Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Borgarstjórnin má ekki smitast af fransós

Það er náttúrlega algerlega rökrétt að láta manninn, Ólaf F. Magnússon, skila læknisvottorði þegar honum þóknast loks að mæta til borgarstjórnarvinnu. Aðrir borgarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að gengið sé úr skugga um að karlinn sé ekki með fransós eða aðra hvimleiða smitsjúkdóma. Það væri aldeilis þrifalegur andskoti ef öll borgarstjórnin sýktist af nefndum hjarðsveinasjúkdómi fyrir ófyrirgefanlega handvömm á borð við að gleyma að heimta læknisvottorð af aðila sem hefur verið veikur. Í þessu tilfelli eru hæg heimatökin fyrir fyrrum sjúkling því hann er læknir sjálfur og getur því auðveldlega gefið út skothelt heilbrigisvottorð fyrir sjálfann sig. Þetta gerði Björn Ingi í Rey málinu góða. Hann útbjó sitt eigið læknisvottorð sem núverandi félagar hans í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur tók gott og gilt. 


mbl.is Ólafur F. látinn skila vottorði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rammvillt stjórnarandstaða í hremmingum

Ögmundur Jónasson veltir fyrir sér hvort verið sé að taka upp ný vinnubrög á Alþingi, þ.e. að hafa að engu sjónarmið stjórnarandstöðunnar. Nú má svo sem vel vera að Ögmundur hafi rétt fyrir sér, en það getur líka verið að hann hafi á röngu að standa í þessu máli. En núverandi stjórnarandstað er líka kapítuli út af fyrir sig. Miðað við það sem af er þessu kjörtímabili er ekki annað að sjá, en stjórnarandstaðan sem nú er uppi, sé einhver sú al-lélegasta sem um getur á Íslandi. Enda engin furða: Stjórnarandstöðuflokkrnir, VG, Framsókn og Frjálslyndi flokkurinn, standa afar illa að vígi um þessar mundir; virðast rammvilltir í einhverkonar pólitískri holtaþoku sem þeir hafa álpast út í og eins og staðan er í dag, er allsendis óvíst að þeir eigi afturkvæmt úr þeim hremmingum.

Auk þess legg ég til, að raunverulegur vinstriflokkur verði stofnaður hið bráðasta á Íslandi.

 


mbl.is Vildu fresta annarri umræðu um fjárlög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennivínsþjófar og alvöruþjófar.

Það er auðsjánlega ekkert gamanmál fyrir fólk að stela sér dálítilli brjóstbirtu í umdæmi stjörnusýslumannsins mikla með þvaglegginn. Það verður að teljast andskoti vel í lagt að dæma mann í mánaðar fangelsi fyrir að næla sér, í óleyfi, í hálfan líter af áfengi. En þar sem stjörnusýslumaðurinn er ekkert blávatn, lætur hann augvann komast upp með neitt múður refsingarlaust því agi verður að vera. Nú er svo komið, að fáir, ef nokkrir, þora að hreyfa legg eða lið í Árnessýslu af dauðhræðslu við yfirvaldið, sem fer svo mikinn þessa dagana að jörðin bókstaflega skelfur undir fótum hans. En síðustu jarðskjálftar á Suðurlandi áttu upptök sín, samkvæmt jarðvísindadeild Veðurstofunnar, á Selfossi, nánar tiltekið undir iljum stjörnusýslumannsins.

En þessi skemmtilega frétt um 30 daga fangelsi yfir lítilfjörlegum brennivínsþjófi, leiðir hugann ósjálfrátt að þjófum sem hafa t.d. rænt heilli fiskveiðiauðlind. Hvað verðskulda slíkir ódámar langa fangelsisvist ? 


mbl.is Mánaðar fangelsi fyrir að stela vodkapela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málstaður femínista

Það er áreiðanlega rétt hjá yfirstéttarfémínístunum að neita að taka þátt í umræðum í Sifri Egils, sem og öðrum þáttum þar sem þeir þurfa að skiptast á skoðunum annað fólk, enda hafa fémínístarnir ekki riðið feitum hesti frá slíkum umræðum. Fémínístarnir hafa nefnilega sérstakt lag á að verða sér til skammar í þáttum eins og Silfri Egils og stundum all-rækilega, eins og frammistaða Sóleyjar Tomm og Atla Gíslasonar í Silfrinu hafa sannað. Og hver er ástæðan? Jú, málstaður yfirstéttarfémínísta er hæpinn, að ég segi ekki fráleitur, og þessháttar skítahrúgu er ekkert sældarlíf að verja.  


mbl.is Konur sniðganga Silfrið í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun um VG og femínistana

Af gefnu tilefni hef ég sett upp skoðanakönnun um hvort hinn alræmdi yfirstéttarfémínísmi muni ganga af VG dauðu. Ég rekst æ oftar á fólk sem hefur á orði, að ef VG víkur ekki fémínísmanum, sem þar er hvað mest í tísku, til hliðar án tafar, muni flokkurinn bráðlega líða undir lok. Í framhaldi af þeirri umræðu datt mér í hug að bera þessa spurningu undir þá sem heimsækja bloggsíðuna mína.

Bómullarbörn og kvótaerfingjar

Á vef Fiskifrétta, skip.is, segir frá því þann 12. nóvember s.l. að stofnað hafi verið ,,Félag ungs fólks í sjávarútvegi" skammstafað FUFS. Nú mætti ætla á nafgiftinni, að um sé að ræða merkan þjóðþrifaselskap eihverskonar nútíma fjölnismanna. En þegar betur er að gáð, kemur í ljós að þarna er á ferðinni félagsskapur einsleitra ,,kvótaerfingja" og mökkruglaðra frjálshyggjudrengja. Það er ljóst, að miðað við mannvalið sem að þessum ósköpum stendur, þá er hið svokallaða ,,Félag ungs fólks í sjávarútvegi" gjösamlega marklaust fyrirbæri, nema ef til vill í heilabúum þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og rændu fiskveiðiauðlindinni frá fólkinu í landinu, með þeim ágæta árangri að sjávarbyggðirnar eru flestar hverjar rjúkandi rúst og eiga sér varla uppreinar von nema þær verði frelsaðar undan oki þeirra manna sem sölsað hafa auðlindina undir sig af slóttugheitum í skjóli úrkynjaðra stjórnvalda.

Mér segir svo hugur um, að krakkatítlurnar sem þykjast hafa stofnað ,, Félag ungs fólks í sjávarútvegi" séu mestan þart grey sem fædd eru með gullskeið í trantinum og aldrei hafa stungið hendi í kalt vatn, hvað þá migið í saltan sjó. Alfa og omega hugsjóna þeirra er að berjast fyrir að festa núverandi kvótakerfi svo vel í sessi, að eigendur auðlindarinnar, fólkið í landinu, tapi þessari dýrmætu eign sinni lögformlega í gráðugar lúkurnar á sjúkum kvótaröftum og erfingjum þeirra. Auðvitað verður hinum ungu endemum ekki að ósk sinni. Kvótakerfið mun líða undir lok fyrr en nokkurn grunar og þar með missa grey garmarnir af fyrirhuguðu erfðagóssi. Sem betur fer.

Já ólíkt hafast þau að börnin sem tína bómull í Usbekistan fyrir ekk neitt og litlu ,,kvótaerfingjarnir" á Íslandi !!!


mbl.is Börn tína bómull fyrir H&M
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurstaða sagnfræðirannsóknar

Eins og menn muna, var stjúpa þeirra Hans og Grétu dauð er þau snöru aftur heim eftir að hafa búið að Norninni um hríð. Hitt vita eflaust færri, að tilvera Nornarinnar og vistin krakkanna að henni ver uppspuni og haugalýgi frá rótum. Sannleikurinn var sá, að þegar börnin voru búina að vafra um skóginn í nokkra daga, ramvillt og ringluð, rákust þau fyrir slysni á hús föður þeirra og stjúpu. Svo heppilega vildi til að faðirinn var ekki heima, svo þau notuðu tækifærið og myrtu stjúpuna með því að læðast aftan að henni, bregða bandspotta um háls henni og kyrkja hana þannig með skelfilegum harmkvælum, því stjúpan kunni ekki að meta atlotin; var viðskotaíll og lítt samstarfsfús. Þá stjúpan var dauð, tylltu blessuð börnin henni upp og gengu þannig frá, að allt útlit var fyrir að hún hefði hengt sig. Að svo búnu fóru Hans og Gréta í hálfsmánaðar orlof, sem þau notuðu meðal annars til innbrota í skartgripaverslanir, meðfram því að dikta upp söguna af Norninni og háskalega dvöl þeirra að henni.

Úr bókinni: Er æxlið illkynja - Íslendingasögur hinar nýrri.


Hvenær verður þjófur að þjófi ?

Samkvæmt þessari frétt, og þá ekki síst fyrirsögn hennar, má gera fyrir að kvótaræningjarnir alræmdu, fái að ,,súpa seyðið" af ófyrirleitnum athöfnum sínum síðustu tuttugu og þrjú árin, rétt eins og drengstaulinn sem stal leigubílnum og rúntaði á honum um götur Reykjavíkur. Nema það sé léttvægara fundið að stela sjálfri fiskveiðiauðlindinni af fólkinu í landinu en taka einhverja bílbeyglu traustataki í leyfisleysi. Að maður tali nú ekki um bankaræningjana á silkifötunum, sem hafa á undrastuttum tíma, með hjálp mannfjandsamlegra stjórnvalda, náð að smeygja vaxtasnörunni þétt og tryggilega um hálsinn á þúsundum manna og hneppa þá í áratuga ánauð. Það er því ekki nema von að fólk spyrji hvert annað í forundran, hvenær og hvernig þjófur verður að þjófi.
mbl.is Stal leigubíl og sýpur nú af því seyðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stólpagrín foringjans

Það verður ekki af Steingrími J. skafið, að hann er gamansamur foringi . Í meðfylgjandi grein slær hann á létta strengi, eins og honum er svo tamt og fullyrðir að í hans flokki hafi þeir og þær gott samráð og það ríki algert trúnaðartraust á milli þeirra allra. Auðvitað meinar Steingrímur þessi orð sín ekki bókstaflega, því þessir ,,við" hans í VG er fyrst og síðast þröngur hópur flokkseigenda þar sem hver étur sömu vitleysuna gagnrýnislaust upp eftir öðrum. Slíkan málatilbúning kallar þetta lið ,,trúnaðartraust." Þegar kemur að almennum floksmönnum VG minnkar þetta svokallaða ,,trúnaðartraust" Steingríms og elítunnar niður fyrir gróflega slakt meðallag, en eins og kunnugt er flokkseigendarusli VG margt betur gefið en að eiga heilbrigð og heiðarleg samskipti við almenna flokksmenn. 

 


mbl.is Aðeins hugmyndir á vinnslustigi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afdrifaríkur draumur

Nótt eina, myrka og raka, vitjaði Rósa, fyrrverandi frilla Kolbeins, hans í draumi. Heldur þókti Kolbeini Rósa vera mikilúðleg við þetta tækifæri og stygg til augnanna, en þó leyndi sprengikraftur kynorku hennar sér ekki. Tekur Kolbeinn nú eftir því, að honum finnst sem hann liggi undir sæng í hjónarúmi sínu og frú Ingveldur sé sofandi við hlið hans, en Rósa standi við fótagafl hjónarúmsins. Kolbeinn þykist sjá, að nú muni stórmæla að vænta. Í sömu andrá verður hann var við að Rósa tekur undir sig stökk grimmilegt, jafnfætis upp af gólfinu, og lendir klofvega ofan á andliti frú Ingveldar, sem átti sér ekki ílls von, enda sofandi svefni hinna réttlátu. Verður nú af hark geigvænlegt með korri og köfnunarsogum, en allt hringsnerist fyrir augum Kolbeins og vissi hann fljótlega vart í þennan heim né aðra. En allt í einu finnur Kolbeinn að hann kastast af miklu afli út í vegg og slengist síðan með höfuðið í gólfið og sér að bragði, að hann er vaknaður því Rósa var á bak og burt, en í stað hennar er komin frú Ingveldur, eiginkona hans, svo gjörtryllt af vonsku, að Kolbeinn vissi engin dæmi um annað meira. Og frú Ingveldur lá ekki á staðreyndum málsins að þessu sinni: - Helvítis, djöfulsins, andskotans óþokkinn þinn, morðhundur og öfuguggi ! grenjaði hún og saup hveljur. – Hvernig dettur þér í hug að reyna að kæfa mig til dauðs með helvítis rassgatinu á þér !? - Hva-hva- hvað ertu að segja manneskja? emjaði Kolbeinn upp yfir sig, vitstola af hræðslu og greip höndum fyrir andlitið.Hvað meinarðu eiginlega? Ég gerði ekki neitt. Ég var sofandi.- Meina ég hvað, svaraði frú Ingveldur ögn stilltari en þó framúrskarandi ógnandi. - Heldurðu að þú vitir ekki, að ég vaknaði við að þú sast klofvega á andlitinu á mér, berrassaður og ógeðslegur, og ætlaðir að drepa mig?Svo varð allt kolsvart og hljótt í heilabúi Kolbeins.Þegar Kolbeinn komst aftur til rænu, uppgötvaði hann, að hann lá í sjúkrarúmi og yfir honum stóðu þrír sprenglærðir bæklunarlæknar, sem höfðu hug á að tjasla honum saman aftur.  

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband