Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Að drekka sig útúr kreppunni er göfugt ráð

Þetta líkar mér. Besta ráðið til að lifa kreppuna af, er drekka sig úrúr henni; vera vitstola af áfengisnautn þar til gjörningarveðrinu af völdum frjálshyggjunnar er afstaðið.

Ég þekki mann sem hefur ekki á heilum sér tekið undanfarnar vikur af áhyggjum af framþróun verðlags á brennivíni. Að sönnu brúkar þessi maður mikið vörur sem hann kaupir í verslunum ÁTVR, svo áhyggjur hans eiga við viss rök að styðjast í ljósi þess að honum er mjög í mun að halda uppi ásættanlegum samkvæmisdampi. Og í dag eyddi þessi ágæti kunningi minn öllum mánaðarlaunum sínum í bjór og brennda drykki, þannig að nú lítur íbúðin hans út eins og lager vínbúðar. Minn maður var að sönnu rogginn þegar hann var búinn að bera allar kreppuveigarnar inn til sín; kvaðst vera að græða svo og svo mikið með því að gera innkaupin fyrir mánaðarmót því ef hann hefði beðið fram á mánudag hefði hann orðið að leggja út 40 - 50 - 60% meira í reiðufé fyrir herlegheitin.

 


mbl.is Örtröð í verslunum ÁTVR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað eru þeir hæfir

Það held ég sé minnst mál í heimi fyrir ráðaklíkuna í landinu að rannsaka sjálfa sig, syni, dætur, maka og reglubræður. Ég hef lengi vitað að mikil spilling væri við lýði á okkar litla Íslandi, en að gangverk þjóðarinnar væri eins gjörspillt og nú er koma í ljós held ég að engan hafi órað fyrir. Úr þessu getur framvindan ekki orðin nema á einn veg ...
mbl.is Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-talíbanarnir innan samtaka launafólks

Ætli fari ekki best á, að Skúli Thoroddsen, sem og aðrir skrigstofusjakalar og möppunagdýr innan ASÍ, hafi sig hæg og reyni að hafa vit á halda sér saman. Hvar var þetta fólk meðan frjálshyggjuofviðrið geysaði á Íslandi? Hver var afstaða þess til einvæðingar, útrásar og fjármálabrasks? Ég veit ekki til þess að skriftofusjakalarnir hafi gert stórar athugasemdir við græðgidjöfulskap síðustu ára. Það þýðir lítið fyrir Skúla Toroddsen og hans líka að koma núna grenjandi fram á sjónarsviðið og bölva Sjálfstæðisflokknum í sand og ösku og bregða Samfylkingunni drullusokkshátt á brýn, vegna þess að Skúli, Kristján í Keflavík, Gylfi Arnbjörnsson og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir eru öll algjörlega samdauna stjórnmálaflokksnefnunum sem staðið hafa að ríkisstjórnum síðustu 17 ára.

Það þýðir heldur ekkert fyrir hálaunaaðalinn í ASÍ og landsamböndum þess, að reyna að telja almenningi trú um að öll mein muni lagast á Íslandi á augabragði ef við göngum í auðvaldsbáknið ESB. Raunar er ESB- söngur þessara furðudýra af þeim toga að manni stendur ekki á sama. Það er engu líkara en þau hafi verið gripin ofsatrúarbrjálsemi af versta tagi; allt er ómögulegt og vonlaust nema íslendingar frelsist eilífrar hymmaríkissælu ESB.

Það er vægast sagt sorglegt að verða vitni að umbrotum ESB-talíbanana því þau eru aðeins til þess fallin að drepa á dreif þeirri uppbyggingu sem óhjákvæilega verður að fara fram á hér á landi á næstunni.    


mbl.is Þjóðin í gíslingu Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim verður ekki fyrirgefið

Ætli yfirtakan á Glitni hafi á þeim tímapunkti sem hún fór fram hafi skipt nokkrum sköpum til eða frá, þetta var allt hrunið hvort eð var. Hinsvegar er það algjört dómgreindarleysi af útrásarræflunum að voga sér að koma fram fyrir alþjóð og rífa kjaft eins og þeir séu alsaklausir. Það virðist sem þessir menni kunni ekki að iðrast gjörða sinna, hvað þá biðjast fyrirgefningar.

En máske vita þeir sem er, að þeim verður ekki fyrirgefið það tjón sem þeir hafa valdið landi og þjóð.


mbl.is Misráðin ákvörðun sem endaði með skelfingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei á sinni lífsfæddri ævi séð annað eins

Þeir hlógu víst ekki lítið forsætisráðherrar hinna Norðurlandanna að Gjeir okkar hérna Haaarde í dag. Um það ber öllum vitnum saman. Ennfremur segja vitnin, að engu hafi verið líkara en forsætisráðherrarnir hafi aldrei á sinni lífsfæddri ævi séð annað eins finngálkn og umræddan Gjeir.

Og kátína starfsbræðra Gjeirs er ofur skiljanleg: Það er ekki á hverjum degi að maður, sem ætti að vera búinn að segja af sér sökum afglapa, kemur sprangandi inn á fundi erlendra ráðamanna með betlistaf í hönd og reynir að grenja sig alhvítan, saklausan ... og heilagan ... og biðja um lán!

Er ekki rétt að fólkið í landinu taki í taumana og hjálpi Gjeir karlanganum, og hans slekti, að hætta þesum loddaraleik?  


mbl.is Ánægður en málinu ekki lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kratageiturnar berjast fyrir sölu á sjálfstæði Íslands

Þær láta ekki deigann síga, kratageiturnar, í viðleitni sinni að ljúga íslensku þjóðina inná að selja sjálfstæði sitt í hendur ESB-auðvaldinu. Það er auðsjáanlegt að þessar hvimleiðu geitur eru að nota efnahafsástandið og hrun frjálshyggjunnar til að reka þjóðina upp að vegg nauðhyggjunnar. - Ekkert misjafnt getur hent okkur ef við værum í ESB, segja talsmenn lágkúrunnar með kjökurviprur á andlitunum. - Ef við hefðum verið í ESB væri allt í hymmnalagi hjá okkur; ef við göngum í ESB fáum við allt fyrir ekkert.

Svo er best að halda því til haga, að það voru þessar sömu kratageitur sem voru á móti því, á sínum tíma, að Ísland segði sig úr lögum við danakonung.


mbl.is Ekki tímabært að ræða um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður glott að okkar manni með betlistafinn

Það held ég forsætisráðherrar Norðurlandanna glotti og flissi að strafsbróður þeirra frá Íslandi á fundinum á morgun. Það ætti svosem ekki að að koma á óvart þó herra Haaarde verði spurður að því á þessum fundi, hvernig í ósköpunum standi á því að hann sé ekki búinn að segja af sér - hvort hann sé að bíða eftir að verða hrakinn frá völdum, steypt af stóli, jafnvel afhrópaður með byltingu.

Ójá, það verður, ef að líkum lætur, lágt risið á okkar manni á morgun, með betlistafinn í hönd, frammi fyrir forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna. 

En vonandi verður ekki langt að bíða þess að gjörvöll ríkisstjórnin verði hýdd, ásamt öllum hennar frjálshyggjubesefum og útrásarjötnum, langs og þvers, svo sem hún á skilið, með betlistafnum sem Gjeir Haaarde mun hökta við í fyrramálið þegar hann heldur til fundar við kollega sína.  


mbl.is Ráðherrar funda um Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á bak við hænsnahóp Framsóknar rorrar andi Halldórs Ásgrímssonar

Það er ekki laust við að maður sjái glitta í sveitt og rauðþrútið frjálshyggjusmettið á Halldóri nokkrum Ásgrímssyni á bak við ESB og evruályktun kjördæmisþings Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Og eflaust leiðist helstu strengjabrúðu Halldórs ekki að ganga erinda hans þarna í norðaustrinu. Allt undir forskriftinni: Selja land - grafa bein. Alveg eins og hjá Samfylkingunni.

Svo leyfir þessi óskammfeilni hænsnahópur sér að hnýta við landssöluhugmyndir sínar, ,,að sú hugmyndafræði sem Framsóknarflokkurinn hafi ávallt byggt á, um öflugt velferðarkerfi á grundvelli þróttmikils atvinnulífs verði höfð að leiðarljósi." Ja, heyra á endemi! Heldur hænsnahópurinn að fólk geri sér ekki grein fyrir, að þau 12 ár sem Framsóknarflokkurinn var í ríkisstjórn á árunum 1995-2007, stundaði hann harðskeytta frjálshyggjupólitík á kostnað velferðarkerfisins?; stóð blóðugur uppað öxlum við að kynda undir hamslausri græðgisvæðingu á einkar ósvífinn hátt, samhliða því að grafa jöfum höndum undan velferðarkerfi og félagslegum viðhörfum?

Sem betur fer eru kjósendur að átta sig æ betur á hverskonar fyrirbæri Framsóknarflokkurinn er. Þannig að allt útlit er fyrir að þessi óþurftarsamtök hverfi á vit feðra sinna við næstu alþingiskosningar. 


mbl.is Vilja ESB-viðræður strax ásamt upptöku evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður að refsa Samfylkingunni líka

Það sem kemur einna skýrast fram í þessari skoðannakönnun, er að fólk virðist ekki vera búið að átta sig á ábyrgð Samfylkingarinnar á efnahagshruninu. Það er eins og það hafi gleymst, að forsprakkar Samfylkingarinnar studdu fjárglæframennina og frjálshyggjuhugsjónina með ráðum og dáð fram á síðustu stundu. Erum við búin að gleyma því að helstu stórmenni Samfylkingarinnar, eins og t.d. Ingibörg Sólrún og Össur Skarhéðinsson, fóru ítrekað í víkingaferðir með fjárglæfralýðnum með það að markmiði að styrkja þá í augum alheimsins, veita þeim ríkisábyrgð og ríkisblessun til frekari efnahagslegra óhæfuverka.

Og ekki má gleyma forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, sjálfum guðföður Samfylkingarinnar. Ekki lét hann sitt eftir ligga að mæra ruglið og rugludallana, þeytast með þeim heimshorna á milli.

Það er ekki nóg að refsa Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Það verður að refsa Samfylkingunni líka eins og hún hefur til unnið.


mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málgagn Sjálfstæðisflokksins og útrásaraðallinn

Morgunblaðið er flokksmálgagn Sálfstæðisflokksins. Á flokksmálgagninu leiftruðu viðvörunarljós í þrjú ár. Flokkurinn sjálfur tók ekki mark á viðvörunarljósum málgagnsins og linnti ekki látum fyrr en allt var farið til fjandans. Nú er það svo, að Björgólfur nokkur Guðmundsson, ásamt fleiri góðum mönnum, þar á meðal Jóni Ásgeiri Jóhannessyni að ég held, hafa undanfarip séð að mestu leyti um rekstur málgagns Sjálfstæðisflokksins. Ekki tóku þessir góðu menn heldur mark á viðvörunarljósum Moggans.

Hvernig ætli standi á svona ósköpum?


mbl.is Baksvið: Viðvörunarljósin leiftruðu í þrjú ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband