Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2023

Hvað er í þverpokunum og hvað eiga þeir sameiginlegt? Ha?

kol6Einhverju sinni hafði manngarmur nokkur gengið svo fram af samborgurum sínum með heimsku og fáráðlingshætti, að hann var handtekinn og tekinn til skoðunar. Það sem almenningi þókti eftirsóknarvert að vita varðandi manninn, var komast að því hvað það væri sem hann reiddi í þverpokum sínum. Um þennan manngarm er það að segja, að hann þókti vera slápur á velli, ógreindarlegur í framan, leiðinlegur og hálf illa upp alinn. En það var snemma spjátrungur í pilti og eins og hann teldi sig á einhver hátt til forustu fallinn í mannfélaginu.

Þegar búið var að taka helvískan slápinn höndum, var skoðað í þverpoka hans í vitna viðurvist. Kom þá í ljós, eins og við var búist, að lítið fannst, en litla, sem þó var til staðar, var fjarska lítilfjörlegt og smátt. Sérstaklega var þó leitað eftir viti í þverpokum kauða, en ekkert slík fannst. Þar með var komið í ljós, sem marga hafði grunað, að þessi maður reiddi að minnsta kosti ekki vit sitt í þverpokum, hins vegar var þeim um meira af heimsku, rembingi, hroka og almennum drullusokkshætti í farteski hans. Í fyllingu tímans það árið, var svo manngarmurinn afskrifaður til meiri óverðskuldaðs frama og færður jólasveininum að gjöf, sem seldi hann aftur á kynsegin hóruhús í Brasilíu.

Það má heita stórmerkilegur fjandi hve aumir slápar með greind undir meðallagi hafa náð að klifra upp framastiga þjóðfélagsins, án þess nokkur maður hugsaði svo mikið sem andartak út í slíka endemis fásinnu. Þetta er það sem á fræðimáli er kallað ,,samfélagslegt ábyrgðarleysi" og hefir farið mjög vaxandi á síðari árum, þannig að nú er helst beðið eftir að keyri um þverbak. Það er géðsleg tilhugsun, er það ekki, að kjósendur telji landinu sínu best borgið með einvalaliði lukkuriddara og fáráðlinga við stjórnvölinn? Hvað eiga Vilmjálmur Grindavíkur, Gunnarsmári og Ásmundur Einar Dalaskáld - já og hr. Bj. Leví og Sigmundur að Klaustri -  sameiginleg? Svarið þið því, skýrt og skilmerkilega.    


mbl.is Ítrekar mikilvægi Fossvogsbrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægur aftúrsiglari stjórnmálafræðinnar villist ofar himinskautum - vísvitandi

xxxÞað má ekki minna vera, en einhver helsti afturúrsiglari krataeðlisins í ,,stjórnmálafræðingastétt", hr. E. Bergmann, sé kallaður til álitsgjafar á broslegum brottrekstri Helgu Völu úr þingflokki Samfylkingarinnar. Hr. Bergmann er, eins og allir aðrir ,,stjórnmálafræðingar" krataeðlisins, afar hlutdrægur í dómum sínum, svo stappar nærri geggjun eða géðrofi; maðurinn hefir liðið áfram árum saman eins og prumpandi skrípamynd og prédíkað ESB, Samfylkinguna, aftur ESB og aftur Samfylkinguna, eins og tunglsjúkur spáprestur grénjar um sjöunda hymmnaríki, sem enginn kannast við.

Best tekst svo hr. Bergmann upp þegar hann er spurður um ástæður fyrir auknu fylgi Samfylkingarinnar. Þá svarar kauði því til, rétt eins og stjórnmálafræðingi í hafvillu sæmir, að það sé nú útaf því að Samfylkingin hafi farið aftur(?) í eitthvað sem hann kallar ,,grunngildi jafnaðarstefnunnar!", sem hann hefir greinilega ekki hugmynd um hvað er, en segir að sé kjarabaráttan. Það kannast auðvitað enginn við neina kjarabaráttu af hálfu Samfylkingarinnar, nema þá að setja saman ,,verkalýðsráð Samfylkingarinnar" til höfuðs Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og stéttabaráttu Eflingarfélaga. Í einu geta menn nefnilega treyst á krataeðlislýð Samfylkingarinnar, en það er koma þjóðskipulagi kapítalismans, auðvaldsins, til hjálpar ef hætta er talin á byltingartilburðum sósíalista innan verkalýðshreyfingarinnar.

En þókt Helgu Völu sé kastað á haugana, og Oddný og Þórunn fylgi fljótlega á eftir og að allir krataeðlistaumarnir séu færðar í hendur fyrrum aðalhagfræðingi fínimannabankans Kvikubanka, þá er blekkingaleikur Samfylkingarinnar ekki drukkinn þókt í ausuna sé kominn. Vandinn er að leika svo snyrtilega á kjósendur, að þeir hvorki sjái né gruni hvers kyns er fyrr en eftir kosningar, þegar hagfræðilærða Kvikupinsessan krataeðlisins á teinóttu jakkafatadragtinni verður búin að stofna til ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokknum, því markmið ,,jafnaðarstefnunnar" á Íslandi er að vera í stjórn með Íhaldinu, og það er líka hennar eina markmið.


mbl.is Kristrún með alla þræði flokksins í hendi sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldug hræsni og lýgimál félaganna fylgja hinni brottreknu inn í poletisku eilífðina

xsamEins og við var að búast, þá fylgir skyldug hræsni og lýgi einatt brottrekstri þingmanns úr þingflokki. Það er sjálfsagt argasta lygastappa hjá Loganum að hann og Kviku-Kristrún hafi viljað hafa Helgu Völu áfram, - því það vildu þau aleilis ekki, annars hefðu þau ekki rekið kérlíngarsauðinn úr þingflokki Samfylkingarinnar.

Annars er meðfylgjandi mynd af framámennum Samfylkingarinnar ákaflega hláleg fyrir margra hluta sakir. Krataeðlið og sýndarmennskan leyna sér ekki og klæðaburðurinn súrrealískur og líkamstellingarnar einnig. Lengst til hægri er Kviku-Kristrún í allt of stuttum buxum, en slíkt kvað vera einkennismerki vissar teundar veiklaðs fólks. Aftar og til hliðar við Kvikuna stendur kona í hræsnisrauðum kjól og glápir út í loftið. Vinstra megin við hægrimiðjuna er svo sjálf Helga Vala í lúðabúningi og lengst til vinstri er svo fermingardrengur með bleyju. Myndin er tekin á deild, sem ég veit ekki hvað heitir, en er trúlega í eigu íslenska ríkisins.

En nú er Helga Vala sem sé komin á götuna og á ekki afturkvæmt. Næstar á höggstokkinn, að skipun Kviku-Kristrúnar, eru svo Oddný Harðardóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, af því að þær fara í fínustu taugar Kvikuprinsessunnar, en Loginn sér um böðulshanskana og öxina. Hvort eða hvenær þessar sóðalegu aftökur taka enda, er algerlega óráðið á þessari stundu, en undirferli, rottugangur og systramorð hafa löngum verið ær og kýr þeirra sem sýkst hafa af krataeðlinu. En þá er yfir lýkur mun fátt verða eftir uppistandandi í Samfylkingunni.


mbl.is „Hefðum viljað hafa hana áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldis- og ofstækisfullir vargar ráðast að sínu besta fólki

x-krat5Þetta gátu þær, bölvaðar krataeðliseignirnar, þókt þær geti ekkert annað, nema auðvitað að sleikja sig upp við rassinn á auðvaldinu og íhöldunum þegar þarf að verja auðvaldsþjóðskipulagið. En nú hefir þessi óaldarlýður krataeðlisins látið til skarar skríða og rekið Helgu Völu, sem þó er af miklum leikaraættum, ekki bara úr Samfylkingunni heldur og líka af þingi, án kosninga. Ef einhverjar vanmetaskepnur eru spilltar og gjörspilltar, þá eru það þessi ræksni, sem eru undirlögð af krataeðlissjúkdómnum.

kick1.jpgSvona fór djöfuls Íhaldið í Valhöllu líka með Brynjar aumingjann Níelsson: Það rak hann eins og skítugan rakka úr hlýjum húsakynnum Alþingis og ráðuneytisins út á gwöð og gaddinn. Það sér hver maður sjálfur, að vart gefur að finna ömurlegra hlutskipti fyrir Helgu Völu og Brynjar en að vera rekin burt af misvitrum húsbændum sínum fyrir engar sakir, aðrar en þær að fara í taugarnar á húsbændunum. En Helga Vala og Brynjar eru samrýmd og ætla að láta sig hafa það leggjast lágt í þurrkuntuleg lögmannsstörf, sem margir fullyrða, og það með nokkrum rétti, að sé lægst af öllu því lága í mannheimum. En fyrr má nú vera meira ekkisens ofstækið og ofbeldishneigðin í bölvaðri íhaldskrataeðlisstéttinni, að ráðast svona að börnum sínum, og hrekja þau á vonarvöl. Aldrei hefir gamla géðbilaða Framsóknarmaddaman gerst sek um annað eins ofbeldi, sem árás Samfylkingarinnar á Helgu Völu og Íhaldsins á Brynjar, síðan hún rak Sigmund Davíð af höndum sér og þar áður Jónas frá Hriflu.

En svo er ekki útilokað að þetta fari allt saman vel; það eru til fleiri heimili en Valhöll og Samfylkingarbælið. Alveg er ég viss um að Gunnarsmári, með sosiflokkinn sinn, sé meir en vís til að bjóða Helgu Völu til vistar hjá sér, og Brynjari líka. Hann er sagður so libbó hann Gunnarsmári; hann er nefnilega það sem á erlendum tungum er kallað útrásarsosialist. Hann gæti sem best alveg eins skipað Helgu Völu og Brynjar í efstu sæti framboðslista sinna við næstu alþingiskosningar, - alveg eins og hann gumsaði bróður Einars Karls Haraldssonar og dóttur Baldurs Óskarssonar í efstu sætin hjá sér síðast. Svo er Inga Sæland alltaf opin fyrir að greiða götu lukkuriddara, svo ekki sé minnst á ruslakisturnar sem heita ýmist Miðflokkur, Viðreisn eða Píratar. Við skulum bara biðja og vona að Helga Vala og Brynjar verði ekki lengi munaðarlaus, því við höfum síst efni á missa svo góða skemmtikrafta í poletikinni sisona í göturæsið.


mbl.is Helga Vala segir sig frá þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tökum skipin af labbakútum og kvæum

AuðvaldskrakkiÞað er víst ekkert annaða að gera en að taka taka svokölluðu skipafélög af þessum drengjum sem hafa sölsað þau undir sig, þetta eru greinilega mestu labbakútar og kvæ. Ríkið á auðvitað að reka skipafélög á Íslandi og skipuleggja stafsemi þeirra svo sómi sé að, það er ekki hægt að ætlast til að það geti gerst í höndunum á ábyrgðarlausum kettlingum, sem ekki hafa fengið neitt uppeldi, hvað þá meir. Ég held við munum eftir skipafélaginu sem gerði Het Wapen van Amsturdam út - það sigldi öllu í strand með þeim afleiðingum að viðþolslausir ævintýramenn á Íslandi hafa eytt ævinni, aurum sínum og æru, í að leita að þessum kláf austur á söndum, emð engum árangri.

Það vinnst allt með því að taka skipafélögin af labbakútunum; skilvirkni og gagnsæi blasa við, skipin skráð á Íslandi, farmgjöld lækka um tugi og hundruð prósénta og karlarnir á frökturunum verða svo vel launaðir, að þeir þurfa aldrei meir að leggja sig niður við smygl og leynivínsölu. En hvað með labbakútana og stjórnarskrána? spyrja eflaust einhverjir. Er eignarrétturinn ekki heilagur samkvæmt stjórnarskrá? og er ekki athafnafrelsi einstaklingsins jafnheilagt samkvæmt sömu skrá? Djöhh. 

Ekki fór nú vel fyrir spjátrungnum sem gerðist einhverskonar reiðari hjá Einkavædda farmskipafélaginu Októbusi. Sá piltur þrautpíndi hásetana, arðrændi þá og þrælaði þeim út, þar til þeir neyddust til að fara að smygla áfengi, sígarettum, kókaíni og klámblöðum til landsins. Reiðarinn komst í þennan hliðaratvinnuveg hásetanna og og heimtaði toll af honum, sem sem nam níutíu og fimm proséntum af hagnaðinum, án þess svo mikið sem hugsa út í að þetta tiltæki hans kæmi hásetunum á efnahagslegan vonarvöl. Svo einn góðan veðurdag var eiginkona reiðarans horfin eins og jörðin hefði gleypt hana. Málið var falið lögreglunni til rannsóknar, og hún tók reiðarann fastan, grunaðan um að hafa myrt eiginkonu sína. Mörgum mánuðum síðar fréttist af eiginkonunni í barbaríinu í Alsír eða Tyrklandi, þar sem hún hafði verið seld í ánauð af íslenskum farmönnum af skipi í eigu Einkavædda farmskipafélagsins Októbusi. Hásetar reiðarans höfðu sem sé rænt konunni til að hefna sín á reiðaranum fyrir djöfullega arðránsframkomu hans við þá. Fyrir rétti báru hásetarnir, að þeir hefðu selt konuna, samkvæmt skipun eiginmanns hennar, á markaði í Algeirsborg eða Istanbúl. Fyrir þetta voru hásetarnir dæmdir í fimm ára fangelsi en reiðarinn fékk tuttugu og fimm ár. 


mbl.is Ölgerðin leiksoppur skipafélaganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband