Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013

Írskur þræll sem heitir hundsnafni

bono.jpgÞað getur varla verið akkur í að fá hingað til lands manntetur, ef mann skyldi kalla, sem heitir hundsnafni. Fyrir mína hönd, frábið ég mér þessháttar heimsókn.

Já, mér er sagt að þessi drjóli með hundsnafnið, Bónó er hann víst kallaður, sé írskur þræll eða þrælmenni, þekktur í Cork og nágrenni fyrir heldur en ekki misheppnaða tónlist, sannkallað hundakofaískur.
Og svo þykir það frétt að þessi líka slordóni, sem að sönnu er ekki hæfur innanum Sanna Íslendinga, sé staddur í Reykjavík um þessar mundir, eflaust draugfullur og með galopna buxnaklauf til að freista ístöðulítilla kvenmanna.
Ég vona sárlega að búið verði að vísa þessum þorpara, þessum írska þræl, úr landi fyrir miðnætti svo heiðvirðir Framsóknarmenn geti notið heilbrigðs nætursvefns á nýársnótt en þurfi ekki að liggja andvaka útaf hugsanlegu ókristilegu framferði írsks þrælmennis með hundsnafn.
mbl.is Bono ver áramótunum á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Augnsviði af óþverraeiturstybbu en aðalega ágrip úr sögu Rótarýklúbbsins Fjallafjölnis

xb2.jpgSem betur fer sá ég hvorki né heyrði áramótaávarp þessa þrautleiðinlega hlunks, sem illvilji örlaganna gerði gerði að forsætisráðherra í vor. En víst er, að áður en lýkur, verður þjóðinni farið að svíða all svakalega í augum af óþverraeiturstybbunni sem leggur eins efnavopnaárás uppúr dragúldnum fjóshaugi gömlu Framsóknarmaddömunnar.

En nóg forsmánirnar í ríkisstjórninni.

Fyrir um það bil háfum öðrum áratug varð þjóðin fyrir þeirri ógæfu, að bráðsmitandi kynvilla kom upp í Rótarýklúbbnum Fjallafjölni. Skifti engum togum, að 70 prósent félagsmanna gripu sóttina og urðu mjög veikir.
Nú vóru góð ráð dýr því heiður og veraldlega tilvera Rótarýklúbbsins Fjallafjölnis var skyndilega afar óviss. Það varð því að ráði, að bestu menn klúbbsins, sem ekki höfðu orðið sóttinni að bráð, gengu á fund Arndórs Kolbeinssonar vélvirkjunarmeistara og báðu hann grátandi að gerast forseti Rótarýklúbbsins Fjallafjölnis, og enn fremur að freista þess að reyna að lækna hina sjúku félagsmenn.

xb5_1225155.jpgArndór Kolbeinsson varð af sinni alkunnu ljúfmennsku við bón hinna örvæntingarfullu manna, bretti upp ermarnar og hófst þegar handa við að koma fórnarlömbum kynvillusóttarinnar aftur til heilsu. Lækningar Arndórs gengu sannarlega vonum framar. Innan sex mánaða voru 50 prósent sjúklinganna orðnir albata, 25 prósent komir til nokkurrar heilsu, en 25 prósent sýndu því miður engin batamerki. Var þá skotið á alvarlegum vísindafundi í Fjallafjölni þar sem samþykkt var að fela forsetanum Arndóri Kolbeinssyni að halda áfram lækningum á þeim er komist höfðu til ,,nokkurar heilsu" en veita hinum, sem ekkert brögguðust, líknandi meðferð. Til útskýringar er óhætt að geta þess að hin líknandi meðferð fólst einkum í stólpípuþerapíu og inntökum á volgu sápuvatni.

Í dag, einum og hálfum áratug eftir að kynvillan kom upp í Fjallafjölni, er staðan óbreytt, að því undanskyldu að sóttin hefur dregið megnið af þeim sem ekkert batnaði af lækniskúnstum Arndórs til dauða. Þykir þetta framúrskarandi árangur í heilsubótarstörfum og hefur hann vakið verðskuldaða athygli víðsvegar um heim.
mbl.is Tilefni til bjartsýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir það getur auðvaldið þakkað þér Ögmundur minn

fokk júJá Ögmundur minn, þú varst varaður við flokkseigendahyskinu í VG, ekki vantaði það. En þú kaust samt að fylgja því að málum í hvert skifti þegar á reyndi og veifaðir löngutöng í leiðinni framaní fólkið sem studdi þig og hafði trú á þér.
Nú veinar þú og kveinar undan hinum harðkapítalísku giljagaurum Steingrími J. og Svavari Sendiherra, en satt að segja þá held ég að enginn vorkenni þér í dag að standa í hanati við hundingjana Steingrím og Sendiherrann, allra síst þeir sem lengst af studdu þig mest og best og af mestum heilindum.

Já Ögmundur minn, þú gast valið þér betra hlutskifti og heiðarlegra en valdir að fara að eins og klárinn sem sífellt leitar þangað sem hann er kvaldastur. En nú eru öll tækifæri vinstrimanna, sósíalistana, úr sögunni, a.m.k. um sinn, -  fyrir það getur auðvaldið í Sjáfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum, -  já og Samfylkingunni, GvendarSteingrímsframtíðinni, píratagalskapnum og VG, - þakkað þér sérstaklega fyrir.
mbl.is Forysta VG vildi ekki þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áramót tvennra hjóna frá Buenos Aries að Brynjari Vondulykt

Það má nú segja að útlendingar hafi óstjórnlega gleði af flugeldatryllingi drukkinna Íslendinga; þeir koma í löngum bunum frá Asíu, Suður Amríku, Norður Amríku og frá Afríku og jafnvel frá Ástralíu, að ótöldum öllum þeim sæg af ESB-búum sem hingað flykkjast til að njóta herlegheitanna.

Þó held ég megi segja, að aungvir útlendingar hafa lifað önnur eins áramót og aðra eins flugeldasýningu og veslings fólkið frá Buenos Aires, sem bjó að Brynjari Vondulykt yfir áramótin 1998/1999. Þetta voru tvenn velstæð roskin hjón, sem vildu sjá reykvískt gamlárskvöld með eigin augum og búa í leiðinni á rammreykvísku efrimillistéttarheimili hjá menntuðu fólki. Og vart gátu þau hafnað hjá geðugri gestgjafa en Brynjari Vondulykt.

ingv20_1225097.jpgÞegar líða fór á gamlársdagskvöld fóru að koma innfæddir gestir á heimili Vondulyktarinnar og létu þeir allir full frjálslega að mati hinna rosknu hjóna frá Argentínu. Þótti gamla fólkinu engu líkara en vitfirringar af geðveikrahæli væru komnir í heimsókn, því tilburðir, hömluleysi og ásigkomulag þessa fólks var með þeim endemum að ekkert annað en fullkomin geggjun gat legið þar að baki.

ingv31.jpgUm miðnætti keyrði svo um þverbak; gestgjafinn Brynjar Vondalykt og gestir hans þá allir nær klæðalausir, aðrir en fullorðnu hjónin frá Buenos Aires, rifu sig upp frá lostafullum pornóískum samkvæmisleik sínum, drógu fram flugelda með löngum trésköftum, sprengjur, blys og aðrar vítisvélar og hófu ægilega gjörningahríð, fyrst innandyra, svo utandyra, og svo aftur innandyra. Í djöflaganginum hljóp neisti í hár annarar argentísku konunnar og brann það samstundis af. Annar karlinn fékk skiparakettu í andlitið og steinlá eftir. Hinn karlinn hljóp inní sturtu til að slökkva í sér, en þá var jakki hans alelda. En hinni gömlu konunni auðnaðist að skríða undir rúm það sem hún lét fyrirberast í nær stöðugu yfirliði eða hrottafengnum grátköstum.

father.jpgÞað þarf aungvan að undra, að hinir kurteisu gestir Bryjars Vondulyktar voru öll dáin og komin undir græna torfu fyrir næstu sumarmál eftir að hafa lent í áramótastyrjöldinni miklu í Reykjavík 1998/1999. En áður en þetta góða fólk dó tókst því að skrifta fyrir föður Albractam um skelfilega lífsreynslu sína að heimili Brynjars íslendings, sem kennir sig við vonda lykt. Síðan þá hefur faðir Albractham verið hafður í einangrun í klaustri í nágrenni við Víedma til að fyrirbyggja að skriftarmál gömlu hjónana tvennra komist ekki í hámæli.
mbl.is Ferðamennirnir skjóta líka upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sönn íslensk hvundagssaga: - Fór íbúðarvillt og rotaði húsráðanda

Jájá, þessi ringlaði norsari er ekki sá fyrsti sem er rotaður fyrir þá sök að fara húsa- eða íbúðavillt. Fjarri því. Og margir hafa mátt lúta í gras fyrir minni glæp, sem betur fer.

kol30_1225089.jpgFyrir rúmum tveimur árum síðan slæddist óboðin gestur inní íbúð Indriða Handreðs og Máríu Borgargagns. Þetta var lítill og rindilslegur náungi, rauðbirkin og rauðþrútin með pírð svínsaugu, klæddur í velkta og óhreina fataræfla; og það var hreinlega skítalykt af þessum mannaumingja.
 
Þetta ákjósanlega tækifæri hugðist Indriði Handreður færa sér í nyt og sýna heiminum að hann væri fullmektugur húsbóndi á heimili sínu með því að slá hinn óboðna gest viðstöðulaust í rot. Því hóf hann hönd sína á loft, kreppti hnefann, staðráðin í að hrinda áætlun sinni í framkvæmd. En áður en til þess kæmi að Handreðurinn léti höggið ríða af var rindillinn rauðþrútni búinn að slá Indriða Handreð svo rækilega í aungvit að hann rankaði ekki við sér fyrr en að klukkutíma liðnum.

Máría Borgargagn varð ákaflega uppnumin við að sjá þessi tilþrif á heimili sínu, að hún hljóp til, lagðist á bæði kné sín frammi fyrir rindlinum og faðmaði fætur hans að sér með hneggi, kvíi og öðrum fagnandi upphrópunum. Manntötrið tók atlotum og gleði Borgargagnsins allvel og bauð henni að fylgja sér á afvikin stað í íbúðinni. Þar hafði hann skemmtileg endaskifti á hinni elskandi konu og knúði hana af undarlegum krafti inní fullkomna alsælu; var það vel að verki staðið hjá jafn óhrjálegum manngarmi og illa þefjandi. En Máría Borgargagn fékk sitt uppfyllt meðan Indriði hennar Handreður lá steinrotaður frammi á gangi.


mbl.is Fór húsavillt og var rotaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar heilsuspillandi og drepandi farsóttir geysa ...

kapital11Viðhafnarviðtal mbl.is við fjárfestinn ógurlega, Heiðar Má, ber þess öll merki að það hafi verið tekið í samkvæmi hjá sæmdarhjónunum frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni. Þvaður um að selja Keflavíkurflugvöll og hafnir til greiða niður skuldir ríkissjóðs og kaupendurnir ættu að vera lífeyrissjóðir og fjárfestar minnir á fátt annað en stjórnleysisþrugl langdrukkins manns, enda er það svo að jakkafataklæddum peningapervertum er ekki sjálfrátt. Þessum landeyðum virðist aldrei muna um að predika patentlausnina fyrir ríkissjóð með því að leggja til að almenningur margselji ömmur sínar hinni ósýnilgu hönd markaðarins til dýrðar.

Og ekki er að sjá, að penigauppskafningarnir hafi nokkuð lært af Hruninu, enda er græðgin þeirra eina leiðarljós og markmið í lífinu. Þetta eru samfélgshættulegir fuglar sem ber að taka alvarlega og gera ráðstafanir gegn. Þegar heilsuspillandi og drepandi farsóttir geysa leggjast allir á eitt með að hefta þær og kveða niður, slíkt hið sama á að gera gagnvart alvarlegum sjúkdómum á borð við péníngagéðsýki og græðgisáráttu, það gerum við með byltingu, sósíalískri byltingu sem hefur afnám kapítalismans, græðginnar og glæpamennskunnar, að markmiði og gerir hana að veruleika.
mbl.is Mætti selja Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan stingur fingri í rangan þumal og fangelsar alsaklausa konu

kona2_875429.jpgÞað er enn á fárra vitorði hver sú kona er sem rotaði dyravörðin í nótt. Hér með skal upplýst, að þar var að verki engin önnur en frú Ingveldur og var það henni mikil ánægja að sjá dyragæslumanninn lyppast niður eins og blautt handklæði eftir að hafa greitt honum kjaftshöggið góða. Hinsvegar er konugarmurinn sem situr bak við lás og slá, grunuð um verknaðinn, alsaklaus af þessari fögru uppákomu og kom það hvergi við sögu að öðru leyti en því að hún var handtekinn af lögreglu.

Aðdragandi málsins var á þáð leið, að frú Ingveldur var að leita að eiginmanni sínum, herra Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra, en hann hafði horfið sporlaust af heimili sínu í gærkvöldi ásamt Óla Apaketti. Taldi frú Ingveldur út frá gamalli reynslu að brotthvarf þeirra félaga benti til að þeir væru farnir á kvennafar. Því tók hún sig upp og hóf leit að eiginmanni sínum á þeim óþverraknæpum sem hórdómsbesefar af hans kalíberi leggja helst leið sína á í von um skyndikynni við vafasamar kventuðrur. Í dyrum einnar þessarar saurlífiskompu stóð útblásin dyravörður þegar frú Ingveldi bar að garði og ætlaði piltur sér þá dul að hefta för hennar og fékk að launum svo þungt högg á trýnið að hann hné niður í fullkomnu öngviti. En frú Ingveldur óð inná knæpuna og stóð þar eiginmann sinn Kolbein Kolbeinsson að verki í andstyggilegum faðmlögum við þrautpínda lekandagrýlu. Frú Ingveldur hafði engar vöflur á, greip aftaní hálsmál Kolbeins og hinnar bersyndugu kvinnu og sló hausum þeirra saman af slíku afli að bæði tvö svifu eins og englar inná sama tilverusvið og hinn steinrotaði dyravörður. Að svo búnu dró frú Ingveldur eiginmann sinn á annarri löppinni út bakdyramegin. En gestir veittu því eftirtekt, að Kolbeinn var mjög lausgyrtur, með brækur fyrir neðan þjóhnappa, en frú Ingveldur sinnti því engu og hvarf á braut með feng sinn eins og hann kom fyrir af skepnunni.

Afturámóti varð lögreglunni heldur betur á í messunni þegar hún kom á vettvang. Dyravörðurinn lá að sönnu meðvitundarlaus á stéttinni svo óhjákvæmilegt var fyrir lögregluþjónana að handtaka einhvern á staðnum. Þeir gripu því til þess ráðs að handtaka blindfulla kéllíngarboru sem stóð álengdar og vistuðu hana í fangaklefa,grunaða um að hafa veitt dyraveðinum áverka svo að hann missti meðvitund. Sennilega verður konuveslingurinn ákærð fyrir að hafa ætlað sér að granda dyraverðinum og í framhaldinu dæmd til langrar betrunarhúsarvistar af héraðsdómi og Hæstarétti.
mbl.is Sló dyravörð í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósköp hefði verið geðugra

svin1.jpgÓsköp hefði verið geðugra en déskotans útrásarböðlarnir hefðu látið sér nægja að stela nærbuxum af konum og körlum, helst vel skítugum, í stað þess að ræna pééénííííngum af slíkum fítonskrafti að allt bölvað bankadraslið lagðist á hliðina eins og kýr með súrdoða, og hann Gjeir okkar hérna Hooordý, blásaklaus maðurinn, var dregin fyrir dómstól landsins. Það hefði semsé verið affarasælast, að hinir stelsjúku bankgangsters hefðu haft þjófgefna fressketti sér til fyrirmyndar í stað þess að tæma allar fjárhirslur á Íslandi og flytja góssið útum víðan völl öllum til ógagns.

Eitt af þessum útrásarfíflum, vinur Brynjars Vondulyktar, var svo seinheppin að taskan sem hann hafði fyllt af þjófstolnu góssi úr einum bankanum féll ofana á hann af hillu og varð það hans bani. Opinberlega var það látið heita, að hann hefði orðið bráðkvaddur við skyldustörf í þágu allra landsmanna og jarðsunginn með slíkri viðhöfn að kóngar og keisarar hafa sjaldan verið afgreiddir með öðrum eins bravúr. Annar útrásargemsi, eitthvert sauðheimskasta naut sem gengið hefur í armaníjakkafötum, keypti sér þotu til að fjlúga með sig á hóruhús vítt og breitt um heiminn. Honum hefndist fyrir með því að detta í sturtunni heima hjá sér og hausbrotna (grunur leikur á að eiginkona hans hafi mölvað á honum skallann). Hann var kvaddur og lagður í mold eins og um þjóðhöfðingja eða byskubb væri að ræða. Í fjölmiðlum var frá því greint að hann hefði fallið frá vegna gífurlegs vinnuálags og ábyrgðar.
mbl.is Stelsjúkir kettir valda usla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá gifturíki er mikill stórkalli og gerir m.a. út strengjaskuðu ...

mafia1_892301.jpgOg gifturíki kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki fylgir sölunni á togaranum úr hlaði með varnarræðu í anda Rauðsmýrarmaddömunnar, en sú eðla maddama er sem kunnugt er eineggja tvíburasystir gömlu Framsóknarmaddömunnar. Nú, sá gifturíki er náttúrlega mikill stórkalli og gerir út, fyrir utan togara kaupfélag og þessháttar, eina vesala strengjabrúðu í ríkisstjórn Íslands. Um þá spaugilegu strengjaskuðu er best að hafa sem fæst orð, en skelfing er samt hættulegt að láta þann gifturíka um að fara með slíkt leikfang.

Ennfremur: Sá gifturíki hefur, samkvæmt varnarræðu stílaðri á fjölmiðla, ráðið þrjá starfsmenn til að sinna ,,rannsóknum." Ekki kemur beinlínis fram hvaða rannsóknir þessir þrír hafa með höndum, en ekki kæmi á óvart að það væru sálarrannsóknir af sama toga og framkvæmdar vóru á Sviðinsvík forðum daga. Ætti aungvan að undra, í fyllingu tímans, en útúr þeim knosuðu rannsóknum komi það eitt, að fáeinir burtsofnaðir húskarlar Framsóknarmaddömunnar hafi ítrekað birst utan úr öðrum heimi á rannsóknarstofuna og heimtað að bein þeirra verði grafin upp þar sem þau liggja og flutt í heiðursgrafreitinn á Þingvöllum og jarðsett þar við hlið Jónasar Hallgrímssonar, eða öllu heldur þess sem þar var holað niður í Jónasar stað.
mbl.is 30 sjómönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frænkurnar Marthaa Máría og Máría Borgargargagn plús latteslepjulýðurinn í 101

band.jpgÓskaplega mikil fétt að einhver Heiða Kristín hafi trúlofast gjörsamlega óþekktum drengstaula - óskaplega mikil frétt. Trúlega er umrætt fólk af hinni hvimleiðu og hugsjónalausu dýrategund sem hefst við í miðborg Reykjavíkur, pósthólfi hundraðogeinum, og sýgur latteslepju og bjórhráka í sig alla daga frá morni til kvölds, annars væri varla verið að fjalla um trúlöfun þessara dauðans ráðaleysingja.

Og vissulega er Marthaa Máría hin Smaharta í Latthelandi frænka frænku sinnar, hennar Máríu Borgargagns, og þær eru nú ekki gefnar fyrir hégómann. Á frægum ættarmótum syngja þær saman braginn um Þórð sjóara, sem kunni að fitla við stúf, og kvæðið sem hefst svona: ,,Hér er kominn gestur segir prstur."

Svo er nú það, börnin mín.
mbl.is Heiða Kristín trúlofuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband