Leita í fréttum mbl.is

Óbermin og tíkarsynirnir úr veislum ,,ríka fólksins"

fokkGera þeir í tollgæslunni sér ekki grein fyrir því, að með því að taka þetta hálfa kíló af kókaíni af rúmenska burðardýrinu, eru þeir að svipta allnokkurn hóp ,,betri borgara" jólahressingunni, sem þeir höfðu hlakkað til að soga uppí trýnin á sér, jésúbarninu og nýju ári til dýrðar?

Fram að þessu hefur kókaín fyrst og fremst verið hið guðdómlega hressingarmeðal svokallaðrar yfirstéttar, enda er kókaín það dýrt að ekki er á allra færi að veita sér slíkan munað. Sagt er, að þegar darraðardans hrunalýðsins stóð hvað hæst, á árunum fyrir hrun, hafi þetta ógeðfellda fólk haldið margar veislur og krassandi þar sem helstu gleðigjafarinr voru kókaín og hvítvín.

En þegar veislunum var lokið, hvítvínið og kókaínið búið, þjóðin komin á bakið eins og afvelta sauðkind, þá varð allt fólkið í landinu að taka út timburmennina, fráhvörfin og deleríum tremensinn fyrir óbermin og tíkarsynina úr veislum ,,ríka fólksins." 

Hverskonar fólk er það, sem hafnar því, að byltingar sé þörf?


mbl.is Tekinn með kókaín í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Ójú, byltingar er þörf og þú ert búinn að ströggla um það núna í mörg ár. Eru búinn að áætlun um stofnfund og drög að reglum ef þær verða. Og svo kaffistofu í Hafnarfyrði auðvitað. Stillið upp Strákar!!

Wolfang

Eyjólfur Jónsson, 16.12.2009 kl. 00:52

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki er ég búinn að gera áætlun um stofnfund og drög að reglum. En hinsvegar veit ég um nokkra góðgjarna kalla og kellingar, sem eru búin að skjóta saman aurum fyrir nokkrum kössum af vélbyssum og handsprengjum!  

Jóhannes Ragnarsson, 16.12.2009 kl. 07:35

3 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Jú jú, ég er tilbúinn og í sæmilegu formi. Búinn að fá alla þá þjálfun sem til þarf hjá nágrönnum okkar,norðmönnum. 12,5mm var uppáhaldið þar sem ég var sá einu sem var nógu snöggur til að geta skotið einu og einu skoti en ekki 3 eins og hinir. Pang pang!

Wolfang

Eyjólfur Jónsson, 18.12.2009 kl. 18:09

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú færð að vera í fremstu víglínu, Eyjólfur, svo hjálpi mér Guð.

Jóhannes Ragnarsson, 18.12.2009 kl. 18:56

5 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Fremstu línu er allt í lagi vinur en ég þarf hjálparmenn með ammókassana ef með að drösla þeim upp á perluna en það náum við mestöllu svæðinu, flugvöllinn ,Örfisey, Reykjanesbrautin ,miklubrautina og hvað er þá eftir? Sjúss í barnum!!

Wolfang pang pang 

Eyjólfur Jónsson, 19.12.2009 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband