Leita í fréttum mbl.is

Það er erfitt að vera fernut ... Sagan af því hvernig Frank fernut. lenti í hjólastól

mjólkÞá mer varð litið á fyrirsögn fréttarinnar um Íslensku tómlistarverðlaunin hér á síðunni kom strax upp í hugann sá næstum gleymdi öðlingur Frank Fernutittlingur. Á unga aldri nam Frank þessi mjólkurfræði í Tékkóslóvakíu og gjörðist eftir nám mjólkurfræðingur og hálfgerður vandræðamaður hjá mjólkursamsölunni. Vandræði þau sem stöfuðu af Franki karlanganum voru þau helst, að hann var undirróðursmaður og trekkti aðra mjólkurfræðinga hvað eftir annað í verkföll, auk þess sem hann var einkennilega kvensamur og staupaglaður.

Viðurnefni sitt fékk hann frá þeirri göfugu kvenkind, Máríu Borgargagni, sem kallaði Frank djöfulsins, helvítis fernutittling eftir að hann sveik hana í ástum fyrir margt löngu. Fljótlega varð uppnefnið fast við Frank og er nú eins og virðulegt ættarnafn aftan við hans virðulega eiginnafn: Frank Fernutittlingur. Og hvað meira? Jú, hann lét fallerast af frú Ingveldi, rétt um það bil sem hún fór að búa með Kolbeini Kolbeinssyni og hafnað með þeim hjónum í sjálfu hjónarúmi þeirra. Það byrjaði nefnilega snemma hið ljúfa líf hjá frú Ingveldi og Máríu stallsystur hennar.

mjólk2En ef vér víkjum örlítið aftur að Frank Fernutittlingi, þá fór heldur böngulega fyrir honum. Eftir að hafa komið enn einu mjólkurfræðingaverkfallinu af stað með snotrum undirróðri var svo seinheppinn að falla með konu yfirboðara síns, sem hefði verið í góðu lagi ef yfirboðarinn hefði ekki komið að þeim þegar hæst stóð í stönginni. Eftir það var öllum hans umsvifum lokið, því síðan hefir hann mátt halda til í hjólastóli á einhverju sambýli fyrir örkumla fól. Fyrir nokkru síðan sá frú Ingveldur karlaumingjann hann í Frank í hjólastólnum sínum fyrir framan spilakassa á alræmdri kasínóknæpu, og þá gat hún ekki stillt sig um að víkja sér snöggt til og skella hjólastólnum á hliðina svo ósjálfbjarga Fernutittlingurinn skondraðist eins og beyglaður mjólkurbrúsi undir næsta borð. Síðan hefir það verið orðatiltæki þarna á knæpunni það sé erfitt að vera fernutittlingur. 


mbl.is Marína og Magnús með fernu hvort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband