinn og fordjarfað umhverfið, fór hin mislukkaða menntafrauka eitthvert út í loftið og spurðist ekki til hennar um hríð. Svo kom upp úr dúrnum að hún var sest upp hjá einsetukarli, sóðalegum mjög, einhvers staðar lengst upp til dala norðanlands. En á undan hafði hún verið skipsjómfrú á spánsku skipi, sem komið hafi inn til hafnar á Hvammstanga, en þar steig jómfrúin á land og hafnaði, sem fyrr segir, hjá einsetukarlinum. Karl þessi hefir alla sína hundstíð, og það er hundstíð, kosið framsóknarflokkinn og lifað mest á skyri og brennivíni, en lambkettlingana lagði hann einlægt inn hjá kaupfélaginu. Margir höfðu, sem vonlegt er, illan bifur á mannkertinu og og litu hann illu auga og grunuðu hann um herfilegustu glæpi, verður ekki nánar farið út í þau ósköp hér. En okkar stúlka er, þegar öllu er á botninn hvoft, starfandi griðkona hjá hinum grunsamlega framsóknarmanni, langt frammi í dalsbotni og kveðs gera það gott.  


mbl.is Með ljón á hælunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband