Leita í fréttum mbl.is

Skelkað kallkjökur á leið í Alþingishúsið

hræddurÓjá, - í fyrramálið, kl. 09:00, verður Davíð Oddsson leiddur eins og húðarjálkur inní Alþingishúsið og látinn standa fyrir máli sínu. Mikið held ég kallkjökrið verði skelkað þegar það kemur á þann stað sem var vettvangur mótmæla sem gengu milli bols og höfuðs á 1000 ára frjálshyggjuríki Davíðs Oddssonar, Hanezar Holmstone, Halldórs Ásgrímssonar og Jóns Baldwins Haníbalssonar. Og ekki held ég bæti úr skák ef vígreifir mótmælendur verða á stjái á hlaði Alþingis þegar seðlabankakónginn ber að garði; þá er viðbúið að eyminginn svorni verði fyrst alvarlega hræddur.

Sagt er að þegar hermenn lenda í snörpum bardaga í návígi, geri þeir ævinlega í buxurnar án þess að vita af því; komast bara að því þegar orrustunni er lokið að þeir eru með blautan botninn.

Ég vænti þess að í fyrramálið, þegar líða fer á morguninn, fái þjóðin nákvæmar fréttir og í smáatriðum af innreið Davíðs í Alþingishúsið.  


mbl.is Seðlabankastjórar funda með viðskiptanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Ertu með staðfestingu á að fundurinn fari fram þarna??

Þórbergur Torfason, 17.2.2009 kl. 02:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband