Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú ekkert miðað við aðra og stærri hýðingu

fleng_903116.jpgÉg gef nú lítið fyrir þessa sextíu vandarhögga rassskellingu, sem sádíarabíufrúin á að fá fyrir að laða fram tungutak ljóta klámkarlsins þar eystra, í samanburði við stórhýðinguna sem frú Ingveldur veitti Kolbeini eiginmanni sínum Kolbeinssyni fyrir litla sem enga sök. Kolbeini varð það semsagt á að pissa svefndrukkinn um hánótt inní fatakáp í svefnherbergi þeirra hjóna af því hann hélt hann væri staddur fyrir framan klósettskálina. Læknarnir sem Kolbeinn leitaði til eftir útreiðina, voru alveg sammála um að Kolbeinn hefði mátt þola að minnsta kosti 500 vel útilátin högg með berum, flötum lófa á bak og rassakinnar af hálfu eiginkonu sinnar. Þess má einnig geta, að í annað skipti lúbarði frú Ingveldur Kolbein með blautum kaðalspotta fyrir að missa niður blásvarta málningu á útidyratröppurnar. Eftir þá ráðningu lá Kolbeinn í rúminu í mánuð.
mbl.is Húðstrýkt vegna sjónvarpsþáttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband