Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2022

Nú látið þið Páleyju kjura

hálf6Þetta er hreint alveg hræðilegt. Hvernig dettur einhverjum héraðsdómi að fara gegn lögreglustjóranum Páleyju, sem ráðin er til embættis af sjálfum Sjálfstæðisflokknum, þegar hún sýndi þá þakklætisverðu einurð að taka í hnakkadrambið á fáeinum ótérlegum blaðasnápum, sem þekktir eru fyrir að leggja lykkju á leið sína með tungurnar lafandi að sorptunnum og öskuhaugum til að sleikja upp einhvern lygaóþverra um saklausa dugnaðarmenn og landsstólpa? Þetta er bara viðbjóðslegt! Og hvað verður nú um Páleyju? Verður hún gjörð ærulaus og burtræk gjör af hálfvitlausum blaðaskríl? Ég bara spyr!

Nei, drengir mínir, þið skuluð láta Páleyju kjura, því það veit ég, að ef einhver dirfist að skerða hár á höfði svo ágætar öðlingskonu þá brestur á mikill harmagrútur í Valhöllu, sem aunginn kann að sjá fyrir endann á. En blaðasnápunum á fortakslaust að stinga inn og leyfa þeim að finna hvað réttvísi er. Nýlega gaf útgerðin í landinu lögreglunni og fangélsunum frábær og nýsmíðuð tæki til að nota við yfirheyrslur og agabrot. Í þeirri vel völdu gjöf er meðal annars að finna hjól og steglu, gapastokka úr ekta ryðfríu stáli, talíur til upphífingar brotamanna og grunaðra og fimm endurbætta rassskellingarvélar fyrir fullorðna, vendi og hnútasvipur úr nautsleðri. Fyrsta gjöfin af þessu tagi var afhent Hálfdáni varðstjóra við hátíðlega athöfn á varðstofu hans að viðstöddum dómsmálaráðherra og nokkrum fyrirrennurum hans. 

Ekki viljum vér, hinir löghlýðnu borgarar þessa lands, þurfa að upplifa það, að eins frábærlega ágætur lögreglustjóri og Páley verði færð Hálfdáni Varðstjóra til meðhöndlunar og yfirheyrslu. Því þeir sem fallið hafi í höndur Hálfdáns vita best að það eru aungvar kvenmannshöndur eða músaloppur. Vill virkilega nokkur maður að hún Páley lögreglustjóri verði til að mynda sett í rassskellingarvélina á varðstofu Hálfdáns Varðstjóra og hún flengd eins og baldinn götustrákur? Og síðan látin hírast tímunum saman, jafnvel fáklædd, í gapastokk utan við aðaldyr lögreglustöðvarinnar við Hlemmtorg? Ha? En blaðasnáparnir fái að valsa lausir eins og ábyrgðarlausir trallar eða þúfutittlingar? Ha? Viljið þér það? 


mbl.is Óheimilt að veita blaðamanni réttarstöðu grunaðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tori Coalbrown Smokefjord Gíllígíllídaughter fer í stríð

xdMikið þó andskoti er hún kræf og stríðsglöð hún litla frú Reykfjörð og blæs ótrauð til flugeldasýningar gegn Rússum. Þó veit vesalings frú Reykfjörð ekkert um Rússa annað en að henni hefir verið innrætt að þeir séu vondir, sálarlausir og blóð- og tilfinningalaus vélmenni, hins vegar hefir hún ekki hugmynd um hvar Úkraína er né hvað það er. En ætíð er þó jafn ógurlega gaman að heyra og sjá Sjálfstæðisflokksunga hrista hertygin sem aungin eru.

Mest væri þó gaman að verða vitni að því og frú Reykfjörð og jómfrú Áslaug Arna, þær eru sagðar vera ráherrar, þjóta á þyrlu Landhelgisgæslunnar til að stríða við Rússann. Þær væru vissulega væddar haglabyssum afa sinna og gamli Gorgur Lárusson sæti sjálfur kumrandi við stýrið á þyrlunni. Svo mundu telpurnar skjóta út um þyrlugluggana á bæði borð með haglabyssunum og mannfallið væri af óþekktri stærðargráðu. Og þá Gorgur lenti þyrlunni aftur, sennilega á áður ókunnum lendingarstað fyrir þyrlur, þá mundu frúin og jómfrúin halda að stríðið væri búið, Rússarnir dauðir og þær hefðu unnið og frelsað heiminn undan djöflum og andskotum frá þessu Rússalandi.

xd4Á dögunum spurði bandarískur eða frakkneskur NATÓ-gaukur einn af okkar ástsælustu fréttaaukum a því hvað utanríkisráðherra Íslands héti. Fréttahaukurinn okkar byrjaði víst á því að fýla grön eins og djúpþenkjandi brundhrútur og hugsa sig vel og vandlega um. Svo reif hann sig saman í andlitinu og svaraði ábúðarfullur: - Her name is Tori Coalbrown Smokefjord Gíllígíllídaughter and she is in the Índípendenceflokknum. Þá snöri NATÓ-gaukurinn sér flissandi undan og hugsaði sem svo að þetta íslenska fréttaviðundur væri auðsjáanlega móðursjúkt fífl sem vel mætti nota í skinhelgum málarekstri og múgfirringu, sem allir góðir stríðsæsingamenn nota göfugum málstað sínum til framdráttar. 


mbl.is Loka á rússneskar flugvélar og stjórnmálamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjálfaleg eðjóska tómhyggjunnar

skip2Hlálegt bjálfafélag Pírataflokkurinn, svo innilega tilganglaust fyrirbæri en um leið verðugur fulltrúi tómhyggjunnar og innihaldsleysisins í þágu kapítalismans og heimsvaldasinna. Ja, hvílíkt ógéð, piltar mínir. Píratadrullumallið hefir, illu heilli, verið við lýði í allnokkur ár og eftir að liggur ekki neitt, utan blábjánahrollur og hörmulega illa heppnaður aulaháttur sem hefir sennilega átt að þjóna tilgangi gamanmála hjá þessari tilgangslausu tómhyggjuhjörð.

Það þarf að fá einhverja góðviljaða menn til að tala yfir hausamótunum vesalings ólánsgemlingunum sem hafa ánetjast pírataidjótskunni og leiða þeim fyrir sjónir, að það er alls ekkert viðeigandi að gjöra lítið úr sér og verða sér til háborinnar skammar upp a hvurn dag með því að bera fávisku sína á torg eins og hvurjir aðrir apakettir. 

Fyrir Pírataflokkinn er ekki nema tvennt í stöðunni eins og málum er nú háttað: Anna hvort leggja þeir bjálfafélagið sitt niður, þegjandi og hljóðalaust, eða ganga hreint verks og innrita sig í Heimdall, ungbarnafélag Sjálfstæðisfokkinn, en það ku vera fyrirtaks vitfirringahæli fyrir Pírata og annað hátimbrað nýfrjálshyggjufólk. 


mbl.is 312 tóku þátt í prófkjöri Pírata í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermannagreftranir - og hvernig Pútin verður embættaður

sprengja3Ekki er alveg tekið út með sældinni að leyfa sér þann munað að fara í stríð. Glæsilegum hernaðarumsvifum fylgir oft hávaði og óróleiki, jafnvel svo mikill að það kann að halda vöku fyrir svefnstyggum konum. Þrátt fyrir aukaverkanir stríðs og viss óþægindi sem af þeim stafar, þá er það nú samt svo, að gjörvöll heimsbyggðin stendur á þambi af öfund út í Úkraínumenn vegna stríðsins við erkifantinn og óbótasvínið Pútín. Mikill minnihluti mannkyns hefir enn sem komið er fyllst Þórðargleði vegna ófara Úkraínu, en þó eru þeir til sem klappað hafa saman lófum af einhverskonar auðgunarfrygð því þeir hafa trú á að stríð færi þeim pénínga, eins og vér Íslendingar þekkjum frá blessaðri síðari heimstyrjöldinni, sem gjörði oss rík.

jarðstungaOg þar sem allar líkur eru á heimstyrjöld út frá Úkraínudæminu, þá eru konur, já og ef til vill menn líka, farnar að velta fyrir sér hvernig hermannagreftrunum verður háttað í þessu stríði. Búist er við því að mannfall veri svo geypilegt að ekki verði hægt af jarðnæðissökum að leggja dauðu lágrétta, heldur verði að grípa til þess ráð að jarðstinga hermannalíkin. Í því skyni hefir Evrópusambandið, í náinni samvinnu við NATÓ og USA, fundið upp bortækni, sem gerir jarðstungur auðveldar, en með því móti sparast gríðarlega mikið pláss í kirkjugörðunum, því hagræðingin og nýtingin af hinni nýju aðferð er áður óþekktur veldisvöxtur í jarðarfaratækni. Í raun og veru er jarðstunguaðferðin ofureinföld: Boruð er um það bil rúmlega tveggja metra djúp, lóðrétt hola, beint ofan í jörðina og líkinu síðan stungið, innpökkuðu í plastfilmu,ofan í holuna og mokað yfir.

aftaka3Þá er og einnig farið að huga að því hvernig skuli embætta ódæðismonsterinn Pútín þegar þar að kemur. Ýmsar góðar aðferðir koma til greina, svo sem hálshögg, henging, brenna ellegar drekking. Á þessari stundu hallast flestir að drekkingu, karlfjandanum verði einfaldlega drekkt í poka eins og lauslætiskvendi. Vér Íslendingar, að undirlagi viðeigandi ráðherra ríkisstjórnarinnar, erum reiðubúnir að ljá Drekkingarhyl í Öxará til verksins, enda er hefir hylurinn alþjóðlega löggildingu til að drekkja í óbótaskepnum. Því miður hefir Drekkingarhylur ekki verið brúkaður lengi í þeim sérhæfða tilgangi sem honum er ætlaður, þrátt fyrir að ærnar ástæður hafi oft á tíðum verið fyrir hendi. Er nú aðeins beðið þess að utanríkisráherra, hver sem það nú er, og dómsmálaráðherra,kynni og bjóði alþjóðasamfélaginu Drekkingarhyl í Öxará sem tilvalinn stað til að embætta þann Sathansunga, Pútín.   


mbl.is Svakaleg læti í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá skiptir mestu máli

kamar.jpgÞað færi betur ef satt væri hjá Bítari, að félagi Pútín sé í óðaönn að endurreisa Sovétríkin. Og langgáfulegast væri hjá Bítari að aðstoða vin sinn og félaga í austri við það verk. Ekki skulum vér láta oss yfirsjást, að Bítar karl er það sem á erlendum málum er kallað sosialist, enda héldu íslenskir platsosialistar afar mikið með Bítari þegar hann háði sitt stríð við abelsínugöla gerpið sem yfirtók Hvíta húsið um skeið og gjörði það að vitfirringahæli, að sögn Bítars og íslensku gerfisosialistanna, sem auðvitað eru ekkert annað en illa gefnir þvaghöfðar með bilaðan vatnsgang.

En hugmyndin um endurreisn Sovétríkjanna er heillandi og hroðalegur sá glæpur gegn mannkyni að láta þau liðast sundur a sínum tíma. Það var nefnilega algerður óþarfi. Þá ber að gjöra Mexíkó og Kanada umsvifalaust að sovétríkjum; það væri svo undur hafkvæmt fyrir USA að stunda köld stíð sna sitt hvoru megin við sig í stað þess að eltast við þessháttar stríðsrekstur yfir stærstu úthöf heims. Svo er hitt, að Bítari er sennilega andskotans alveg sama un Úkraínu, því hann heyrðist segja við sjálfan sig á salerninu í dag, en þangað gekk hann til kukks, að honum væri fjandans sama um þessa Úkraínu því hann væri ekki gefinn fyrir hálfmenni og ófénað handan siðmenningar.

gildra1Best er samt að halda sig alveg fyrir utan hugarfar heimsvaldasinna hvort heldur þeir halda til í austri eða vestri, en ekki falla í sömu freistingu og raðherrann með langa nafnið sem rausað hefir stríðsæsingar í allan dag. Blessað barnið heldur að svona talsmáti sé góður til atkvæðaveiða, en óþroskað ungviði af þessu tagi hefir gróðursett þá villu í hjarta sínu að lífið sé atkvæðaveiðar og að tala með bardagafýsn að hætti kaldra, drukkinna karla hreyfi við atkvæðunum í ,,rétta átt". Eða eins og skáldið sagði forðum: ,,Þótt borgir standi í báli og beitt sé eitri og stáli, þá skiptir mestu máli að maður græði á því". 


mbl.is Pútín úrhrak í samfélagi þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taðkarl í silkisloppi norpar á stéttinni fyrir framan hjá sér

gwöðneEinkennilegt hve margir þeirra, sem ekki reiða dagsdaglega vitið í þverpokum, hafa fundið sig knúna á síðustu dögum til að grénja opinberlega fyrir hönd úkranískra fasista. Þessi jarmur hljóðar álíka og klerkar íslenskir hefðu milli heimstyrjalda á síðustu öld tekið upp á að syngja Mússólína þeim ítalska lofgjörðarmessur á helstu hátíðum hinnar evangelísk-lúhersku kirkju. Að vísu var rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson frá Hala í Suðursveit kærður fyrir að skrifa óviðulega um Adólf nokkurn Hitler og hans nóta fáeinum árum áður en Hitler þessi hóf innrás í Sovétríkin, upphaflega með velþóknun heimsvaldasinna á Vesturlöndum.

Og nú hefir holdgerfingur síðari tíma niðurlægingar Bessastaða á Álftanesi staulast út á stétt eins og aðframkominn taðkarl frá fyrri öldum talað hjartnæmu máli um úkraínska fasista og valdaræningja, sem félagi Pútín hefir tekið að ser að kveða niður eins og hverja aðra óviðeigandi draugaplágu. Vér Íslendingar finnum til vanmáttar gagnvart óráðshjali taðkarlsins á Bessastaðastétt og höfum gripið til þess ráðs að kúgast yfir toiletskálinn frekar en ekki neitt.

Ef einhver andskotans manndómur væri í taðkarlinum annar en að norpa á stéttinni fyrir framan hjá sér í helbláum silkislopp og tala tungum, mundi hann reyna að blása löndum sinum sannan hernaðaranda í brjóst og veita Pútíni í hans raunum, elligar hvetja gelgjurnar i ríkisstjórn íslenska lýðveldisins til hernaðarlegra landvinninga í Færeyjum, Shetlandi, Suðureyjum og Orkneyjum. Ja, þá væri nú eitthvert gagn af karli og hann mundi öðlast sess meðal mestu manna heimsins. En, neinei, í stað þess að standa í lappirnar grénjar hann í meðvirku grátsöngvarakasti gegn Pútíni og með einhverjum furðulegum giljagaurum í Úkraínu. Fari það allt og veri.    


mbl.is „Innrás í annað ríki má aldrei líða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innblástur Bórísar er frá frú Ingveldi, en það er næsti bær við innblástur frá Guði

x46Sá veit nú hvernig hann á að fara að því, sá abelsínugöli hjá Bretanum, hann Bórís okkar hérna. Nú ætlar þessi partíglaði taðfugl að herða soleiðis snöruna að hálsi Pútíns með allskonar viðskiptabönnum og þesslags kruðeríi að óvæist er að Pútín lifi þær góðgerðir af. Svo ætlar sá abelsíngöli og banna flugvélum frá Aeroflot að lenda á Bretlandi. Þetta ku vera kallaðar refsiaðgerðir gegn Pútín. Mikið ósköp vorkennir sá abelsínugöle aumingja Úkraínumönnunum.

Nú er nýlendudjöflagangur Breska heimsveldisns og önnur herviki þessi, heimstyrjaldir, undirróður og glæpamennska út um alla heima og geima gleymdur og sá belsínugöli í Downingstræti getur spókað sig um eins og einhver nýsmíðaður Jésú, að maður minnist nú ekki á þann galna öskurapa, hann Bítar í Bandaríkjunum. Líka eru gleymd valdarán fasista í Úkraínu, enda er fasisminn hluti af vopnabúri kapítalismans og heimsvaldasinna, sem gripið er til á hátíðlegum stundum, eins og þegar til dæmis þarf að ræna völdum í Úkraníu.

En sá abelsínugöli er líka mikill svallari og svallveislur hans að Downingstræti 10 í Lundúnum rómaðar. Þessar miklu þjóðþrifasamkomur tók sá abelsínugöli upp eftir frú Ingveldi og manni hennar, Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni. Bórís hafði sem sé frétt hjá kunningja sínum við hirðina af velheppnuðum helgarsamkomum frú Ingveldar uppi Íslandi og ákvað samstundis að fylgja dæmi hennar og Kolbeins. Ekki er að efa eina einustu sekúndu, að samkvæmi Bórísar, eftir forskrift frú Ingveldar, hafa veitt honum innblástur við að upphugsa snjallar refsiaðgerðir gegn fólinu Pútín.  


mbl.is Bretland herðir refsiaðgerðir og bannar Aeroflot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún skilur eðli hernaðarlistarinnar út í ystu æsar

x27Sko þá stuttu! Nú ýjar hún að því að hún ætli að hjóla í bölvaðann Rússann og gera út af við hann. Hvar ætli telpan hafi lært svona stórkostlega raungerða hatursorðræðu; þan er aungvu líkara en hún lent fyrir slysni millum stafs og bryggju. Hvað um það, þá er hnátan þessa stundina að gjöra skip landhelgisgæslunnar ferðbúin til árásar á Rússland, en það er einmitt þessháttar árás sem Rússar óttast hvað mest.

Nú, Íslendingar, einkum eru fyrir löngu marghertir í stríðalátum og árásum á fjarlægar þjóðir. Þeir réðust af fáheyrðri heift inn í Írak hér um árið og hengdu Saddám, í Líbýu skutu þeir Gaddafa og á Súrlandi léku þeir listir sínar fyrir þá sem ,,kenna sig við íslamskt ríki" og eru þá ótaldar ýmsar ágætar lýðræðisárásir á þjóðir villumanna og úrþvætta. Hér forðum vóð Sjálfstæðisflokkurinn okkar með fulltingi gömlu Framsóknarmaddömunnar og krataeðlissjúklinga með lýðræðiselskandi þjóðum, einkum þó Bandaríkjamönnum, á Kóreyju og sýndu kommúnískum smámennum ekki bara í tvo heimana, heldur þrjá, fjóra, fimm og sex heimana. Og ekki var minna um dýrðir þegar vort lýðræðiselskandi sómafólk af Vesturlöndum fór að stríða austur í Víetnam við þann illa fjanda Hó Sí Mínn, það var nú heldur en ekki ferð til fjár.

sprengja4En það er töggur í henni Þórdísi Kolbrúnu og einlægur stríðsvilji; og vitur er hún og stórgáfuð og skilur eðli stríðslistarinnar út í ystu æsar. Þó svo hún hafi á sínum tíma brotið sóttvarnarlög og reglur með útsáfelsi með vinkvendum sínum, undir yfirskini heilræðisins ,,mamma, mamma þarf að djamma" þá villti það ekki hinni herskáu ljúflingshnátu ekki sýn á illmennið Pútín og rússabölið alvarlega. Ekki er síður ótrúlega skemmtilegt að verða vita að því hve ungar, íslenskar stjórnmálakvensur eru ótrúlega viljugar til stríðsaðgerða og innrása. Þórdís með langa nafnið, Áslaug litla Arna, Kattrín Jakkó og eftirlæti gömlu Framsóknarmaddömunnar, hún Lilja Alfredós, hafa allar sýnt og sannað að þeim er treystandi þegar berja þarf duglega á Rússagrýlunni og skrílmennum í Austurlöndum nær og fjær; þær eru sem maður segir: sannir svarkar til sóma okkar þjóð. Já. Því miður verður ekki það sama sagt um kvenpéníng stjórnarandstöðunnar, sem minna á fátt annað betur en illa stundað hliðaport hvar yfirfullar ruslatunnur liggja á hliðinni hver um aðra þvera.


mbl.is Aðgerðir Rússa verði ekki án afleiðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bítar vill endilega hefja géníral kjarnorkuárás og bölvaðan Rússann

war3.jpgEkki spyr maður að helvítis Rússanum. Nú er hann búinn að gjöra innrás í Úkraínu og skjóra þrjá. Já, drengir mínir, það er ekki lengi gert og nú hefir þurft að kalla út kistusmið og útfararstjóra í yfirvinnu. Nú er að sjá hvort einhver dugur er í honum Bítari í Bandaríkjunum, ástaföður svokallaðra ,,vinstrimanna" á Íslandi, hvort hann hefnir ekki hinna föllnu Úkraínumanna með géníral kjarnorkuvopnaárás á Pútín og hans hyski. Hann er nefnilega talinn kræfur karl hann Bítar og vel elliær og géðvondur.

Enn er oss í fersku minni þegar stríð braust út millum Grindjána og Keflvíkinga. Það var voðaleg uppákoma. Aunginn man lengur út af hverju þetta stríð var háð, en mannslætt var það og öllum vopnum beitt. Grindjánar höfðu stolið grunsamlegum járnhulstri með einhverju í. Þessi hlutur vó á fjórðahundrað kíló og þurfti nokkuð kröftuga fallbyssu til að koma honum á loft. En Grindjánar létu örlítinn mótbyr ekki hindra sig, enda var heiður þeirra að veði og þeir skutu hulstrinu upp í heiðríkjuna og fyrirhuguð endastöð þess ráðhúsið Keflavík.

En hið ókennilega vopn náði aldrei lendingu í Keflavík, sem betur fer mundi einhver segja. Hinsvegar hafnaði það fyrir einskæra slysni á flugvéla- og birgðaskýli amríska stríðshersins á Kaflavíkurflugvelli og sprakk þar með ægilegum gný. Fljótlega kom í ljós að það hafði verið kjarnorkusprengja sem Grindjánar höfðu skotið á loft með þessum afleiðingum. Ekki er að því að spurja, að eyðileggingin var geigvænleg og mannfall ótrúlega mikið. En af því að búið var að harðbanna Könum að vera með kjarnorkusprengur á Íslandi var málið þaggað niður og Grindjánar og Keflvíkingar neyddir til að semja um vopnahlé, sem enn stendur hvað sem verður.


mbl.is Þrír látnir eftir árásir í Úkraínu í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsæsingaöskurapinn er verri en abelsínugöli vembillinn

x49Ljóti andskotans stríðsæsingamaðurinn þessi Bítur bandaríkjaforseti. Þó abelsínugöli vembillinn væri slæmur, þá er þetta gamla skar enn nú verra. En samt er einna skrítnast við þennan kallrass, að íslenskir angurgapar, sem þykjast ver einhverjir ,,nýsosialistar" héldu alveg ógurlega með gamla rörinu og létu að því liggja að það væri mikið vinstrimenni og sosialist. 

Nú, foringi VG, eða HF eins og félagið heitir núna, ku vera mikil flokkssystir Bíturs, einnig dóttir Sölu varnarlisðseigna, sem og nýfrjálshyggjutelpan með langa nafnið sem braut sóttvarnarlögin í fyrra eða hitteðfyrra. Ja, kvenþjóðin á Íslandi lætur ekki sitt eftir liggja í stuðningi við Bítar stríðskall.

Og handritið af sögunni um ,,rússainnrásina" í Úkraínu er það sama og að innrásinni í Írak, Líbíu, Vietnam, Kóreu og fleiri og fleiri ... Ekki þarf Bítar að vera hræddur um að hann verði dreginn á bindinu fyrir Stríðsglæpadómstólinn í Haag, því þangað eru Bítar og hans líka ekki dregnir, enda væri hastarlegt ef fínir menn og konur væru dæmd við dómstól sem þau eiga sjálf. Svo vonum við að Katrínu Jakkó og Swndeesý Sendiherrans líði bara vel á stríðsvagninum hjá Bítari og þær fái að skjóta nokkra Rússa sér til skemmtunnar á gandreiðinni austur þar.


mbl.is Aðgerðir Bidens ekki haft áhrif til þessa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband