Leita í fréttum mbl.is

Og hún reis upp frá roti og tráma og talaði tungum

full3Undir kveld reis forsætisráðherra upp úr rotinu, kumrandi og stynjandi og talaði tungum (stundum tveimur, stundum þremur, fjórum eða fimm), rám af tráma og gráma. ,,Styrkir fætur" eru henni hugleiknir nú um stundir, sem og ,,náin samtöl", en þó ekki of náin að hennar sögn og upplýsti að þau tvö hefðu átt fyrirmyndarsamtal í sjálfum svefnrofunum laust fyrir klukkan hálfsjö í morgun.

Þá vekur nokkra athygli hve forsætisráðherra rómar mjög afsögn fjármálaráðherra, eins og hún hafi ekki átt neina ósk heitari en að sá náungi hefði sig á brott eða félli fyrir björg. Ennfremur kom þar tungutali forsætisráðherra að nú hugleiddi hún mjög stíft að ganga formlega í Sjálfstæðisflokkinn, þar ætti hún formennskuna vísa og hún væri rúmlega viss um að það agnarlitla sem enn er eftir af VG muni fylgja henni inn í Valhöllu eins og eins og þeir heilalausu undanrennukjúklingar sem þeir eru. Og Stenngrimur og Álfheiður eru klár til brottfarar.

Nú hefir það sem sé gjörst, að fjármálaráðherra, Engeyingurinn væni, og formaður deildarinnar í Valhöllu, féll fyrir sendingu einhvers umboðsmanns og skondraðist fram af hengifluginu, fyrir spillingu að manni skilst. Hins vegar er álitamál hvort slysfarir Engeyingsins hafi nokkur áhrif til eða frá, önnur en þau að búrtíkur Valhallar og skrímsladeildir verða sendar á vettvang til að freista þess að bjarga hinum fallna fjármálaráðherra frá eilífri glötun með gjammi, gelti, bölvi, hártogunum, lygum og ranghugmyndum þar til ístöðulaus lýðurinn fer að trúa því að Bjarniben sé hvort tveggja í senn: kórdrengur og sunnudagaskóladrengur í hreinum nærbuxum og með burstaðar tönnur.



 


mbl.is Ríkisstjórnin stendur styrkum fótum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleitt heilsufar og yfirvofandi refsingar

fullÞað var víst ekki géðsleg aðkoman í forsætisráðuneytinu þegar Bjarnaben og ráðsmann Framsóknarmaddömunnar bar þar að garði í dag. Forsætisráðherra lá í gólfinu í stanslausu öngviti og kringum hana tipluðu helstu flokkseigendur VG þess albúnir að veita henni hinar poletisku nábjargir. Lyktin þar á kontóri forsætisráðherra var að sögn bæði með eindæmum og endemum; búið var að selja upp í teppið og greinilega höfðu landabruggsgambri og áquavíti verið haft um hönd og sennilega laxeroil og uppsöluméðal því til viðbótar. Ástæðan fyrir hörmulegu heilsufari forsætisráðherra er að sjálfsögðu yfirvofandi starfsmissir með tilheyrandi skít og skömm.

Þegar Bjarniben og ráðsmaðurinn voru spurðir hvert þeir væru að fara, svörðu þeir loðið og út í hött. En tilþessráðinn flugumaður, sem hélt í humátt að eftir þeir, staðhæfir að þeir hafi haldi beint á fund Sigmundar og Beggó og frú Sæland. Nú skal freista þess að lengja líf ríkisstjórnarinnar án VG með Klausturbræðrum og upptíningi frú Sælands. Það held ég verði þokkalegur grautur atarna.

Aftur á móti er frú Ingveldur búin að ákveða sig varðandi piltinn Bjarnaben; hún mun finna þrælinn í fjöru, leysa onum hann og kaghýða þar til hann öskrar og æpir á alla heilaga. Þannig fór hún með Sigmund ábóta að Klaustri eftir að hann hafði klúðrað öllum sínum málum í Wintris og Klaustrinu. Fyrir vikið rak gamla géðbilaða Framsóknarmaddaman Sigmund endanlega af höndum sér, sagi honum blátt áfram að fara til Helvítis og bauð ráðsmanni sínum að stinga bölvuðu endeminu með höfuðið á undan ofan í Fjóshauginn. En Kvikuprinsessan er komin í ballfötin og setja á sig gullrassaskóna.


mbl.is Bjarni, Katrín og Sigurður báru saman bækur sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn á ný sannast orð Hallgríms: Ó, hve illan enda ódyggð og svikin fá ...

x26Jæja, svo að það fór þá svona. Bjarniben flæmdur á brott úr sinni landareign eins og öreiga Palestínumaður úr eigin landi. Við þessi tíðindi má gera ráð fyrir að heilmikil Þórðargleði brjótist út meðal krataeðlisstóðsins, - sem líka vildi, og vill, selja banka í klær auðvaldsstóðsins, en bara selja það aðeins öðruvísi en aumingja Bjarniben og Sjálfstæðisflokkurinn. Ágreiningurinn, ef ágreining skyldi kalla, milli þessara hópa stóðhrossa íhalds og krataeðlis, hefur sem sé aldrei staðið um hvort eigi að selja og gefa auðvaldinu eignir almennings, heldur hefir meintur ágreiningur aðeins verið um misóljósar aðferðir við að stela, gefa og selja eigur okkar. Þannig þannig hefir það verið síðustu átján árin fyrir Hrun og fimmtán árin eftir Hrun.

En dagar Þórðargleði og móðursýki út af hruni Bjarnaben verða fljótir að líða. Ég geri ráð fyrir að nú sé stjórnmálastéttin þegar komin á fullt við að búa til vafninga og fléttur til að komast út úr fyrirliggjandi óláni dagsins sem fyrst. Verst er, að með brottfalli Bjarnaben, er Katrín nokkur Jakobsdóttir eins og ein og yfirgefin á flæðiskeri, því Bjarniben hefir verið hennar helsta stoð, eigandi og strengjadúkkustjórnandi í hennar fáránlega og ömurlega, poletiska loddaraleik. Það má því gera ráð fyrir að Katrín hellist úr lestinni í poletikinni og flokkurinn hennar hafni þar sem hann á heima, í Sorpu.

Líklega nota Sjálfstæðismenn tækifærið, sem þeir hafa beðið eftir, og fara með flokkinn sinn í andlitslyftingu, skipti um trýni á forustunni, og mæti sem nýr og syndlaus Flokkur til næstu kosninga. Þetta gerði Samfylkingin og hefir uppskorið gott gengi í skoðanakönnunum. Síðan er borðliggjandi að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn, undir forustu Áslaugar Örnu og stúlkunnar með langa nafninu, fara saman í ríkisstjórn strax að loknum kosningum. Sú góða ríkisstjórn verður tekin við fyrir næstu jól. Aftur á móti mun Sjálfstæðisflokkurinn leggja gömlu Framsóknarmaddömunni um hríð, enda er það gamla svín orðið langþreytt á hækjuhlutverkinu í bili.     


mbl.is Bjarni segir af sér embætti fjármálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í þverpokunum og hvað eiga þeir sameiginlegt? Ha?

kol6Einhverju sinni hafði manngarmur nokkur gengið svo fram af samborgurum sínum með heimsku og fáráðlingshætti, að hann var handtekinn og tekinn til skoðunar. Það sem almenningi þókti eftirsóknarvert að vita varðandi manninn, var komast að því hvað það væri sem hann reiddi í þverpokum sínum. Um þennan manngarm er það að segja, að hann þókti vera slápur á velli, ógreindarlegur í framan, leiðinlegur og hálf illa upp alinn. En það var snemma spjátrungur í pilti og eins og hann teldi sig á einhver hátt til forustu fallinn í mannfélaginu.

Þegar búið var að taka helvískan slápinn höndum, var skoðað í þverpoka hans í vitna viðurvist. Kom þá í ljós, eins og við var búist, að lítið fannst, en litla, sem þó var til staðar, var fjarska lítilfjörlegt og smátt. Sérstaklega var þó leitað eftir viti í þverpokum kauða, en ekkert slík fannst. Þar með var komið í ljós, sem marga hafði grunað, að þessi maður reiddi að minnsta kosti ekki vit sitt í þverpokum, hins vegar var þeim um meira af heimsku, rembingi, hroka og almennum drullusokkshætti í farteski hans. Í fyllingu tímans það árið, var svo manngarmurinn afskrifaður til meiri óverðskuldaðs frama og færður jólasveininum að gjöf, sem seldi hann aftur á kynsegin hóruhús í Brasilíu.

Það má heita stórmerkilegur fjandi hve aumir slápar með greind undir meðallagi hafa náð að klifra upp framastiga þjóðfélagsins, án þess nokkur maður hugsaði svo mikið sem andartak út í slíka endemis fásinnu. Þetta er það sem á fræðimáli er kallað ,,samfélagslegt ábyrgðarleysi" og hefir farið mjög vaxandi á síðari árum, þannig að nú er helst beðið eftir að keyri um þverbak. Það er géðsleg tilhugsun, er það ekki, að kjósendur telji landinu sínu best borgið með einvalaliði lukkuriddara og fáráðlinga við stjórnvölinn? Hvað eiga Vilmjálmur Grindavíkur, Gunnarsmári og Ásmundur Einar Dalaskáld - já og hr. Bj. Leví og Sigmundur að Klaustri -  sameiginleg? Svarið þið því, skýrt og skilmerkilega.    


mbl.is Ítrekar mikilvægi Fossvogsbrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægur aftúrsiglari stjórnmálafræðinnar villist ofar himinskautum - vísvitandi

xxxÞað má ekki minna vera, en einhver helsti afturúrsiglari krataeðlisins í ,,stjórnmálafræðingastétt", hr. E. Bergmann, sé kallaður til álitsgjafar á broslegum brottrekstri Helgu Völu úr þingflokki Samfylkingarinnar. Hr. Bergmann er, eins og allir aðrir ,,stjórnmálafræðingar" krataeðlisins, afar hlutdrægur í dómum sínum, svo stappar nærri geggjun eða géðrofi; maðurinn hefir liðið áfram árum saman eins og prumpandi skrípamynd og prédíkað ESB, Samfylkinguna, aftur ESB og aftur Samfylkinguna, eins og tunglsjúkur spáprestur grénjar um sjöunda hymmnaríki, sem enginn kannast við.

Best tekst svo hr. Bergmann upp þegar hann er spurður um ástæður fyrir auknu fylgi Samfylkingarinnar. Þá svarar kauði því til, rétt eins og stjórnmálafræðingi í hafvillu sæmir, að það sé nú útaf því að Samfylkingin hafi farið aftur(?) í eitthvað sem hann kallar ,,grunngildi jafnaðarstefnunnar!", sem hann hefir greinilega ekki hugmynd um hvað er, en segir að sé kjarabaráttan. Það kannast auðvitað enginn við neina kjarabaráttu af hálfu Samfylkingarinnar, nema þá að setja saman ,,verkalýðsráð Samfylkingarinnar" til höfuðs Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og stéttabaráttu Eflingarfélaga. Í einu geta menn nefnilega treyst á krataeðlislýð Samfylkingarinnar, en það er koma þjóðskipulagi kapítalismans, auðvaldsins, til hjálpar ef hætta er talin á byltingartilburðum sósíalista innan verkalýðshreyfingarinnar.

En þókt Helgu Völu sé kastað á haugana, og Oddný og Þórunn fylgi fljótlega á eftir og að allir krataeðlistaumarnir séu færðar í hendur fyrrum aðalhagfræðingi fínimannabankans Kvikubanka, þá er blekkingaleikur Samfylkingarinnar ekki drukkinn þókt í ausuna sé kominn. Vandinn er að leika svo snyrtilega á kjósendur, að þeir hvorki sjái né gruni hvers kyns er fyrr en eftir kosningar, þegar hagfræðilærða Kvikupinsessan krataeðlisins á teinóttu jakkafatadragtinni verður búin að stofna til ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokknum, því markmið ,,jafnaðarstefnunnar" á Íslandi er að vera í stjórn með Íhaldinu, og það er líka hennar eina markmið.


mbl.is Kristrún með alla þræði flokksins í hendi sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldug hræsni og lýgimál félaganna fylgja hinni brottreknu inn í poletisku eilífðina

xsamEins og við var að búast, þá fylgir skyldug hræsni og lýgi einatt brottrekstri þingmanns úr þingflokki. Það er sjálfsagt argasta lygastappa hjá Loganum að hann og Kviku-Kristrún hafi viljað hafa Helgu Völu áfram, - því það vildu þau aleilis ekki, annars hefðu þau ekki rekið kérlíngarsauðinn úr þingflokki Samfylkingarinnar.

Annars er meðfylgjandi mynd af framámennum Samfylkingarinnar ákaflega hláleg fyrir margra hluta sakir. Krataeðlið og sýndarmennskan leyna sér ekki og klæðaburðurinn súrrealískur og líkamstellingarnar einnig. Lengst til hægri er Kviku-Kristrún í allt of stuttum buxum, en slíkt kvað vera einkennismerki vissar teundar veiklaðs fólks. Aftar og til hliðar við Kvikuna stendur kona í hræsnisrauðum kjól og glápir út í loftið. Vinstra megin við hægrimiðjuna er svo sjálf Helga Vala í lúðabúningi og lengst til vinstri er svo fermingardrengur með bleyju. Myndin er tekin á deild, sem ég veit ekki hvað heitir, en er trúlega í eigu íslenska ríkisins.

En nú er Helga Vala sem sé komin á götuna og á ekki afturkvæmt. Næstar á höggstokkinn, að skipun Kviku-Kristrúnar, eru svo Oddný Harðardóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, af því að þær fara í fínustu taugar Kvikuprinsessunnar, en Loginn sér um böðulshanskana og öxina. Hvort eða hvenær þessar sóðalegu aftökur taka enda, er algerlega óráðið á þessari stundu, en undirferli, rottugangur og systramorð hafa löngum verið ær og kýr þeirra sem sýkst hafa af krataeðlinu. En þá er yfir lýkur mun fátt verða eftir uppistandandi í Samfylkingunni.


mbl.is „Hefðum viljað hafa hana áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldis- og ofstækisfullir vargar ráðast að sínu besta fólki

x-krat5Þetta gátu þær, bölvaðar krataeðliseignirnar, þókt þær geti ekkert annað, nema auðvitað að sleikja sig upp við rassinn á auðvaldinu og íhöldunum þegar þarf að verja auðvaldsþjóðskipulagið. En nú hefir þessi óaldarlýður krataeðlisins látið til skarar skríða og rekið Helgu Völu, sem þó er af miklum leikaraættum, ekki bara úr Samfylkingunni heldur og líka af þingi, án kosninga. Ef einhverjar vanmetaskepnur eru spilltar og gjörspilltar, þá eru það þessi ræksni, sem eru undirlögð af krataeðlissjúkdómnum.

kick1.jpgSvona fór djöfuls Íhaldið í Valhöllu líka með Brynjar aumingjann Níelsson: Það rak hann eins og skítugan rakka úr hlýjum húsakynnum Alþingis og ráðuneytisins út á gwöð og gaddinn. Það sér hver maður sjálfur, að vart gefur að finna ömurlegra hlutskipti fyrir Helgu Völu og Brynjar en að vera rekin burt af misvitrum húsbændum sínum fyrir engar sakir, aðrar en þær að fara í taugarnar á húsbændunum. En Helga Vala og Brynjar eru samrýmd og ætla að láta sig hafa það leggjast lágt í þurrkuntuleg lögmannsstörf, sem margir fullyrða, og það með nokkrum rétti, að sé lægst af öllu því lága í mannheimum. En fyrr má nú vera meira ekkisens ofstækið og ofbeldishneigðin í bölvaðri íhaldskrataeðlisstéttinni, að ráðast svona að börnum sínum, og hrekja þau á vonarvöl. Aldrei hefir gamla géðbilaða Framsóknarmaddaman gerst sek um annað eins ofbeldi, sem árás Samfylkingarinnar á Helgu Völu og Íhaldsins á Brynjar, síðan hún rak Sigmund Davíð af höndum sér og þar áður Jónas frá Hriflu.

En svo er ekki útilokað að þetta fari allt saman vel; það eru til fleiri heimili en Valhöll og Samfylkingarbælið. Alveg er ég viss um að Gunnarsmári, með sosiflokkinn sinn, sé meir en vís til að bjóða Helgu Völu til vistar hjá sér, og Brynjari líka. Hann er sagður so libbó hann Gunnarsmári; hann er nefnilega það sem á erlendum tungum er kallað útrásarsosialist. Hann gæti sem best alveg eins skipað Helgu Völu og Brynjar í efstu sæti framboðslista sinna við næstu alþingiskosningar, - alveg eins og hann gumsaði bróður Einars Karls Haraldssonar og dóttur Baldurs Óskarssonar í efstu sætin hjá sér síðast. Svo er Inga Sæland alltaf opin fyrir að greiða götu lukkuriddara, svo ekki sé minnst á ruslakisturnar sem heita ýmist Miðflokkur, Viðreisn eða Píratar. Við skulum bara biðja og vona að Helga Vala og Brynjar verði ekki lengi munaðarlaus, því við höfum síst efni á missa svo góða skemmtikrafta í poletikinni sisona í göturæsið.


mbl.is Helga Vala segir sig frá þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tökum skipin af labbakútum og kvæum

AuðvaldskrakkiÞað er víst ekkert annaða að gera en að taka taka svokölluðu skipafélög af þessum drengjum sem hafa sölsað þau undir sig, þetta eru greinilega mestu labbakútar og kvæ. Ríkið á auðvitað að reka skipafélög á Íslandi og skipuleggja stafsemi þeirra svo sómi sé að, það er ekki hægt að ætlast til að það geti gerst í höndunum á ábyrgðarlausum kettlingum, sem ekki hafa fengið neitt uppeldi, hvað þá meir. Ég held við munum eftir skipafélaginu sem gerði Het Wapen van Amsturdam út - það sigldi öllu í strand með þeim afleiðingum að viðþolslausir ævintýramenn á Íslandi hafa eytt ævinni, aurum sínum og æru, í að leita að þessum kláf austur á söndum, emð engum árangri.

Það vinnst allt með því að taka skipafélögin af labbakútunum; skilvirkni og gagnsæi blasa við, skipin skráð á Íslandi, farmgjöld lækka um tugi og hundruð prósénta og karlarnir á frökturunum verða svo vel launaðir, að þeir þurfa aldrei meir að leggja sig niður við smygl og leynivínsölu. En hvað með labbakútana og stjórnarskrána? spyrja eflaust einhverjir. Er eignarrétturinn ekki heilagur samkvæmt stjórnarskrá? og er ekki athafnafrelsi einstaklingsins jafnheilagt samkvæmt sömu skrá? Djöhh. 

Ekki fór nú vel fyrir spjátrungnum sem gerðist einhverskonar reiðari hjá Einkavædda farmskipafélaginu Októbusi. Sá piltur þrautpíndi hásetana, arðrændi þá og þrælaði þeim út, þar til þeir neyddust til að fara að smygla áfengi, sígarettum, kókaíni og klámblöðum til landsins. Reiðarinn komst í þennan hliðaratvinnuveg hásetanna og og heimtaði toll af honum, sem sem nam níutíu og fimm proséntum af hagnaðinum, án þess svo mikið sem hugsa út í að þetta tiltæki hans kæmi hásetunum á efnahagslegan vonarvöl. Svo einn góðan veðurdag var eiginkona reiðarans horfin eins og jörðin hefði gleypt hana. Málið var falið lögreglunni til rannsóknar, og hún tók reiðarann fastan, grunaðan um að hafa myrt eiginkonu sína. Mörgum mánuðum síðar fréttist af eiginkonunni í barbaríinu í Alsír eða Tyrklandi, þar sem hún hafði verið seld í ánauð af íslenskum farmönnum af skipi í eigu Einkavædda farmskipafélagsins Októbusi. Hásetar reiðarans höfðu sem sé rænt konunni til að hefna sín á reiðaranum fyrir djöfullega arðránsframkomu hans við þá. Fyrir rétti báru hásetarnir, að þeir hefðu selt konuna, samkvæmt skipun eiginmanns hennar, á markaði í Algeirsborg eða Istanbúl. Fyrir þetta voru hásetarnir dæmdir í fimm ára fangelsi en reiðarinn fékk tuttugu og fimm ár. 


mbl.is Ölgerðin leiksoppur skipafélaganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott sálarástand ráðsmanns Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu

xbRáðsmaður gömlu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu hefur ekki áhyggjur af neinu, allra síst raunverulegar áhyggjur. Hlutverk hans er að standa vörð um hagsmuni Framsóknararms auðvaldsins og að bera afengi og dóp í gömlu Maddömuna, sem búið að halda á lífi, von úr viti, með allskonar eiturgumsi. Enda hefir gamla konan margsagt, að samt sé blessað íslenska áquavítið best með svörtum mogadon og Royal rottueitri frá Sameinaða gufufélaginu ehf.

Nú segja þeir að meginástríða ráðsmannsins sé að flytja inn sauðnaut frá Grænlandi, en ástæðuna fyrir því segir ráðmaðurinn vera þá, að sauðnautum fylgi miklar áskoranir og óskapleg tækifæri til atvinnuuppbyggingar og tekjumöguleika. Hugmyndin um sauðnautainnflutninginn frá Grænlandi kviknaði í snöggu innblástursleiftri í höfði ráðsmannsins er hann leit yfir þéttsetinn sal Framsóknarmanna á flokksþingi. Þann dag lá gamla Maddaman afvelta í hliðarherbergi og fylgdist með þinstörfum húskarla sinna og griðkvenna, sem ævinlega eru mjúkholda og til í tuskið fyrir rétt verð.

xmOg ekki er ein báran stök. Í dag rak á gullsandsfjöru Framsóknarbúsins vísindalega staðfesting á örum uppgangi lekanda á Íslandi. Maddaman og ráðsmaðurinn gáfu út sameiginlega tilkynningu þess efnis, að vaxandi fjöldi lekandatilfella sé mikið fagnaðarefni, sem kitli þjóðrækniskennd sannra Íslendinga, því hvað sé, þegar öllu er á botninn hvolft, þjóðlegra en þróttmikill lekandi í hraustum líkömum ungra Íslendinga, sbr. hendinguna ,,flatlús og lekandi hvíldu í ró". Þegar tilkynningin hafði verið send fjölmiðlum, lét gamla Framsónarmaddaman þess getið, að ákveðið væri, að helsta slagorð Framsóknarfjóssins fyrir næstu kosningar verði ,,Sauðnaut með lekanda til öruggrar framtíðar - áfram, áfram ekkert stopp!" 


mbl.is „Já, ég hef raunverulegar áhyggjur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt blásvart bæjarfraukelsi stendur í ströngu frammi fyrir gríðarlegri áskorun

ingapu2Bæjarfraukelsið í Kópavogi hefir á réttu að standa: Þetta er allt saman misstökk, missmææli, misskkilningur og slitið úr heildrænu samhengi frá hverju örðu. Auðvitað varð ríka slektið að fá lóðirnar án auglýsingar til að halda í stóru myndina, annars var hætta á að áskorunin færi í vaskinn - eða minnsta kosti út um læri og maga og jafnvel upp á vegg. Það má ekki gerast í nútímasamfélagi á dögum hnattrænnar hlýnunar. Já, það er gríðarlega vel uppi skottið á bæjarfraukelsinu, enda áskorunin gríðarleg.

Gjörspillingin ríður ekki við einteyming og verður að hafa sinn gang, annars er allt unnið fyrir gýg. Þetta veit hið gáfaða bæjarfraukelsi og þjónar og gefur ríka slektinu góðar gjafir á bæði borð. Og ríka slektið kumrar eins og naut, étur matfugl, svelgir alísvín, þekkir Ölmu og þiggur ölmusu hjá bæjafraukelsenö. Svona gengur gott og innihaldsríkt líf fyrir sig og öfundsjúku fátæklingahelvítin eiga að gjöra svo vel að halda kjafti. Þess í stað eiga þau að vera jákvæð, biðja fyrir fraukelsinu, matfuglinum Ölmu og elska áskoranir og hugsa heildstætt og uppbyggilega.

Vart þarf að minna sauðsvartan almúgann á að hann eigi að vanda alla umræðu um um slíkt ofurkvennaval sem bæjarfraukelsið í Kópavogi er. Sú merka kona er útskrifuð með láði úr skóla frú Ingveldar og kann því tökin á leiknum. Einusinni kom það fyrir svona konu að hún skellti tönnunum svo frjálslega saman, þegar sjónvarpsmaður var að taka viðtal við hana, að meir en helmingur þeirra brotnuðu meira eða minna og brotin hrundu út úr henni eins og hrökkbrauð; já, kérlíngarsvínið varð eins og kona sem hefir svelgst á hrökkbrauði og fer að hósta eins og mæðiveikirolla. Það var ljótt að sjá. En mikið er þó viðurgjörningur bæjarstjórnarinnar í Kópavogi og fraukelsinsins við ríka slektið, matgoggana í Ölmusufélaginu, dásamlega ljóðrænn og menningarlegur í hvívetna. Að ekki sé talað um það undursamlega afrek að hafa komið í veg fyrir skörun bæjarlandsins í Kópavogi með því að auglýsa ekki.  
 


mbl.is Minnihlutinn slíti málið úr samhengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband