Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2023

Nýlenduböðlar, stórauðvald og íslenskir vesalingar semja tjónaskrá

au_vald_1061447.jpgSérlega er þetta allt hjartnæmt hjá biluðustu stríðshaukum Evrópu, enda eru þeir innblásnir af villtustu stríðsherrunum í Hvíta húsinu og Pentagon. Og skemmtilegt að Katrín okkar Jakkó sér orðin yfirbókhaldari með tjónum af völdum Rússa; að hugsa sér hvað hún er orðin mikil hugsjónakona. Þetta getur ekki endað með öðru en að það verði reist af henni merkileg stytta, líkneski, við hliðina á Ólafi Thors fyrir framan Ráðherrabústaðinn, einmitt á þeim stað þar sem hann Björn heitinn í Brekkukoti bjó. 

En fyrst Katrín, frú Reykfjörð Gylfadóttir og hinir stríðsáhugamennirnir utan úr Evrópu ætla að setja upp kladda þar sem færð verða til bókar þau tjón sem fanturinn Pútín hefur framið á Úkraínskum englabörnum, þá skyldi maður ætla að til séu skrár um tjón af innrásum Bandaríkjamanna og NATÓ þjóða, til dæmis í Víetnam, Kóreu, Afganistan, Júgóslavíu, Líbýu, Írak, Íran, Sýrlandi, að maður tali nú ekki um glæpa þessara óbótahunda frá nýlendutímanum, þegar þeir óðu um Afríku og smöluðu innfæddum saman eins og rollum og fluttu þá út og austur, en aðallega þó í vestur, og héldu þá sem þræla, eða öllu heldur skepnur. Það væri áreiðanlega til bóta að taka þetta smáræði saman og senda svo viðkomandi yfirgangsþjóðum reikninga fyrir eyðileggingunni og illvirkjunum sem þeir hafa framið.

xvg5En mikið andskoti held ég að kerfisdýr NATÓ og ESB hlægi sig máttlaus að hinum leiðtömu íslensku spjátrungsgreyjum, einkum að Katrínu og frú Reykfjörð, þegar þau verða komin heim til sín. Enda ekki á hverjum degi sem slík endemis roðhænsn reka á fjörur evrópskra ráðamanna. Það er full ástæða í dag til að óska Stenngrimi Johoð, Álfheiði Inga, Swadeesý til hamingju með VG, Katrínu Jakkó og Bjarna Jónsson.    


mbl.is Tjónaskráin undirrituð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirbúningur stórmennafundar

verko4Það segir sig sjálft, að mjög annasamt hefir verið hjá frú Ingveldi og manni hennar, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra hjá hinum opinbera og framsóknarmanni. Nú, frú Ingveldur hefir skiljanlega verið í innsta hring þeirra sem lagt hafa á ráðin varðandi undirbúning fundar gömlu nýlenduveldanna í Evrópu og undirgefnum fylgihnöttum þeirra. Um síðustu helgi var mannmargt á heimili þeirra hjóna og haft í staupinu. Ýmislegt var til skemmtunar, svo sem eins og samsöngur Indriða Handreðs og Brynjars Vondulyktar, sem fluttu fáein valin lög eftir Kaldalóns og Geirmund Valtýsson, Kristrún Samfylkingar flautaði Kvikuvalsinn af vörum fram og Hálfdán Varðstjóri sagði áhrifamiklar reynslusögur út ábyrgðarmiklu starfi sínu.

Aðfaranótt laugardagsins kom í ljós að einhver gestanna hafði haft hægðir bak við eldhúshurðina og líklega hefir sá hinn sami skeint á sér endann í stofugardínuna. Frú Ingveldur tók þennan sóðaskap óstinnt upp og barði Kolbein eiginmann sinn dálítið, öðrum til varnaðar. Þarna var og ákveðið hvaða handapöt og fettubrettur Katrín forsætisráðherra ætti að nota við hin virðulegu stertimenni utan úr Evrópu á fundinum í Hörpu. Þegar þar var komið sögu blöktu ekki augun í forsætisráðherra og hún skreið upp á arininn þegar hún ætlaði að laumast inn á gestaklósettið.

hálf2Á laugardagkveldið lenti Kolbeini og Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra illileg saman, sem lauk með því að Kolbeinn húsbóndi lá í öngviti á stofugólfinu. Sama kveld varð uppþot í húsinu við hliðina á frú Ingveldi og Kolbeini. Þegar að var gáð kom í ljós að Máría Borgargagn hafði smogið eins og læða inn til fólksins í húsinu og fór þegar í stað að reyna að fífla heimilisföðurinn með það fyrir augum að lokka hann til samræðis við sig. En konan á bænum var geðstirð um þessar mundir og vildi sporna við fjölskylduharmleik með því að hárreyta Borgargagnið og skyrpa á hana. En Máría Borgargagn lét hrossabresti kérlíngar sér einu varða og hélt áfram að spenna karlinn upp. Svo fór allt í géníralslagsmál svo að kalla varð Hálfdán Varðstjóra til, en hann greip húsmóðurina og hafði hana á brott með sér á lögreglustöðina, þar sem hún fékk að finna til tevatnsins og hvað það kann að kosta að lenda í klónum á Hálfdáni Varðstjóra þegar hann hefir eins og hálfflösku fyrir bringspölunum.


mbl.is Brýnt að fundurinn skili einhverju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hópur stíðsóðra og hræsnisfullra smámenna á sviðið í dag

war1.jpgÞað er hreint yndislegt til þess að hugsa hve innilega Ísland tekur þátt í stríðsæsingum og stríðshvatningu þessa dagana. Það er engu líkara en fjölmenn sveit íslenskra smáhitlera hafi riðið fram á vígvöllinn með ryðbrunnin sverð og brotnar axir úr Íslendingasögunum og Sturlungu og heimti tafarlaust stríð gegn rússneskum og kínverskum hálfmennum og þrælaskríl. Og eiginlega er það enn yndislegra að sjá og heyra hve vel hefir tekist að breyta friðsömum flokki Vinstri grænna í stríðs- og hernaðaróðan hóp hræsnisfullra smámenna og skítmenna. 

Gamla íhaldið og framsóknarkratarnir eru náttúrlega samir við sig og styðja umhugsunarlaust blóðsúthellingar NATÓ, USA og ESB. Innrásir þeirra sem standa að baki fyrrgreindra skammstafana í önnur lönd í fjarlægum heimálfum eru góðar, nauðsynlegar og guði þóknanlegar. En þegar útþenslustefnu heimvaldasinna hins vestræna auðvalds er svarað, þá eru það verk myrkrahöfðingjans Sathans, að mati íhalds-, framsóknar og krataelítunnar. Enda draga hin íslensku poletisku skítseiði hvergi af sér við að taka þátt í að ögra Rússum með öllum tiltækum ráðum. Það er engu líkara en þessir vesalingar þrái af einhverri furðulegri og óskiljanlegri ástæðu heimstyrjöld með hundruð milljona mannfalli.

war2_1241493.jpgÞað er ekki samstaða með Úkraínu sem hinar stríðsóðu sálir sækjast eftir. Ónei, aldeilis ekki. Samstaða hinna lítilsigldu íslensku stjórnmálakjána er aðeins með gráðugum blóðhundum USA, ESB og NATO. Með því hyski hafa þeir ávallt verið reiðubúnir að ráðast inn Kóreu, Víetnam, Írak, Sýrland, Líbýu, Júgóslavíu, Afganistan og myrða þar milljonir með sprengjuregni, napalmi og öðru fíneríi úr verksmiðjum vopnaframleiðenda. Á síðustu öld hrintu þeir af stað tveimur heimstyrjöldum og nú þykir þeim mál til komið að hleypa þeirri þriðju af stað. Samhliða þessum skemmtilegheitum, þylur stríðshyskið möntruna um að Stalín haf drepið hundrað milljonir landa sinna, tvöhundruð milljonir, þrjúhundruð milljonir. Og að Maó hafi kálað öðru eins af Kínverjum.   


mbl.is Skilaboðin skýr: Samstaða með Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátíð í bæ - Stórhátíð í bæ ...

xd3Í dag er hátíð í bæ. Á þessum óræða vormorgni streyma fulltrúar heimsvaldasinna til Reykjavíkur á einkaþotunum sínum, blóðugir upp að öxlum og með höfuðin full af stríðsæsingum og óþolinmæði eftir að ná að útvíkka völd vestræns kapítalisma og nýlendukúgunar í heiminum. Hér heima á Íslandi höfum vér komið oss upp fríðum flokki stríðsóðra telpna með blóð á tönnunum og ráðherrastóla undir rassinum, sem eru þess albúnar að bíta karlpunginn Pútín á háls og rífa hann á hol.

En mest verður þó um dýrðir þegar stríðshetjan Selenskí ríður í hlað eins og sperrtur kókaínkarl úr illa gerðri áróðursmynd frá Hollívúdd. Þegar sá piltur lendir munu hormónarnir fara að ólga svo um munar í telpunum okkar og gamlir skúnkar með hernaðarblæti fá pínu fyrir neðan nafla. Svo verður Selenskí kysstur og kjassaður vel og lengi hátt og lágt af tilheyrandi fítónskrafti af þeim guðdómlega anda, sem hinum glæsilegu fulltrúum gömlu nýlenduveldanna og taglhnýtingum þeirra er gefinn. ,,Já, þeir setjast að borðum og svelgja reyktan lax, soga upp í nefnið og bölva Karli Marx".

x29Svo verður Selenskí leystur út með góðum gjöfum, færanlegu sjúkrahúsi, eldflaugum og vítisvélum. Karín Jakkó og frú Reykfjörð Gylfadóttir munu með ódulinni hnjáliðamýkt færa Selenskíkarlinum ferðasjúkrahúsið frá íslensku þjóðinni, svo hann geti nú læknað dátana sem ljóti karlinn hefir skotið niður. Æ, hvað það verður hugnæmt að sjá. Ó, hve sælt og indælt það er, á meðan (hann reytir fjaðrirnar af sér). Svo mega þær fara fjandans til bara, allt þegar búið er. 

 


mbl.is Selenskí ávarpar leiðtogafundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband