Bloggfærslur mánaðarins, mars 2016
8.3.2016 | 19:13
Nú horfir illa fyrir frú Ólafíu
Nú ríður á að frú Ólafía bíti eins og hákarlsvargur í skjaldarröndina og leggi í alsherjar leifturstríð við þessa Ástu Rut, sem titluð er stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, og kenna þeirri kvennsvift í eitt skipti fyrir öll hver sýslumaður er í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Ekki batnar ástandið þegar haft er í huga, að fólkinu sem borgar í lífeyrissjóðinn hefir alla tíð verið sagt að það eigi sjóðinn, sem auðvitað er bölvuð lýgi því svonefndir lífeyrissjóðir eru í eigu helstu máttarstólpa auðvaldsins í landinu og notaðir sem fjárfestingasjóðir fyrir þaulsetumennina í spilavíti kapítalismans.
Ef frú Ólafía lætur slag standa og ræðst til vopnaðarar atlögu við þessa Ástu Rut, þá mun hún ekki hafa annað útúr þeim bardaga en ,,slitna brynju, sunndrað sverð og syndagjöld." Syndagjöldin í því tilfelli verða sektir og embættismissir og útskúfun úr ríki Mammons. Frú Ólafía tekur aldrei þá áhættu að liggja eftilvill afvelta í svaðinu og flýja síðan í örvita skelfingu af vettvangi eins og niðurringdur og háfreyttur hænurass.
Það hefir ekki legið í láginni að frú Ólafía er náskyld ekki minni manneskjum en frú Ingveldi og Máríu Borgargagni. Frú Ólafía er snorkin af frændsemi sinni við nefndar heiðurskonur, elskar þær, dáir og tekur þær sér til fyrirmyndar í hvívetna. Því miður er frú Ólafía heldur lítilfjörlegur póstur við hlið frænkna sinna og er skemmst frá að segja að frænkurnar hafa lítið álit á frú Ólafíu, hafa hálfgerða skömm á henni og nota hana helst til að skúra híbýli frú Ingveldar eftir hin frægu helgarsamkvæmi á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra sem jafnframt er formaður skuggastjórnar Framsóknarflokksins. Það horfir því semsagt andskoti illa fyrir frú Ólafíu og fátt í spilunum fyrir hana annað en að halda áfram að ljúga því að skattgreiðendunum í Lífeyrissjóð verzzzlunarmanna að þeir einir eigi sjóðinn.
Segir Ólafíu seka um skuggastjórnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2016 | 20:49
Sennilega dáin úr uppgerð í köldu skúmaskoti
Sú var tíðn að læknar, skurðlæknar sem tannlæknar, reyktu tóbak inni á stofum sínum og voru jafnvel dálítið kenndir þegar þeir voru að starfa að sjúklingunum. Og svo merkilegt sem það er, þá drapst aunginn sjúklingur vegna áfengis- og tóbaksnotkunnar læknanna, en urðu þess í stað alsprækir og kenndu sér ekki meins í langann tíma á eftir. Þá má þess geta að fyrir daga heilsbótarmanna í hvítum sloppum á hvítmálaðri og sápuskúraðri stofu störfuðu ýmsar stéttir manna að lækningum svo sem eins og torflæknar, mykjulæknar og stólpíparar og unnu mörg eftirminnileg afrek við björgum mannslífa, - og vinna þau enn.
En nú virðist öldin önnur. Nú má læknir ekki lækna sjúkling, jafnvel þótt hann sé bráðveikur og að bana kominn, öðruvísi en að taka af sér höfuðfatið áður en lækningin hefst. Þvílíkur og annar eins déskotans þvættingur. Og rétt í þessu berast fréttir af læknisillyrmi, sem í þokkabót heitir ruddalegu rússnesku nafni, ef ekki úkranísku sem er öllu verra, sem bannað kvennmanni að vera með höfuðklút við að skera upp einhvern kláðagemling sem kominn var með skitupest. Það er eins og að banna mjaltkonu að stunda mjaltir með mjaltaklút á höfði.
Ef heldur fram sem horfir mun altt að sjálfsögðu fara til fjandans og mannfólkið verða að fullkomnum aumingjum, ef ekki krypplingum vörtur á andlitinu og brodda uppúr bakinu. En sem betur fer var læknisnefnan með ruddalega rússneska nafnið rekinn úr starfi fyrir rassisma eða eitthvað þessháttar. Hinsvegar fer fáum sögum að kvennskurðlækninum með skupluna á höfðinu; sennilega hefir hún dáið úr uppgerð í einhverju skúmaskotinu, yfirbuguð til sálar og líkama.
Neitaði að fjarlægja höfuðklút | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2016 | 19:54
Og velta þeim uppúr tjöru og fiðri
Hvurn fjandann á svona fréttaflutningur að þýða? Það er ekki nóg að rekja af handahófi upp talnarunur viðvíkjandi óánægju eða ánægju íbúa Vestmannaeyja þegar helstu niðurstöðum skoðannakönnunarinnar, sem um er fjallað, er hreinlega sleppt, ekki á þær minnst. Þöggun af þessu tagi hlýtur að falla undir lög um skoðannakúgun, pólitíska misbeitingu og mannréttindabrot. Það má vel vera að Eyjalingar gefi skít í Vegagerðina, Innanríkisráðuneytið, innanríkisráðherrann og Samtökin 78, en það eru bara hlutir sem okkur meginlandsfólki varðar andskotann ekki neitt um.
Í skoðannakönnun sem MMR gerði í Vestmannaeyjum kom nefnilega í ljós að 100 prósent Eyjammanna treystu Árna Johnsen og ekki færri treystu náfrændum hans, Sigfússonum. Þetta er meginniðurstaða könnunarinnar og það eina sem er að marka í umræddri könnun. Að halda öðru fram er ósammfeilin firra. Ef mönnm er umhugað að fela ást Eyjamanna á Árna Johnsen og Sigfússonum þá þeir um það, en þeir skulu vita að þeir eru á villugötum og fá um síðir að taka afleiðingunum af því.
Það er svo ljómandi gleðilegt að íbúar Vestmannaeyja skuli standa jafnt þétt við bakið á sínum mönnum sem raun ber vitni og óskandi væri að Íslendingar tækju þá til fyrirmyndar. Frú Ingveldur hefur lengi haldið því fram að helvítis íslendingsdjöflarnir hafi komið smánarlega fram við Johnsen úr Eyjum og Sigfússyni, rægt þá að ósekju, lagt á í einelti, reynt með öllum ráðum að gera úr þeim gráðug ómenni og forynjur. En nú er mál að linni. Íslenska þjóðin á að bregða sínu kvæði í kross og í stað þess að sproksetja Árna og Sigfússyni á hún að læra að elska þá og virða og greiða götu þeirra á allan hátt. Um leið á þjóðin að leggja í vana sinn að hrækja á Pírata, sparka í þá og velta þeim uppúr tjöru og fiðri.
Langflestir óánægðir með samgöngur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2016 | 12:51
Þjóðráð loddara og landsölumanna
Eðlis síns vegna, þ.e. krataeðlisins, er Samfylkingin vandræðaflokkur, ekki síður en óbótasamtökin sem nú skipa ríkisstjórn Íslands. Þetta virðist Helgi Hjörvar ekki gera sér grein fyrir, eða lætur eins og hann hafi ekki hugmynd um skítlegt eðli klíkunnar sem hann vill verða formaður fyrir. Það sem fyrir hinu kúnstuga kratastóði stjórnarandstöðunnar vakir er að nýta sér gott fylgi Pírata til að koma fullveldisafsali inní stjórnarskrána svo hægt verði að svíkja þjóðina inní auðvaldsbáknið ESB. Ekki er nú hugsjónin stærri. Píratasamtíningurinn er auðvitað tækifærissinna frjálshyggjukratafyrirbæri eins og hinar vandræðaklíkunnar í stjórnarandstöðunni, þannig að hr. Hjörvar gæti orðið að ósk sinni um framsal valds til erlendra þjóða og yfirþjóðlegs valds. Hinsvegar eiga kjósendur síðasta orðið, því stjórnarskrá skal afgreiða með þjóðaratkvæðagreiðslu, og þeir munu fella landráðatilræði kratastóðsins.
En hr. Hjörvar er hvegi banginn og telur sig geta gert Samfylkinguna aftur að breiðfylkingu. Nú er það svo, að Samfylkingin, ekki fremur en hinn últrahægrisinnaði Alþýðuflokkur forveri hennar, hefur aldrei verið nein breiðfylking. Um skeið köstuðu snarringlaðir og óánægðir kjósendur atkvæðum sínum á Samfylkinguna í von um réttlæti og betra samfélag. Sú von brást að sjálfsögðu og hinir óánægðu og ringluðu flæmdust til Píratana með stuttri viðkomu hjá Björtu framtíðinni hans Gvöndar okkar hérna Steingríms. Það sem fólk áttar sig ekki á er að allir flokkarnir sem sæti eiga á Alþingi eru harðkapítalískir í grunninn og þar af leiðandi er gjörsamlega óhugsandi að nokkur þeirra hyggi á grundvallarbreytingar á þjóðfélagsskipaninni. Yfirborðstrixin eru þeirra hugsjón, þannig að hinir óánægðu og ringluðu verða að halda áfram eyðimerkurgöngu sinni í leit að raunverulegum farvegi fyrir réttlæti og betra samfélagsformi.
Það er hinsvegar gáfulegt hjá hr. Hjörvar að stinga uppá fáum loforðum, og örstuttu kjörtímabili í þokkabót, fyrir næstu alþingiskosningar því þá er minna og færra fyrir hann og hina lukkuriddarana, loddarana og hugsjónaleysingjana í stjórnarandstöðunni að svíkja. Þetta er eiginlega þjóðráð fyrir fyrir fólk sem stendur ekki fyrir neitt nema gamla úrkynjaða kapítalismann, sem yfirstéttinni og krataskitunum þykir svo bráðnauðsynlegt að halda á lífi með öllum ráðum.
Vill fá loforð og stutt kjörtímabil | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2016 | 12:07
Búrtík Ríó Tintó góðgerðafélagsins hló og gelti
Það er áreiðanlega göfugt embætti að vera launuð búrtík Ríó Tintó góðgerðafélagsins á Íslandi og gelta hástöfum þegar húsbændurnir og frú Rist sigar henni á verkafólk. Ef ég skil rétt, þá strandar kjaradeilan í Straumsvík á atriði sem kostar Ríó Tintóið afar lítið í peningalegu samhengi og virðist miða eingöngu að því að niðurlægja verkafólk og traðka á réttindum þess. Þessvegna er geltið og spangólið í búrtíkinni sérlega aumkunarvert og setur hana á bekk með lágkúrulegustu vesalingum þjóðarinnar. Það er varla eftisóknarvert fyrir húsbóndaholla búrtík, hvað þá venjulegt fólk með sóma- og réttlætistilfinningu.
Nú má svo sem vel vera að í fljótu bragði og af órannsökuðu máli sé erfitt að sanna að útskipunargengið, sem saman stendur af frú Rist og frú Lýsis og fáeinum ógæfupersónum til viðbótar, sé það lélegasta í Evrópu. Hitt ætti að vera óumdeilt, að málstaður þessa makalausa gengis er mjög vondur og eflaust með því allra versta sem gerist í álfunni þrátt fyrir að gengið sé undurvel launað og frú Rist og frú Lýsis séu mikils metnar við háborð auðvaldsins.
Í gærkvöldi var mikið skálað fyrir útskipunargenginu frækna í Straumsvík og stóð það skálaglamm í alla nótt og stendur enn, þegar þetta er skrifað um hádegi á laugardegi. Það var meira að segja skálað sérstaklega í landabruggi til heiðurs búrtíkinni sem veislugestum þótti hafa staðið sig frámunalega vel í bardaganum við skítugu verkakallana sem hafa verið að steyta kjaft uppá síðkastið. Og Máría Borgargagn lýsti því hátíðlega yfir, þó hún væri bæði draghölt og ölmóð á þeirri stundu, að vel gæti hún hugsað sér að eiga þvílíka skepnu sem heimilisdýr.
Mótmælir ósmekklegum ummælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.3.2016 | 18:18
Útilokaður frá menningarlegum samskiptum
Það skiptir að sjálfsögðu aungvu andskotans máli hvað einhverjir Gylfar og Gvendar hreyta útúr sér í garð vel gerðra verkakvenna eins og frú Rist og frú Lýsis. Þessir labbakútar eru minna marktækir en lögregluþjónarnir Geir og Grani og þar með útí hött að elta ólar við garg þeirra og óráðsbull. Og ummæli þess efnis að þær stöllur í verkakvennamennskunni séu slakasta löndunargengi í Evrópu eru svo fráleit að aungvu tali tekur, en jafnframt þess eðlis að einsýnt er fyrrnefndar heiðursverkakonur láti kanna hvort munnsöfnur af þessu tagi standist meinyrðalöggjöfina.
Á þessari stundu er að hefjast gestamóttaka að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar hverjir heiðursgetir verða þær frú Rist og frú Lýsis. Má búast við miklum og ósviknum glaumi í helgarveislu þeirra sæmdarhjóna og látið vaða á súðum. Veitingar verða ekki af skornum skammti, allrasíst rennandi veitingar og afréttingar í fyrramálið með höfðingslegasta móti.
Það eina sem kann að skyggja á veislugleðina, fyrir utan vemmilega tilvist Gylfa, Gvendar, Geirs og Grana, er að Máría Borgargagn er er draghölt þessa daganna eftir ómannúðleg rekkjubrögð Indriða Handreðs við hana. Viðbúið er að Handreðurinn verði látinn gjalda fautaskapar síns í veislunni og hann útilokaður frá öllum menningarlegum samskiptum við heiðursgestina frú Rist og frú Lýsis.
Slakasta löndunargengi í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.3.2016 | 17:11
Vel launuð hafnarvinna er eftirsótt og komast færri að en vilja
Loksins kom að því að útskipunarvinna varð hálaunastarf og eftirsótt af fólki sem ekki hreyfir litlafingur nema það hafa margar milljonir á mánuði í laun. Það er ekki nema dásamlegt að verða vitni að því að glorulegir milljonúngar eins og Rannveig Rist og aðrir af hennar kalíberi skuli streyma fram á kæjann til að skipa út og komast víst færri að en vilja, og liggur hvað eftir annað við handalögmálum því allir milljonúngarnir vilja í útskipun um þessar mundir.
Nú ku frú Rist, sem er undir miklum áhrifum frá frú Ingveldi, vera búin að fylla heilt skip af vörum til útflutnings og mun dallurinn brátt láta í haf með hróður hennar gráleitan til framandi landa. Það skiftir auðvitað aungvu máli þótt Gvendur vélstjóri bölvi og ragni frú Rist og hennar útskipunargengi niður fyrir allar hellur, en sá piltur hefur aldrei getað samið fyrir sitt fólk um jafn góð laun og frú Rist hefur. Hann ætti að hafa vit á að hundskast til að loka á sér þverrifunni og skríða með skottið milli lappanna niður í kjallarann heima hjá sér og koma þaðan aldrei út aftur.
Eftir vaska framgöngu frú Rannveigar Rist á bryggjukantinum undanfarið er hún, samkvæmt yfirsýn bestu manna og kvenna, sjálfkjörin á Bessastaði. Hinsvegar er forsetaembættið illa launað starf og skítslegt miðað við þau laun sem þessa daganna eru greidd á eyrinni í Straumsvík, þannig að það er lítt freistandi fyrir eðalfrúr eins og frú Rist, en fullgott fyrir gluggasrautsdömur eins og formann VG og þessháttar drósir.
Með milljónir í laun við útskipun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Þá tók Drotin Allsherjar í taumana
- Afmælisdrápa
- Nú er stuð á Mogga við að flagga nýju nytjatelpunni
- Stand á dómgreindarlausri hjörð. Annir og áskoranir fram undan.
- Málaliði frá Kvikubanka. Merkisburður jafnaðarmennsku. Og sam...
- Af vettvangi dagsins
- Rottustofnarnir hafa náð sér blessunarlega á strik upp á síðk...
- Brúarlandsundrið lætur til sín taka. - Áskorun á Bjarna Jónss...
- Hlægilegasta fyrirbrigði íslenskrar stjórnmálasögu
- Hafa lengi komist upp með að villa á sér heimildir
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 10
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 122
- Frá upphafi: 1513044
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 108
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007