Leita í fréttum mbl.is

Á móti öllu, sem til framfara og þjóðarheilla horfir

bjorn1_871977.jpgÞað er öllum vitibornum mönnum fjandans sama hvað stjórnarandstöðuundanrennunni finnst um skattabreytingaáform ríkisstjórnarinnar. Þessi svokallaða stjórnarandstaða hefur stimplað sig rækilega inn sem Fúll á móti, er á móti öllu, einkum því sem til framfara og þjóðarheilla horfir. Það er erfitt að átta sig á af hverju stjórnarandstöðufólkið er svona óskaplega þreytt og stirt á geðsmunum; hver fýlupokinn uppaf öðrum angandi af neikvæðni og útboruhætti þusandi uppúr sér þurkuntulegum fúkyrðum og klóakfrösum, er ekki beinlínis uppörfandi fyrir þjóð, sem er að drepast úr timburmönnum eftir hart nær tveggja áratuga frjálshyggjufyllirí.

Þó er indælt, að Þráinn Bertilsson og þingskörungurinn Margrét Tryggvadóttir, skuli hafa náð saman í andstöðunni við skynsamlegt og réttlátara skattakerfi. Máske verður Borgarahreyfingin endurreist innan tíðar með faðmlögum og frönskum kossum.

Um hina syfjuðu leiðindadurga, Bjarna Ben og Sigmund Davíð, þarf ekki að fjölyrða: Þeir eru svo gjörsamlega á móti öllu, að varla er hægt að merkja að þeir séu af þessum heimi.


mbl.is Ekki sátt við skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Það má nú ekki hækka skattana á þá Sigmund og bjarna, þú sást það sjálfur þeir eiga ekki lengur fyrir rakvélablöðum, Þráinn hefur aldrei átt svoleiðis enda bara á listamannalaunum

Sigurður Helgason, 19.11.2009 kl. 16:49

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það verður seint sagt um þig, að þú flokkist undir að vera Fúll á móti, því nánast hver einasta færsla frá þér geislar af kátínu og ást á samborgurum þínum.

þú skrifar:  "Þessi svokallaða stjórnarandstaða hefur stimplað sig rækilega inn sem Fúll á móti, er á móti öllu, einkum því sem til framfara og þjóðarheilla horfir."

Hvernig verður skattahækkanabrjálæði ríkisstjórnarinnar, bæði varðandi beinu skattana og ekki síður óbeinu skattana, til framfara og heilla fyrir þjóðina?

Axel Jóhann Axelsson, 19.11.2009 kl. 16:51

3 Smámynd: Haraldur Pálsson

Ótrúlegar fullyrðingar hér á ferð Ragnar að halda því fram að hér sé um framfarir að ræða og hvað þá þjóðarheill.
Grátlegt að heyra að einhver skuli fyrir alvöru halda að svo sé.

Með þessum sköttum er einungis spillingarliði þjóðarinnar ýtt á hærri stall meðal borgara.

Þeir sem tóku allt af lánum, þurfa ekki að borga eignarskattana því þeir skulda svo langtum meira en þeir eiga! (Sukkararnir sjálfir sem tóku allt að láni)
Þeir hinir sömu þurfa ekki að greiða fjármagnstekjuskattinn þar sem skuldir eru yfir öllu draslinu og engir peningar á þeirra reiðu hönum.

Þannig þeir sem fóru ekki út í allra mesta sukkið og yfirskuldsettu allt draslið til að koma okkur í það ástand sem við erum, heldur fóru varlega og sníðuðu sinn stakk eftir vexti. Lögðu jafnframt eitthvað til hliðar, það er sett á þá að borga allt draslið. Þeir sem skynsamir voru þurfa því nú að borga eignarskatt og fjármagnstekjuskatt...

HAHAH hvar er hvatningin!..

Og ef þú ætlar að halda því fram að hér sé um þjóðarheill að ræða þá er ekki alveg í lagi með þig.

Haraldur Pálsson, 19.11.2009 kl. 17:05

4 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Flottur pistill Jói. Bara smá ábending til Sigurðar Helgasonar varðandi blankheit Sigmundar Davíðs. Eftir holdafarinu að dæma líður hann engan skort.

Þráinn Jökull Elísson, 19.11.2009 kl. 17:48

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Flottur Jói

Það er alveg ljóst að fíflin sem lækkuðu skatta í góðærinu vilja ekki fara að hækka þá í hallæri.

Það er ljóst að ráðstafanir ríkisstjórarinnar kemur illa við marga en það er alveg víst að verra hefði það verið ef Íhald og Framsókn hefðu verið við stjórn, þá hefðu fleiri fengið að finna verulega fyrir því. Sjálfgræðgisflokkurinn hefur alltaf verið í hagsmunagæslu fyrir þá ríku og það munu þeir vera um ókomna framtíð.

Verst er að það eru svo margir sem halda sig tilheyra þeim ríku, eða að vera í liðinu með því að kjósa þá.

Man eftir þessum týpum í skóla sem alltaf hengu utan á þeim sem voru svo heppnir að eiga ættmenni á farskipum eða í flugi.  Það var svo flott að fá amerískt tyggjó, appelsínur og epli allt árið um kring.

Ég þoli ekki snobbhænsn!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 19.11.2009 kl. 18:38

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Fyrir utan að vera mafískur öfgaflokkur, er Sjálfstæðisflokkurinn gróðrastía samfélagslegrar úrkynjunar. Og það er sannarlega sorglegt, að sjá hve gott fólk getur orðið veikgeðja gagnvart sérhagsmunagæslu ,,höfðingjanna" og snobbinu og látið slíkt gleypa sig gagnrýnislaust með húð og hári.

Jóhannes Ragnarsson, 19.11.2009 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband