Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016

Hvernig Jón iðnaðarmaður vandi Margréti konu sína af hrotum

threy1.jpgJón Jónasson iðnaðarmaður í Reykjavík bjó lengi vel við ægilegar hrotur eiginkonu sinnar, frú Margrétar Bernódusdóttur. Ævinlega þegar þau hjón voru gengin tið náða tók Margrét til við að hrjóta. Hljóðin voru líkust því að verið væri að gangsetja dísilvél í skipi, fyrir nú utan öll soghljóðin og korrið. Af þessari ástæðu svaf Jón iðnaðarmaður ekki heilan dúr árum saman. Hann var ætíð eins og tilgangslaus uppvakningur í vinnunni og þegar heim kom lyppaðist hann útaf við elhúsborðið. Vart þarf að taka fram, að fljótlega verð hann jafn svartur undir augunum og einn okkar ástsælast fyrrverandi forsætisráðherra.

Að lokum gafst Jón iðnaðarmaður Jónasson í Reykjavík upp, svo yfirbugaður á sál og líkama, að hann sá ekki fram á annað en að falla bráðlega frá fyrir aldur fram eða hafna gjörgeggjaður á vitlausraspítalanum á Kleppi, ef hann tæki ekki í taumana. Og honum auðnaist að taka í taumana. 

Um morguninn, eftir að honum tókst að venja Margréti af hrotunum fyrir fullt og allt, orkti hann dálitla ferskeytlu um atburðinn, því Jón er maður hagmæltur og hóflega gamansamur. En vísukornið, sem segir allt sem segja þarf er svo hljóðandi:

Ég hengdi Möggu mína í nótt með snæri
svo mér er þungt um hjartarót af trega,
en Margrét heitin hraut svo gífurlega,
að hér var ekki nokkurt undanfæri.


mbl.is 4 leiðir til að draga úr hrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð gefi oss okkar Kim Jong Ún

hangi2.jpgKim Jong Ún er röggsamur húsbóndi á sínu heimili, mikill sjálfstæðismaður og stórgáfaður í samræmi við það. Lærðir menn og glöggir fullyrða að ef Kim væri Íslendingur á Íslandi væri hann kvótagreifi eða stórbóndi með fjölda hjáleiga og urmul af leiguliðum. Að sjálfsögðu væri hann í Sjálfstæðisflokknum og hefði samúð með Þjóðfylkingunni og Viðreisn og hlustaði sjaldan á annað en útvarp Sugu. Og ég þykist vita að góðir sjálfstæðismenn myndu vilja gefa mikið fyrir að eiga svona mann.

Hitt er svo annað mál, að skítseyðum, sem láta sig hafa að sofna undir ræðuhöldum hjá slíkum manni, er ekki ofgott að finna sjálfa sig fyrir frammi fyrir aftökusveit. Glæpur náungans, sem fór að hrjóta þegar Kim var að tala, er svo ægilegur, að venjulegt fólk hefir ekki ímyndunarafl til að gera sér grein fyrir honum. Þess ber að geta í þessum sambandi, að Kim Jong Ún er réttlátur og góðgjarn og af góðum ættum og auk þess svo gáfaður, að hann sá strax í hendi sér, að óumflýjanlegt væri að lóga skepnunni sem sofnaði.

Morgunbæn vor hér á Íslandi hljóðar í dag uppá að Guð gefi oss sterkan og réttlátan foringja sem vakir dag og nótt yfir velferð þeirri sem vér sjálfstæðismenn sættum oss við, og láti skjóta og hengja sofandi framsóknarlarfa og kommúnistafífl eins og hvurja aðra ófriðaða vargfugla.


mbl.is Sofnaði á fundi og tekinn af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónusvíkingarnir í tómu jakkafötunum

peningar2Helvíti eru þeir nú miklir bónusvíkingar þessir bankajötnar sem líta út eins og galtóm jakkaföt. Mér er sem ég sjái bónusfrauku í snyrtingu og pökkun í frystihúsi innbyrða önnur eins býsn af bónusum og þessi pappírsvillidýr í og í kringum bankana, fjárfestingasjóðina og kauphöllina. Að vísu fær bónusfraukan í frystihúsinu að borga hluta af launum sínum í lífeyrissjóð svo forstjórinn þar geti ekið um á 40 milljon króna jeppa og tómu jakkafötin gamblað með þessa samskotaaura vinnudýranna.

Annars sanna bónusumsvif eignarhaldsfélags Kaupþings og annarra viðlíka stórtöffara enn og aftur kenninguna um að besta ráðið til að ræna banka sé að eiga bankann sjálfur. En sjálfsagt eru þeir sem úthluta sjálfum sér gríðarlegum peningafúlgum afskaplega duglegir, fyrir nú utan hvað þeir verða stórkostlega hamingjusamir í þessu peningabaði sem þeir skenkja sér. En það þýðir nú víst lítið að rexa og röfla yfir arðráni og auðvaldsósvífni á meðan langflest landsins börn samþykkja kapítalískt þjóskipulag í öllum kosningum sem þeim bjóðast. Okkur væri hollast að grjóthalda kjafti og gleðjast þegar við fréttum af góðum bónusum, þótt okkur finnist þeim dálítið skrýtnir.

Svo ber þess að geta, að Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hefir þegar innheimt ákveðinn hluta af öllum þessum bónusum útum hvippinn og hvappinn og lagt aurana inná bók Framsóknarflokkinn því það á víst að fara að kjósa. Hið sama hefir og eiginkona hans, frú Ingveldur gjört fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hlutirnir ganga sem sagt sinn vana gang eins og vel smurð maskína og enginn uppáfallandi voði er í sjónmáli, nema ef til vill eitt og eitt Hrun á stöku stað, svona eins og gengur.


mbl.is Bónusgreiðslur Kaupþings samþykktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugaður garpur Kolbeinn knattspyrnukappi.

ball_1132817.jpgHann er svei mér hugrakkur hann Kolbeinn okkar hérna knattspyrnukappi, að vaða eins og blindur kettlingur beint í ginið á Erdógan og hinum hundtyrkjunum. Vonandi að Erdógani detti ekki skyndilega í hug, að þessi ljóshærði Íslendingur sé áhangandi og kommissar þess arma þrjóts Gúlens, sem Erdógan kennir um meint valdarán í Tyrklandi í sumar. 

Í gömlum fræðum segir, að einn af helstu hugsuðum á fyrstu áratugum síðustu aldar hafi sagt, þegar hann frétti af morðinu á Ferdínandi heitnum úti á götu í Sarajevó, að þetta væri Tyrkjans verk, og í framhaldi af því spáði hann stríði. Þetta með stíðið rættist svo sannarlega, því friðardúfur evrópsk kapítalisma gerðu út tvær sallafínar heimstyrjaldir á 30 árum þannig að Evrópa var ein rjúkandi rúst á eftir, sem aftur tryggði auðvaldinu framúrskarandi hagvöxt, einkum eftir að mestu stríðslátunum var lokið og rústabjörgunin hófst.

Nú, þá þarf varla að minna á Tyrkjaránið á sautjándu öld. Það var nú heldur en ekki dægileg framkoma við oss Íslendinga. En uppúr Tyrkjaráninu spratt Tyrkja-Gudda og hann Hallgrímur sálugi Pétursson og Passíusálmarnir og síðar Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti, sem illkvittnir unglingar kölluðu ,,Drottins dýrðar drelli" allt fram á áttunda áratug tuttugustu aldar. Reyndar var alltaf eitthvað málum blandið með ábyrgð Tyrkja á Tyrkjaráninu, því sumir fullyrða að það hafi verið hollenskir auðvaldsbelgir og þorparar sem hafi átt og gert út tyrkjaránsskipin og áhöfnin hafi verið allra þjóða kvikindi með fremur vafasama fortíð og bakgrunn. En þar eð Kolbeinn knattspyrnukappi er vel kunnugur hollendingum og haft þá tvívegis undir á vellinum, þá er ég ekkert hræddur um hann í Tyrklandi, enda hefir hann skellt þeim líka. 

Þess skal getið hér af augljósri ástæðu og gefnu tilefni, að Kolbeinn á knattspyrnuvellinum er lítið, svo vitað sé, í ætt við Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann. 


mbl.is „Gat ekki sagt nei“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vörubifreiðarstjórar ekki stuðningsmenn Struttludögunnar

drunk1_1048452.jpgÞað var mikill búhnykkur fyrir landsmenn þegar stjórnmálaflokkarnir Sturla Jónsson og Dögun sameinuðust í eina breiðfylkingu uppbótamanna. Arnfreður Lyngdalh vörubifreiðarstjóri sagði af því tilefni, að skjaldan hafi tekist eins vel að sameina stjórnmálaflokka sem aungin eftirspurn er eftir. Arnfinnur, sem er ekki stuðningmaður hinnar sameinuðu Struttludögunar, er enn fremur þeirrar skoðunnar, að vörubifreiðarstjórar séu langflestir vörubifreiðarstjórar séu það vandir að virðingu sinni, að þeir geti ekki komið nær Alþingishúsinu en því nemur að þeir geti kastað skít í það. Þess vegna er Sturla á algerðum villugötum", segir Arnfreður Lingdalh.

Af þessu má sjá, að vörubifreiðarstjórar eru andsnúnir pólitísku brölti Sturlu Jónssonar vörubílsstjóra og hafa því vísað honum á dyr. 

Af Arnfreði Lingdalh er það helst að frétta, að hann ók í ógáti yfir tvo lögregluþjóna á dögunum, og hafa þeir af einhverjum ástæðum ekki sést síðan. Að vísu var Arnfreður drukkinn við þetta tækifæri, en samt ekki svo að hann sæi ekki þegar lögreglumennin hurfu undir bifreið hans. Þennan sama dag ók Arnfinnur með farm sinn austrá Hornafjörð og stoppaði aldrei á leiðinni því að hann meig í bokkurnar þegar hann var búinn að tæma þær og kastaða þeim svo útum gluggann. Engum sögum fer af því hvort Arnfinni tóks að keyra niður ferðamenn á leið sinni, en eftir að hann átti leið þarna um fundust allmargir ósjálfbjarga ferðalangar, útlenskir, utaní vegköntunum, margbeinbrotnir og hágrenjandi. Allir báru þeir, að ægilegur trukkur hefði þotið framhjá þeim á ofsahraða og að bifreiðarstjórinn hefði tekið þá með hurðinni og þeir kastast marga metra útfyrir veg.


mbl.is Sturla með meira fylgi en Sturla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugguleg hugmynd frú Ingveldar

hookÞað er víst andskoti lítið við því að gera að einhver manngarmur í Þýskalandi hafi troðið fiskikróki gegnum leyndarlim sinn, hann verður að ráða framúr því vandamáli sjálfur. Hinsvegar fékk frú Ingveldur óhuggulega hugmynd er hún las þessa frétt. Henni datt sem sé í hug að gaman væri að þræða saulifnaðardindilinn á honum Kolbeini uppá lúðuaungul og láta hann sprikla með hann úti á götu, fólki til skemmtunar. Sem betur fer á frú Ingveldur ekki einn einasta aungul til í eigu sinni þannig að hugmyndin féll um sjálfa sig.

En hvað hefði Kolbeinn getað gert ef eiginkona hans hefði vaðið að honum með skaðræðis krók í annarri hendinni og reynt að stinga honum í gegnum tillann á honum eins og hann væri ánamaðkur? Nú, hann hefði ekki getað neitt; honum hefðu verið allar bjargir bannaðar; endalokin á sérkennilegri ástarferð hans um heiminn hefðu verið ráðin. Það hefði verið betra ef frú Ingveldi hefði dottið í hug að traktéra Brynjar Vondulykt með lúðuaunglinum, sá skratti er nú búinn að vinna sér inn slíka meðhöndlan.

Einhverju sinni fóru frú Ingveldur og Kolbeinn með Máríu Borgargagni og Indriða Handreði í laxveiðiá. Þaðan rak veiðivörðurinn þau á fyrsta degi með þeim orðum að árbakkarnir væru ekki ætlaðir til blygðunarlauss stóðlífis, og hann gerði nærbuxur frú Ingveldar og Borgargagnsins upptækar og svaf með þær á höfðinu um nóttina. Morguninn eftir sauð hann sér súpu úr flíkunum og lenti á spítala með brókarsótt fyrir vikið.  


mbl.is Fékk öngul í typpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúnstug múgfirring brostin á ...

AuðvaldskrakkiHvernig sem á því stendur þá virðist brostin á lítilfjörleg múgfirring sem lýsir sér á þann veg, að dálítill hópur fólks sér sig knúið til að verja vissa hörmung sem ekki er á nokkurn hátt verjandi. Varnarræðurnar steyma þessa dagana eins og skítugar fúasprænur úr kunnugum fjóshaugum og eru eflaust til þess ætlaðar að lengja pólitíska lífdaga einhvers hjákátlegasta stjórnmálamanns sem fram hefir komið á Íslandi á síðari öldum. Þessi Æritobbi stjórnmálanna, sem kunnur er af innihaldslausu grobbi, er nú í þeirri stöðu, að húsbóndi hans, gamla Framsóknarmaddaman, treystir sér ekki lengur til að ala pólitíska önn fyrir honum og vill hann burt úr öllum bókum Framsóknarfjóssins; sú gamla hefur meðal annars látið útúr sér í hóp útvaldra húskarla og griðkvenna, að ekki sé lengur verjandi að hafa þennan kynduga súkkulaðipjakk fyrir formann og þá ekki heldur á framboðslista flokksins.

Kolbeini Kolbeinssyni er málið kunnugt og hefir hann staðið í ströngu við að reyna að koma í veg fyrir að Æritobbi verði klappaður upp. Hann hefir rekið sig á, að við ramman reip er að draga, því ruddamenni úr öðrum flokkum vinna nú hörðum höndum við að endurreisa hinn laskaða formann Framsóknarflokksins, honum og Framsóknarflokknum til háðungar. Æritobbi hefir auðvitað aungann skilning á að dólgar úr myrkviðum Sjálfstæðisflokksins séu að spila með hann eins og auðvirðilegt hirðfífl og mænir uppá þá eins og einn sólargapi.

En hin sprungna formannsblaðra Framóknar á samt enn einn sannan hauk í horni þar sem Þjóðfylkingin er. Frá Þóðfylkingarhersveitinni renna varnarræður fyrir drenginn fram af tvíelleftum þrótti á internetinu og útvarpi Sugu. Því miður virka varnarræður Þjóðfylkingarhermannanna öfugt við það sem þeim er ætlað; að fá liðsauka úr þeirri átt kemur einungis meira óorði á framsóknarfrömuðinn og setur honum þann stimpil að hann sé kolvitlaus öfga- og æsingamaður sem aldrei sést fyrir í vitleysunni. Að öllu samanlögðu, þá eru öll sund lokuð fyrir Sigmund Dávíð, hann verður að leggja niður skottið og láta sig hverfa útí eyðimörkina, nema hann söðli um og fari hreinlega í Þjóðfylkinguna, það kvað vera eftirspurn eftir hönum. 


mbl.is Aldrei kynnst viðlíka óheiðarleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Visindin gjörsamlega ráðþrota í baráttunni við hinn skæða vírus

drayefi.jpgVeslings blessaðir mennirnir að vera svo helteknir af hinum illvíga framsóknarvírus, að taka sæti á lista hjá þessum hryllilegu öfgasamtökum. Satt er það, að færustu vísindamenn á sviði lækninga og sálfræði eru gjörsamlega ráðþrota gagnvart þessum ofboðslega vágesti og hafa þar af leiðandi ekki fundið upp nægilega sterkt efni til að drepa vírusinn alveg. Gottfreð læknir hefir að vísu náð dágóðum árangri í framsóknarlækningum, en því miður hafa sjúklingar hans allir, eða langflestir, steindrepist fáeinum mínútum eftir að Gottfreð sprautaði hinu freyðandi framsóknarvísuseitri í þá. Þessir fáu sem sloppið hafa lifandi hafa orðið svo geggjaðir af framsóknarsjúkdómnum að þeir eru gengnir í Þjóðfylkinguna og láta þar svo illum látum, að einungis kleppsmenn sýna eitthvað sambærilegt af sér.

Í vetur reyndi Gottfreð læknir að lækna píratagrey af sinni veilu, en það tókst ansi illa. Píratinn breyttist á svipstundu, eftir að hafa fengið bleika froðuupplausn úr sprautu Gottfreðs, úr villuráfandi meinleysisdulu í einn hroðalegan monster, ófreskju sem er til alls vís í framtíðinni. Gottfreð gaf þá skýringu á óförunum, að hann soðið veirumeðalið í píratann uppúr framsóknarvírusvörn og því hafi allur bati farið í vaskinn.

Með samstilltu átaki tóks oss Íslendingum að útrýma berklaveikinni á sínum tíma og stundum lúsinni. Því ætti oss ekki að takast líka að útrýma framsóknarvírusnum, krataeðlinu og hinu gráðugu auðvaldspest sem hrjáir Sjálfstæðisflokksmenn og dregur þá annað hvort til dauða eða inná Klepp?


mbl.is Makar sessunautar á framboðslista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trumbuslagari veitir Gústavusi róttæka ráðningu

skáti5Svo er að sjá að Waage trumbuslagari hafi veitt Gúsavusi Nílsen þvílíka ráðningu á Bylgjunni í morgun, að ólíklegt má telja að sá síðarnefndi þori nokkurn tíma að láta sjá sig á almannafæri meir. Og vissulega ættu bræður Gústavusar og systur í illyrmishættinum og lágmennskunni, svo sem eins og Jón lögmaður, Magnús Þór, Magga Frikka og Arnthrúður á Sugu að skríða ofaní kjallarana heima hjá sér og halda sig þar svo lengi sem hausinn á þeim er yfrumfullur af andstyggilegum meinlokum og þráhyggju.

Síðar í dag ætla ég að gera mér far um að finna þáttinn þar sem Waage trumbuslagari flengdi Gustavus og njóta þess að hlusta á meistaraverkið. Svo verður að ráðast hvort Gústavus lætur sig hverfa úr augsýn siðaðra manna, eða hvort hann heldur áfram að láta heiðvirða borgara tukta sig til fyrir allra auguum og eyrum eins og heimskan og framhleypinn götustrák, sem sérhæft hefir sig í að pissa úr launsátri á gamlar konur.

Það er sagt að þeir byrji snemma á óknyttunum ólánsmennirnir. Hitt er fáheyrðara að fólk hefji raunarlega óknyttasögu sína þegar það er komið á miðjan aldur og þar yfir. En nú hefir það því miður gerst að giljagaurar, sem orðnir eru afar og langafar, já og langömmur, hafa tekið sig til og gerst nýrassólfar eða jafnvel eitthvar verra og farið að ofsækja múslima og einn meir þá sem vilja taka vel á móti stríðshrjáðu fólki á flótta. Það var til dæmis ákaflega kaldranalegt á að hlýða, þegar lítil ljóshærð telpa, á að giska 9 ára, í gulum kjól og með blóm í hárinu, fór að hæla sér af því að eiga langafa og langömmu, sem ætluðu bráðlega að fara að veiða múslima í dýraboga og sálga þeim. Ég er viss um, Spæta mín stillt og hljóð, að hann Hilter hefði verið stoltur af að eiga slíkan afkomanda.


mbl.is Segir Gústaf Níelsson vera ný-rasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvern fjárann þykist þessi Viðreisn ætla að reisa við?

cap2_1255269.jpgHvaða tegund Íslendinga er það sem vill fá kúludrottningar og prinsa Hrunsins í framboð? Það hlýtur að vera vafamál hvort umrædd tegund eigi yfir höfuð að njóta kosningaréttar og enn síður kjörgengis. Það getur eiginlega ekki verið, en það vona ég að minnsta kosti, að það sé vilji fyrir því hjá alþýðu Íslands, eða þeim er ekki teljast til alþýðunnar, að fá fólk eins og Thorgerði Katrínu, Þorstein Víglundsson, Þorstein Pálsson og Benedikt Jóhannesson til starfa á Alþingi og jafnvel í stjórnarráðinu. Það eru aðeins hálfgeggjaðir ekkifréttamenn fjölmiðlanna sem eru spenntir fyrir svona heimskupörum og ýta undir þau af öllum mætti, en þeir eru nú líka flestir hálfgeggjaðir og sumir heilgeggjaðir.

Því miður er það ekki Viðreisn ein og fréttamannaviðrinin sem sekir er um að berjast við að troða pólitískum vandræðagemlingum í æðstu stjórnunarstöður ríkis og sveitarfélaga. Núverandi ríkisstjórnarflokkar eru frægir fyrir þessháttar vinnulag og stjórnarandstöðuflokkarnir eru undirlagir af hugsjónalausum lukkuriddurum og loddurum. Það er lágmarkskrafa, sem hægt er að gera til stjórnmálaflokka sem skipa framboðslista til almennra kosninga, að vanda val sitt á frambjóðendum, en mikill misbresur hefir verið á því síðustu áratugi. Tilgerðarlegir spjátrungar, valdaklíkusleikjur og eðlislægir óþokkar hafa því miður verið furðu áberandi í efstu sætum framboðslistum og afskræming og eyðilegging samfélagsins í samræmi við það.

 Að lokum: Hvað ætla braskarastéttin og spjátrungar samtaka atvinnurekenda að reisa við með þessari Viðreisn sinni? Hefur núverandi stjónvöldum ekki vegnað nógu vel, að þeirra mati, í viðleitni sinni við að endurheimta ástandið sem gerði Hrunið mikla að veruleika? Það er nefnilega nákvæmlega ekkert í sjónmáli, sem alþýðu manna skiptir raunverulega máli og viðreisnarskoffínin hafa áhuga á að reisa við; þeirra hugsjón og ímyndunarafl einskorðast við braskið, svindlið og sjónhverfingarnar.


mbl.is Þorgerður Katrín ekki tekið ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband