Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Forhert ábyrgðaleysi

Það verður að teljast djöfulleg forherðing hjá fólki í barneign, að taka uppá að hrúga niður krökkum eftir að skollin er á kreppa með væntanlegu mannfalli sakir hungurs og ílls atlætis. En það kvað samt vera staðreynd, að nú um stundir sé sá fjöld kvenna fullbarnaður, sem aldrei hefir áður sést hér á landi síðan uppúr móðuharðindunum miklu og stórubólu þega þjóðin var næstum útdauð og mikil lá við allar tagltækar konur gengu hart fram í barneignum svo landið legðist ekki í eyði. Nú er svo sem engin hætta á fari fyrir íslensku þjóðinni og geifuglinum, þannig að kerlingar þurfa ekki að fyllast örvæntingu og fari að láta alskonar kalla barna sig í gríð og erg.

En fyrst að skörungarnir miklu á Alþingi, þær Álfheiður Ingadóttir, sem hrifsaði heilbrigðisráðuneytið til sín eins og soltin úlfur, og Margrét Tryggvadóttir þjóðmálaberserkur, gerðu sér lítið fyrir á Alþingi í dag og tóku barneignasótt nútímakvenna til umræðu, þá er ekki nema rétt og skylt, að geta þess, að þessar drottningar væru betur komnar í eilífðarfæðingarorlofi en að þvælast fyrir fullorðnu fólki á þeim vinnustað, sem þeim tókst að smokra sér inná fyrir vangá almennings. 


mbl.is Íslendingar geta börn í kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning og svar

Hvernig stendur á því, að 15.898 manns eru atvinnulausir?

Svar: Af því að Sjálfstæðisflokkurinn var samfleytt við völd frá 1991 til 2009.

Hvernig stendur þá á því, að þessi Sjálfstæðisflokkur er ekki bannaður með lögum?

Svar: Af því, að Samfylkingin er hjáleiga frá Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Tæplega 16 þúsund án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skörulegur sultarþingmaður

fullAumingja blessaðir ræflarnir, að þurfa að vinna svona á kvöldi, matarlausir og alslausir. Og mikið vorkenndi ég henni Margréti Tryggvadóttur alþingismanni fyrir helgina þegar hún flutti stórfenglegustu og skörulegustu ræðu, sem haldin hefur verið á Alþingi frá landnámstíð, en ræða Margréta hljóðaði eitthvað þessa leið: Frú forseti. Á ekki að fara að taka pásu?, ég er svöng.

Með hinni mögnuðu ræðu, jafnaði frú Margét metin við Bjarna Ármannsson, Torgerði Katrínu og Vigdísi Hauksdóttur í skörungsskap á þingi. Ekki amalegur árangur það hjá ungum þingmanni, sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.


mbl.is Þingfundur fram á kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ennþá betri ráð við innbrotsþjófum

eldur5Fátt er betra við inbrotsþjófum, fyrir utan að leggja jarðsprengjur um öll gólf, en að koma fyrir öflugum dýrabogum í íbúðinn. Þegar heiðurshjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, fóru til Indlands um jólin 2002 stungu þau 20 jarðsprengjum undir teppi og mottur heima hjá sér. Þegar þau komu til baka, var hús þeirra rústir einar og þar sem stofan hafi verið, var kominn stór gýgur. Tveimur árum síðar þótti sannað, að Sigurveig dræsa, náfrænka frú Ingveldar, hefði farist í sprengingunni, en til hennar hafði þá ekki spurst síðan daginn sem húsið Kolbeins og frú Ingveldar sprakk í loft upp síðla kvölds milli jóla og nýárs.

Hinsvegar lagði Arinbjörn veiðimaður Ólafsson gríðarlega dýraboga um hús sitt þvert og endilangt þegar hann brá sér af bæ um síðustu jól. Enda vakti það heilmikla undrun sjúkrafólks á Slysavarðstofunni, að þann tíma sem Arinbjörn var í burtu, komu sex karlmenn, með stuttu millibili, með hroðalega áverka á fótleggjum á Slysavarðstofuna. Allir báru þessir þrjótar fyrir sig að þeir hefðu klemmt sig milli stafs og hurðar. En sannleikurinn var hinsvegar sá, að þeir höfðu, hver og einn, brotist inn í hús Arinbjarnar til að stela eigum hans, en gengið eins og blindir kettlingar í hina miklu dýraboga, sem lágu þar spenntir og biðu þess að einhver óboðinn kæmi í heimsókn.

Svo er ágætt ráð við inbrotsþjófum, að ráða blóðþyrstan morðingja til að liggja í leyni í húsinu. Þannig fór Friðleifur Finnbogasona að einusinni með góðum árangri. Þegar hann sneri aftur heim, varu báðar ruslatunnurnar hjá honum fullar af seinheppnum innbrotsþjófum, sem hafði unnið á af mikilli ánægju. 


mbl.is Sjö leiðir til að forðast innbrot um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Senditík LÍÚ blaðrar í nafni Háskóla Íslands

dog6Ég man þá tíð þegar Ragnar Árnason ,,hagfræðingur" var senditík Svavars Gestssonar og flokkseigandafélags Alþýðubandalagsins sáluga; þá þóttist okkar maður dulítið róttækur í þjóðfélagsmálum. Síðar gerðist blessaður drengurinn senditík LÍÚ og var sem slíkum potað til prófessors í Hákóla Íslands til að veita kvótakerfinu alræmda akademískt heibrigðisvottorð.

Það er meira en ömurlegt, að Háskóli Íslands, skuli leggjast svo lágt, að taka í mál að LÍÚ fái að troða auðvirðilegu áróðursdýri í prófessorsembætti við skólann til þess eins að ganga erinda valdasjúkra útgerðarmanna og þrengstu hagsmuna þeirra.

Ef allt væri með felldu í Háskólanum, hefði Ragnari Árnasyni, erindreka LÍÚ, aldrei verið hleypt þar inn. En þó seint sé, ættu háskólayfirvöld að taka á sig rögg og sparka Ragnari senditík ekki aðeins útúr húsakynnum Háskóla Íslands, heldur og útaf háskólalóðinni, til bjarga því sem bjargað verður af heiðri þessarar æðstu menntastofnunar þjóðarinnar í þessu skammarlega Ragnars/LÍÚ-máli.


mbl.is Sýn forsjármanna brengluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðrir minningartónleikar í undibúningi

bjöÓsköp er nú fallegtaf kórunum í Borgarfirði, að minnast hins burtsofnaða Sparisjóðs Mýrasýslu með því að flytja sveitungum sínum vandaða söngdagskrá. Trúlega munu fjölmörg tár falla af sorgmæddum hvörmum á væntanlegum tónleikum, sem umfram allt verða líkari útför mikilsmetins framsóknarbónda en hversdagslegrar söngskemmtunar.

Þá er þess vert að geta, að undirbúningi eru stórtónleikar í Nýju Tónlistarhöllinni á Faxagarði, milli jóla og nýárs, til minningar um valdatíma Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2009, útrásarbesefana, hina settlegu og ráðagóðu bankasjeffa, góðærið mikla bjö1og ragnarök þess, þá heimurinn hrundi á Íslandi. Á þeim tónleikum mun gosaspilskórinn Gelgjurnar flytja óratóríuna Björgólfur í banastuði eftir Gylfa Ægisson og menúettinn Kúlulán á Kirkjusandi eftir Bjarna Ármannsson. Þá ætlar hin fornfræga hljómsveit Eignastýringarupparnir að koma sama eftir árs hlé og leika Poppmessuna um Peningabréfin, eftir Einarsson og Sigurðsson og Glitnir hátt á himni skín, eftir Baldvinsson og Jóhannesson. 


mbl.is Halda minningartónleika um sparisjóðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórhýðingar og íslenskar stuttpilsur

EldamennskaÞeir eru heppnir útrásarvíkingarnir okkar og pólitísk handbendi þeirra, að ekki skuli vera í gildi lög um stórhýðingar afbrotaskunka. Ef eitthvert réttlæti væri fyrir hendi hér á landi, væri löngu búið að kagahýða fjárglæfrarotturnar íslensku fyrir löngu við hátíðlega athöfn á viðeigandi stað.

Hvað varðar súdönsku stelpuna í stutta pilsinu, sem fékk fáein vandarhögg á óæðri endann, ber að hafa í huga, að stjórnvöld þar syðra hafa auðvitað borið velferð stúlkunnar fyrst og fremst fyrir brjósti þegar þau létu embætta hana til að varna því að hún verði hórnum að bráð.

Hér á Íslandi hefur til margra ára viðgengist vítavert kæruleysi stjórnvalda varðandi pilsasídd kvenna. Hér hefur allskonar kvenpéníngur fengið að valsa um götur í ofurstuttum pilsum eða kjólum og nærbuxnalausar undir, meira að segja nýmóðins alþingiskonur hafa orðið uppvísar að því að sveima um sali Alþingis í þessháttar múneringu. Að sjálfsögðu er slíkt athæfi gjörsamlega óþolandi gagnvart blygðunarkennd heiðarlegs fólks.   


mbl.is Táningsstúlka húðstrýkt opinberlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðrétting: Hóparnir eru 6 en ekki 4 og ekki allir jafn fámennir

bóndiÉg verð því miður að gera örlitlar athugasemdir við fréttina um íslendingana sem vekja svo mikla athygli á Kanaríeyjum þessa dagana. En þó að athugasemdirnar séu fáar og smár skipta þær sam máli þegar fjallað er þetta málefni.

Satt er það, að ferðalangarnir 100 hafa skipt sér í hópa, en þessir hópar eru sex en ekki fjórir eins og mbl.is segir í fréttinni. Það er ennfremur hárrétt, að það eru starfræktir hópar sem leggja stund á slökun, fjallaferðir, vantnsíþróttir og fjölskylduferðir. En af einhverjum ástæðum eru þessir fjórir hópar ákaflega fámennir: Í slökun eru 2, í fjallaferðum 1, í vatnsíþróttum 4 og í fjölskylduferðum 2. Sem sé, að í hinum tilgreidu hópum mbl.is, eru samtals 9 manns. En í hinum tveimur ónefndu flokkum eru aftur á móti 91. Þar af eru 52 í barflokknum, og 39 í hóruhúsa- og strípibúlluflokknum.

Stríðsástandið af völdum íslendingana á börum Tenerífe hefur heldur ekki farið framhjá heimamönnum; þar hefur bókstaflega allt verið í báli og brandi síðustu daga, t.d. kveiktu íslendingarnir í einum barnum svo hann brann til kaldra kola. Af hóruhúsa- og strípibúlluflokknum er svipaða sögu að seja. Á einu virðulegasta vændishúsi Kanaríeyja börðu þeir pútnamaddömuna svo rækilega, að hún hefur á hvorugum eindanum getað staðið síðan, þar að auki eru stelpugálurnar, sem þar vinna, svo illa leiknar og aðframkomnar, að staðurinn hefur verið lokaður síðan íslenski hópurinn var þar í heimsókn.

Það er því ekki að undra, landar vorir hafi vakið athygli og gert garðinn frægan á Kanaríeyjum uppá síðkastið.


mbl.is Íslendingar vekja athygli á Kanarí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á svona fíflagangur að þýða?

Það dálítið merkilegt, þó ekki sé meira sagt, að Sjómannafélag Íslands skuli á þessum tímapunkti rakna úr góðærisrotinu til að mótmæla fyrirhuguðu afnámi sjómannaafsláttar með því hvetja sjómenn til að sigla í land.

Ég minnist þess ekki að fyrrgreint sjómannafélag, né önnur sjómannafélög, hafi mótmælt einu eða neinu með viðlíka hætti í mörg herrans ár, þrátt fyrir að meiri ástæða hafi verið til. Afhverju hafa sjómenn t.d. aldrei mómælt þeirri staðreynd, að útvegsmenn hafi rænt gjörvallri íslensku fiskveiðilögsögunni til að braska með aflaheimildir sín á milli?; að útgerðarmenn hafi gert fjölda sjómanna að leiguliðum í kvótakerfinu, arðrænt suma hverja innað skinni; látið þá taka þátt í olíukostnaði langt umfram raunverulegan olíukostnað; stillt þeim upp við vegg með hótunum um atvinnumissi ef þeir eru ekki tilkippilegir í brjóta kjarasamninga, taka þátt í kvótakaupum, stunda brottkast og framhjálandanir og gera sér að góðu fiskverð sem ákveðið er einhliða af útgerðarmönnum? Hvað á svona helvítis fíflagangur að þýða?

En þegar til stendur að afnema ríkisstyrk til útgerðarinnar í formi svokallaðs sjómannaafsláttar, rísa góðvinir stórútgerðarinnar í Sjómannafélagi Reykjavíkur uppá afturlappirnar eins og draugar frá sautjándu öldinni og mótamæla og heimta að skipin verið bundin við bryggju þar til ríkisstjórnin hætti við að afnema þennan umdeilda ríkisstyrk til útgerðarmanna. 


mbl.is Hvetja sjómenn til að sigla í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarnes á barmi borgarastyrjaldar

mafia.jpgÞað var aldrei ekki risi upp hugsjónaþrungin borgarskæruliðasveit í Borgarnesi. Þegar menn eru farnir að grýta lögreglustöðina í sínum heimabæ með eldsprengjum er ljóst að viðkomandi byggðarlag er farið að ramba á barmi borgarastyrjaldar og þá getur orðið aldeilis líf í tuskunum, ef vel tekst til. Það fylgir fréttinni af ófriðnum í Borgarnesi, að lögreglan þar á bæ hafi svarað árásinni með því að handtaka fáeina óharðnaða ungliga, frekar en ekki neitt. Auðvitað eru blessuð börnin alsaklaus af tilræðinu við lögreglustöðina, þar hafa eldri og reyndari menn, eða jafnvel konur, verið að verki. Nú bíður maður spenntur eftir því, að ráðhús borgnesinga verði sprengt í loft upp, sem og Hyrnan og sjálf Borgarfjarðarbrúin.

Mikið er gleðilegt, að enn skuli vera til menn í Borgarfirði, sem eiga ættir sínar að rekja beit til Egils sáluga Skallagrímssonar á Borg og að blóð þessa mesta borgnesings fyrr og síðar sé ekki með öllu útdautt í æðum heimamanna.


mbl.is Köstuðu bensínsprengjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband