Leita í fréttum mbl.is

Ískalt mat á kynferðisafglöpum

Þegar Kolbeinn lagði ískalt mat á kynferðisafglöp sín, komst hann að þeirri niðurstöðu að það væru margir honum verri á þeim vettvangi, og þar með væri statusinn hjá honum sjálfum á harðla góðu róli. Að svo búnu fór Kolbeinn að leggja á ráðin með sjálfum sér hvenær hann kæmist næst á vertshús með kvennaþjónustu, án þess að frú Ingveldi grunaði neitt eða kæmist að neinu. Síðast þegar hann fór á stúfana, hafði hann lent á kvenvargi sem var sérhæfð í þeirri álmu rómantíkurinnar sem heitir BDSM á fagmáli. Þessi bölvaður kellíngarvargur hafði leikið hann svo grátt að minnstu munaði að allt kæmist upp því hann hafði ekki getað hugsað sér ástarlíf með frú Ingveldi eiginkonu sinni í hálfan þriðja mánuð og vakið með því upp grun hennar um nú væri einhver andskotans maðkur kominn í mysuna Kolbeins. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband