Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2023

Enn er karlinn frábærlega stríðsóður - en blætisbróðirinn varð illa úti

gun (2)Sem fyrr er gamli stríðsmógúllinn Bíbí Bjarna frábærlega herskár og þess albúinn að láta brytja sig í spað í stríðinu gegn Rússum. Miðað við stríðsblætið, sem blátt áfram og bókstaflega lekur af Bíbí, má ætla að kjallarinn heima hjá honum sé fullur með handsprengju, flugskeyti, vélbyssur og aðrar afkastagóðar vítisvélar, og eins gott að vera ekki að þvælast í gáleysi með eldspýtur eða vindlingakveikjara þar nær.

Enn er oss djúpt í minni, er sálubróðir Bíbí í blætinu hafði troðið háaloftið hjá sér svo fullt af púðri, dínamíti, fallbyssukotum og eldvörpuhleðslum, að þegar neisti úr flugeldi barst fyrir slysni inn á háaloftið varð þvílík ofursprenging, að enn þann dag í dag hefir ekki svo mikið sem ein smáflís fundist úr því húsi. Og sálubróðirinn hefir heldur ekki sést síðan né frú hans; en á miðilsfundum hefir þeirra orðið vart og er sagt að þau séu sí-kvartandi undan vistinni í Helvíti og þykir óréttlátt að hafa verið send rakleiðis í verri staðinn eftir sprenginguna miklu. 

TyrkiÞá er auðséð að blæti Bíbí sjálfs fer versnandi, en haft er fyrir satt að hann gangi orðið hversdags í hershöfðingjabúningi og með kórónu á hausnum heima hjá sér, og gefi ordrur um árásir í allar áttir. Heilsufar karlsins nær auðvitað ekki nokkurri átt og stórfelld hætta er á að það smiti út frá sér. Kóvíðssprauturnar, sem hann gekkst undir, gjörðu íllt verra og blésu honum hryllilegum stríðsanda í brjóst með napalmeldglæringum og atómreyk. Vér biðjum að þessum raunum linni og Bíbí litla verði fengin hlandsprengja til að dúlla sér við; það gerist þá aldrei annað verra en að hlandsprengjan springi óforvandis framan í karlinn og kæli á honum nefbroddinn og kinnarnar. 


mbl.is Sameina flugherina vegna kjarnorkuhers Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Thor Walrus, bróðir Björgólf Thors, á flótta undan eiturlofti á Langanesi

rostÞað þarf aungvann að undra þókt rostungurinn Þór sé horfinn af vettvangi hafnarinnar á Þórshöfn á Langanesi. Það vill sem sé nefnilega svo óheppilega til, að Stenngrimur nokkur Johoð er skráður til heimilis í allra næsta nágrenni Þórshafnar, nánar tiltekið á Gunnarsstöðum, sem er eitt mikið framsóknargreni þar í sveit. Og þannig vildi svo illa til, að nefndur Stenngrimur var á einhverju óþarfa-randi við Þórshafnarhöfn í gærkveldi og það sló þef af honum fyrir vit Þórs rostungs,  sem varð ókvæða við og tók þegar til fótanna og stökk út í náttmyrkrið.

Og svo hefir rostungurinn Þór síðar frá sagt í ljóðinu ,,I´m the Walrus" að andskotans framsóknarlygafnykurinn af Stenngrimi hefði verið svo megn, að hann hélt að lungun í honum mundu springa við að draga þetta óþverra andrúmsloft að sér. Því sá hann sér ekki annað úrkosta en að hlaupa strax í sjó fram og forða sér þannig frá yfirvofandi bráðadauða.

Af þessum lífsháska Þórs rostungs á bryggjunni á Þórshöfn má ráða, að Stenngrimur Johoð, sem telur sig sérstakan ástmögur framsóknarvitringa í Þórshafnarhreppum, er sérlega varhugavert mengunarvandamál, svo sem vel má sjá á olíuleitarhugsjón hans á Drekasvæðinu, kolasvælu-farbikkunni á Bakka, spillingargöngunum undir Vaðlaheiði, svo fáein dæmi séu nefnd um hræsnisverk þessa illþefjandi giljagaurs af norðausturhorninu. Af Þóri rostungi, sem kallaður er Thor Walrus á Bretlandseyjum og þarlendi halda að sé bróðir Björgólfs Thors, er það að frétta, að hann er nú á leið til Akureyrar til að anda að sér Samherjaskítalyktinni, sem hann hefir frétt að þar sé alltumlykjandi og sé í þokkabót mjög keimlík framsóknaþefnum, sem lagði fyrir vit hans í Þórshafnarhöfn á Langanesi.   


mbl.is Þór fór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá Karl Gúsafvuss kom hingað til að aflífa hreindýr

joli_1244722.jpgKarl kongur er að sögn mbl.is maður sem kann að skemmta sér. Má vera að þeir séu til sem draga í efa að kongur þessi sé ekki maður, heldur eitthvað meira en það. En látum það liggja milli hluta. Öll munum vér, sem komin eru til vits og ára, þá kongur Karl Gústafvuss kom til Íslands með glæsilegu föruneyti, þeirra erinda að aflífa hreindýr með skotvopnum austur á Héraði. Það er mest heillaði hérlendan landslýð, er vitni varð að hingaðkomu kongs, voru einar þrjár eða fjórar kippur af glaðlyndum og ögrandi konum, sem hersir hafði í farteski sínu, ásamt nokkrum vörubrettum, hlöðum áfengi, sterku og léttu.

Enn þann dag í dag hefir furðulega lítið frést af hreindýramorðverkum kongs á Héraði, en þeim mun meir af galsalátum kvennanna í föruneyti hans, vafasömu siðferðislífi þeirra og lostabruna. Og víst er um það að nokkur brögð voru af drykkjuærslum kongs og meðreiðarfólks hans, þessa daga sem hann dvaldi austur þar að hreindýraveiðum. Þó vilja minnugir Héraðsbúar meina að rangt sé að kongur hafi engar veiðar stundað þarna því þeir herma að minnsta kosti einn hundur hafi fundist skotinn í vegkanti á svæðinu þessa kongsdaga, og einnig að fimm vetra ær hafi andast af skotsári úti í haga og var kongi um kennt. Svo sáust þrjár berrassaðar stúlkukindur á ráfi einn morgunn á aðalgötu Egilsstaða, voru þær af erlendu bergi brotnar, töluðu skandinavísku og létu bæði tryllingslega og galgopalega og urðu heimamenn hræddir.

Svo hvarf kongur þessi af landi brott og varla sést síðan. Hans hefir ekki verið saknað á Héraði austur síðan,- í það minnsta ekki enn, sem komið er. Karl Gústafvuss er sem aðrir alvöru kongar og drottningar, að hann hvorki mígur né kukkar, hvursu sem hann étur af kjötmeti og drekkur af vínum, brenndum sem óbrenndum. Vissulega kann einhverjum að þykja þetta óhugnanleg líffræði, en svona er að nú samt, svo sem sannaðist þegar kongurinn af Karabakk fannst einn og dauður á viðavangi, en þá sáu strákar sér leik á borðu og könnuðu hugsanleg frárennslismál kongs og komust að raun um að þau voru engin. Hvað um gromsið sem kongafólkið lætur ofan í sig verður er hins vegar hulin ráðgáta.  


mbl.is Svíakonungur í konufötum gerir allt vitlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband