Leita í fréttum mbl.is

Þegar Wíllúm var skólasnáði voru barnaflengingar Jóns Læknis enn við lýði

sira1.jpgÞað var ekki í síðustu viku og ef til vill ekki í næstu viku, en eitt er víst og það er að umræddur atburður gerist einhvern tíma. Hitt er annað, að þá Wíllúm var lítill drengur og fram á unglingsár hans voru barnaflengingar við hafðar í öllum betri skólum landsins. Verkefnisstjóri var Jón Læknir, en hann hannaði þjónustuna og stjórnaði oftast flengingunni. Þegar fram í sókti, bjó Jón Læknir til rassskellingarvél og not við þá smíði aðstoðar Árna bróður síns, sem var tæknifræðingur og járnsmiður. Árni þessi féll frá á mjög dularfullan og andstyggilegan hátt.

Í sjóþorpum landsins boðuðu barnaverndarnefnd og skólanefnd til barnaflengingar ásamt með barna-og unglingaskólanum til aðgerðarinnar, oftast í slægingarsal frystihússins eða á bílaþvottaplaninu ef froststillur voru. Jón Læknir sat sjálfur á stól og kaghýddi hin óþekku börn með hrísvendi eða með berum lófa upp úr jökulköldu vatni. Eftir að rassskellingarvélin var tekin í notkun var krökkunum rennt inn um annan endann á maskínunni og en við hinn endann beið Jón Læknir og handflengdi þau börn sem þurftu átakanlegast á slíkum vinnubrögðum að halda. Verstu börnin, þau er voru tryllt af óþekkt og óknyttasömu líferni, reyrði Jón Læknir við staur og lúskraði á með hnútasvipu úr snæri undir stöðugu kaldavatnspusi.

Þann tíma er barnaflengingar voru hluti af uppeldis- og skólastarfi þóktu þær skila mun þægari og lærdómsfúsari börnum en nú tíðkast. Í dag þykir ekki tiltökumál að börn standi uppi í hárinu á kennurum, brúki við þá klámfenginn ruddakjaft með tilheyrandi bölvi og ragni, eða gangi í skrokk á þeim með hnefahöggum, spörkum og klóri og bíti þá líka til skaða hvar sem þau koma tönnum á kennarann. Í gamla daga dugði vel heppnuð barnaflenging upp undir ár í góðri hegðan og kristilegu framferði skólabarna. Svo sem sjá má af þessari reynslu af barnaflengingum Jóns Læknir er fullt tilefni til að taka þær upp aftur. Sjálfur er Jón læknir kominn fast að níræðu, en er einstaklega vel ern og kveðst tilbúinn að stjórna barnarassskellingum af sama þrótti og forðum þegar hann hefir smurt vélar sínar og mótora og gangsett þær. 


mbl.is Við hverju má búast í næstu viku?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband