Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Sá gamli þorpari og saurlífisfýsn hans

ingv21_1222681.jpgEkki er undarlegt að sá gamli þorpari, Charles Saatchi, hafi tekið eftir að Nígélla hafi alltaf verið útúrkókuð það sem hann eyddi öllum sínum frístundum í að eltast við Grillósysturnar. Með öðrum orðum var kallskrattinn gjeróður af greddu nema þegar kom að Nígéllu, þá lamaðist á honum prikið og náttúran rauk útum gluggann. En um leið og Grillósysturnar báru fyrir augu hans fuðruðu miðvígstöðvar hans uppí sjóðandi saulífisfýsn með neistaflugi og brunalykt.
mbl.is Vissi ekkert um meinta fíkn Nigellu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers eiga ekkiskáldin Sjón og Yrsa að gjalda?

Hvernig í andskotanum stendur á því að síðhipparnir Auður Jónsdóttir og Eiríkur Örn eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs? Hvurslags eiginlega smekkleysa er þetta?

skrattaskrifTil Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á að tilnefna ekki skáld á borð við Sjón, Yrsu reyfarahöfund og Hallgrím Helgason, svo einhverjir séu nefndir. Til dæmis er Sjón svo mikið ekkiskáld, að hann gjörsamlega óskiljanlegur í innihaldslausri fávísi sinni. Þá er Yrsa glæsilegur fulltrúi hinnar úrkynjuðu auðvaldsgreinar bókmenntanna, glæpareyfaranum. Um Hallgrím Helgason þarf ekki að fjölyrða, hans list reis hæst þegar hann hékk eins og sæsteinsuga á rúðunni á bifreið Gjeirs Haarde hér um árið.

En að tilnefna fyrrgreinda síðhippa til virðulegra verðlauna Norðurlandaráðs er ámóta gáfulegt og viðeigandi eins og Íslendingar hefðu tilnefnt G. Grímsson Grunnvíking og Jón Grindvicensis til sömu verðlauna. Eina bótin í þessu hörmulega máli öllu, er að ólánsskepnunum, sem sjá um tilnenfningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, skuli ekki hafa hugkvæmst að tilnefna aðra eins erkiþrjóta og kommúnista og Guðberg Bergsson, besta vin fémínísta í Grindavík, og Einar Má Guðmundsson.

En hvað um það, í dag eru allir sannir bókmenntaunnendur sárgramir og hneykslaðir á óskiljanlegu síðhippadekri þeirra ábyrgðarlausu manna, sem gerðu sér lítið fyrir og komu Auði Jónsdóttur og Eiríki Erni á framfæri þeirra sem úthluta bókmenntaverðlaunum í heimshluta bláeygðra víkinga.
mbl.is Auður og Eiríkur tilnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirnáttúrlegir péééníngar Framsóknarmaddömunnar og kögunarbarnsins

GlæpamennJá peéénígarnir skohh ... pénígarnir. Hvaðan koma pénígarnir? Það er von að Gvendur V. spyrji eins og leikskólapiltur. Hvaðan koma péníngarnir sem fjárglæframenn Framsóknarflokksins ætla sér að fleygja í eyðsluseggi og skuldakónga? Auðvitað vita framsóknarforkólfarnir það ekki, að öðru leyti en því að ekki ætla Finnur Ingólfs, Halldór Ásgríms, gifturíki kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki, Kögunarkallinn, Ólafur bóndi á Miðhrauni, Sigurður Einarssons bánkaséní og Hallur Magnússon að leggja til eina einustu krónu í púkkið til gottgjörelsis skuldugum eyðsluseggjum, sem fóru offari kortér fyrir Hrun.

Helst er að skilja á kögunardrengnum, sem kalhæðni örlaganna hefur gert að forsætisráðherra á Íslandi, að péééníngarnir sem hann ætlar að fleyja í eyðsluseggi framasóknarogíhaldsgóðærisins muni falla af himnum ofan, enda séu umræddir péníngar sömu náttúru og loftpéníngarnir sem voru í umferð og kættu margan manninn í góðærinu sáluga. Auðvitað veit kögunarpilturinn mæta vel, að komi hann ekki yfirnáttúrlegum péníngum til hinna skuldugu, verði hann og aðrir húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar að skríða öfugir ofaní fjóshauginn mikla við Framsóknarfjósið og heilsa sjálfrar maddömunnar hraki svo mjög að hún láti í annað sinn lífið og þá til frambúðar. Og ef Framsóknarmaddaman andast fyrir fullt og fast er úti um gullgerðarvélina, sem malað hefur stórmennum Framsóknarflokksins auðæfi í nafni samvinnuhugsjónarinnar.
mbl.is „Hvaðan koma peningarnir?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúrulaus KFUM-drengur með bleyju

cry3Það er ljóta unglingtötrið þessi Jussi Bíbir, sem ósvífnir kaupahéðnar hafa logið að börnum og öðrum ungskjátum að sé söngvari og skemmtikraftur - já, og kyntröll og framúrskarandi giljagaur.

Nú er það mála sannast, að Jussi Bíbir er fyrir það fyrsta náttúrulaus geldingur, í öðru lagi blauður KFUM-drengur og í þriðja lagi hefur hann ekki enn vanist af að nota bleyju.

Að vísu hefir Jussi Bíbir gerst stórkarlalegur á tómleikum, höggvið hænsni niður með sveðju, leyst niðrum sig og gert stykkin sín fyrir framan bassatrommuna og og mígið í freyðandi tryllingi yfir áhorfendur á fremsta bekk. Það er allt og sumt. Fleira er ekki á afrekalista þessa litlausa plastpoka.

Að öllu samanlögðu er Jussi Bíbir algert núll og nix í sínu stóra sniði, alveg nákvæmlega eins og forsætisráðherra íslensku ríkisstjórnarinnar.
mbl.is Hvernig er hægt að vera svona heitur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útilbú Sjálfstæðisflokksins í 101

sira1.jpgÞað er eftir öðru hjá Sjálfstæðisflokknum að setja á laggirnar leikskóla til geta stundað barnapyntingar og má nú segja að þessum hrottasamtökum sé bókstaflega alls varnað og einskis sé framar að vænta úr þeirri átt nema glæpa og svívirðu.

Í gær sendu þessi ógnarstjórnarsamtök útsendara sína uppí útvarpshúsið í Efstaleiti þar sem þeir siguðu blóðgrimmum hundum á starfsfólkið. Eftir þá atlögu lágu 39 útvarpsmenn í valnum, og nokkrir til viðbótar eru komnir með hundaæði svo nú má sjálfur útvarpsstjórinn fara að vara sig.

En í glæsivillu sinni hafast frú Ingveldur og Kalbeinn maður hennar við og semja aðgerðaáætlun fyrir ríkisstjórnina. Það þykir við hæfi að þessi valinkunnu hjón hafi með höndum það vandasama verk að útsetja viðunandi terror gegn almenningi fyrir æðsta ráð kvótavinafélagsins í stjórnarráðinu.
mbl.is Ómálga börn voru beitt harðræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styrkþegarnir allir fastagestir á heimili frú Ingveldar og Kolbeins

kol23_1222634.jpgEftir myndunum sem fylgja þessari frétt að dæma eru styrkþegarnir sem um er fjallað ákaflega skuggalegt fólk, enda ekki að furða því allir eru styrkþegarnir fastagestir í samkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra.

Nú vita allir sem vilja vita, að samkomur á heimili frú Ingveldar og Kolbeins eru vægast sagt mjög vafasamar svo ekki kemur á óvart að þeir sem eru þaulsætnir á þeim beri þess merki í útliti og hegðun. Sá frægi maður Brynjar Vondalykt er talandi dæmi um óhrjálegt útlit þeirra sem stunda fyrrnefnd samkvæmi og undarlegur er hann í háttum og fáránlegur í hvívetna ef glöggt er skoðað.

Og ekki er Óli Apaköttur síðri Vondulyktinni hvað varðar afkáraskap og skreiðarlegt útlit. Frægt var þegar kviknaði í afturendanum á Apakettinum í snörpum gleðskap heima hjá sæmdarhjónunum Kolbeini og frú Ingveldi. Sem betur fer varð þó Apakettinum til bjargar, að gömlum róna tókst að grípa hann og varpa útí snjóskafl að húsabaki og kafnaði þar eldurinn í rassinum á hinum ólánssama Apaketti.
mbl.is Þessi brostu hringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grilló systur eru í miklum tengslum við Ísland

ingv10_1222586.jpgÞað kvað vera askotans óskapar töggur í þeim Grillósystrum. Þær eru og sagðar slóttugar og fégjarnar eiturpöddur, og síðast en ekki síst, þá eru þær flokksbundnar í Framsóknarflokknum á Íslandi. Semsagt hroðaleg kvendi, sálarlausar, þjófóttar og lygnar.

Það er ekki amalegt fyrir Framsóknarflokkinn að hafa önnur eins djásn og systurnar Grilló innan sinna vébanda og víst er að þær falla eins og flís við rass söfnuði gömlu Framsóknarmaddömunnar.

Af Framsóknarmaddömunni er það helst að frétta, að hún er á sífelldum þönum milli Sauðárkróks og Hornafjarðar þrátt fyrir að vera lærbrotin og með lúngnaþembu, oftast fótgangandi í sauðskinnskóm. Þó er hún samt ekki svo heillum horfin, að hún gefi sér ekki tíma til að gamna sér með ungu framsóknarstrákunum, sem þykir hinn mesti heiður að fá að leggjast með gömlu konunni þó hún sé illa lyktandi og hálf blind.

En nú eru framsóknartelpurnar Grilló væntanlegar til Sauðárkróks um áramótin til að fara að vinna í kaupfélaginu þar. Ekki er það í kot vísað því kaupfélagstjórinn þar er eðalgripur og afburða gifturíkur og í miklum metum hjá gömlu maddömunni ekki síður en Finnur og Halldór, Bingi og Óli í Samskip.


mbl.is Nigella sögð vera „síbrotamaður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á árum áður komst Pruppi þíngmaður oft í hann krappan í samkvæmum hjá frú Ingveldi og Kolbeini manni hennar

21092_10151652577922526_1736439258_n.jpgSkemmtilega vankaður þessi Pruppi, sem komst í borgarstjórn og á þing fyrir misskilning og vankadofa kjósenda. En auðvitað er Pruppi þessi vel geymdur innan um undirmálskraðakið sem nú fyllir þingsali.

Einhvernatíma frétti ég að Pruppi þingmaður hefði verið tíður gestur í samkvæmum heiðurshjónanna Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og eiginkonu hans frú Ingveldar, sem er alkunn fyrir ódrepandi áhuga sinn á félagsmálum og samkvæmisleikjum. Í þessum samkvæmum kom æ ofaní æ í handalögmálum við Indriða Handreð. Í þeim átökum mátti Pruppi ætíð þola að það böl að fara mjög halloka fyrir Handreðnum; Handreðurinn hífði greyið ítrekað upp á eyrunum; eða hárinu; eða hreðjunum. Þá lék Handreðurinn sér að því að troða ræfils tuskunni inní ruslaskáp og kasta vatni af sér á eftir honum inní skápinn, það var víst ófögur sjón. Í hið síðasta sinn sem Pruppa var hleypt inn í samkvæmi til frú Ingveldar og Kolbeins tóku húsráðendur sig til í sameiningu, þegar hæst stóð í stönginni, og vörpuðu þessum leiðigjarna gesti útum útidyrnar og útí snjóskafl og sungu yfir honum bölbænir og klám í kveðjuskyni. Eftir þá útreið hefur Pruppi þingmaður og gnarrvinur forðast að koma nærri vígvelli frú Ingveldar og Kolbeins en hallaði sér þess í stað að Gvendi vitlausa og hans plastpíuslekti.
mbl.is Vilja leggja niður mannanafnanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú liggur vel á forystuskríl skemmdarverkasamtakanna.

au_vald_1061447.jpgÞað kemur ekki á óvart, að þessari frétt á Mogganum fylgi mynd af Páli Magnússyni ,,Útvarpsstjóra" brosandi útað eyrum, enda hefur honum verið falið að inna af hendi skítverk, sem sumum á Mogganum og hinum öfgafulla og heimska forystuskríl skemmdarverkasamtakanna sem standa að ríkisstjórninni, er afar þóknanlegt.

Það er borðliggjandi, að alþýnan verður að bregast við og stöðva aðför hinna heimsku og öfgafullu að Ríkisútvarpinu, fyrir nú utan að gera gangskör að því að koma umræddum skemmdarverkaskríl frá völdum og banna samtök hans. Það er bara hreinlega útilokað, að láta illkvittna dólga forréttindastéttarinnar fá að skemmta sér við að eyðileggja samfélagið meira en þeim hefur tekist fram að þessu. Almenningur í þessu landi verður að fara að átta sig á, að óþrifnaðarsamtök eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru ekki nein góðgerðarsamtök nema fyrir sig og sína, þ.e. broddborgarastéttina og hennar auðvirðilega hyski, en með slíkum félagsskap á venjulegt alþýðufólk enga samleið.
mbl.is Fréttatímum fækkað og þeir styttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunbörnin í ríkisstjórninni

Finnur og GulliÞað er svo sem eftir öðru að hrunbörnin í ríkisstjórninni geri óvinveitta atlögu að Ríkisútvarpinu, það er í samræmi við skítlegar árásir ýmissa hottintotta innan vébanda glæpasamtakanna sem gera út núverandi ríkisstjórn. Og útvarpsstjóraræfillinn er með á nótunum og virðist heilshugar styðja ráðabrugg húsbænda sinna, enda upphaflega ráðinn til starfa til að vinna Ríkisútvarpinu tjón svo auðveldara verði að réttlæta í ísmeygilegan hátt þá ruddalegu fyrirætlan forréttindaskrílsins að leggja það niður eða selja það innvígðum stigamönnum.

Það verður að skoðast sem samfélagslegur pervertismi hjá einni þjóð, að leggjast svo lágt að koma gjörspilltum óaldarlýð, sem keyrði ríkissjóð nánast í þrot fyrir skemmstu, til valda í almennum kosningum. Slík þjóð hefur naumast dómgreind og gáfur á við nýgotinn vanskapaðan hvolp.
mbl.is Starfsmönnum RÚV fækkað um 60
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband