Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Forystusnatar og hlandprestar

Ég er mest hissa á að forystusnatar ASÍ ætli að koma nálægt nokkrum sköpuðum hlut er lítur að verkalýðsmálum á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Þó hlýtur svo að vera fyrst út er komin rulla undir nafninu: 1. maí ávarp verkalýðsfélaga í Reykjavík.

Annars var ég kominn á þá skoðun, sú skoðun er reyndar óbreytt, að umræddir forystusnatar hafi fyrir löngu andast eins og hverjir aðrir hlandprestar ofaní forarvilpu frjálshyggju og davíðsisma. Eða hvar voru þessir gemlingar í frjálshyggjugóðærinu, sællar minningar, aðdraganda hrunsins, í hruninu og eftir það? Ekki voru þeir að berjast fyrir jöfnuði og mannsæmandi launum verkafólks, svo mikið er víst. Og þegar alþýða landsins gerði uppreisn gegn stjórnvöldum í vetur héldu Gylfi Arnbjörns, Kristján í Keflavík, Skúli Thoroddsen og frú Ingibjörg Err eins langt frá vígvellinum og þau gátu. Það eins sem þetta lítilsiglda fólk hefur haft til málanna að leggja er hjáróma söngur um dýrðarríki hins hákapíalíska ESB. Það þarf augljóslega að fara með potta og sleifar inná kontóra ASÍ-slektisins og hreinsa þar ærlega út með kröftugri búsáhaldabyltingu.

Lifi byltingin !!!   


mbl.is Stóra krafan er félagslegt réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rófusöngur ungra sjálfstæðismanna

bóndiÉg held þeim hafi ekki verið ofgott, blessuðum íhaldsskörfunum, að bregða á ærslafullan leik með kerlingunni Natalie Rowe (Natalíu Rófu). Og hvað ætli sé yndislegra í heiminum en að vera íhaldsmaður á daginn og perrakall á kvöldin? Það er eiginlega nákvæmlega það sama og vera sjálfstæðismaður og græða á daginn og grilla á kvöldin, eins og ríkisrekna þjóðskáldið orðaði það svo fagurlega. 

Hér á árum áður sungu félagar í SÚS, Sambandi ungra sjálfstæðismanna (sikileyjinga) mikið gleðilag á samkomum sínum við texta eftir fullorðinn sjálfstæðismann sem notið hafði gistivináttu frú Natalíu Rófu og upphófst á þessa leið: ,,Ég vildi ég væri tófutittlingu, ÉG VILDI ÉG VÆRI TÓFUTITTLINGUR, þá myndi ég taka tófuna og stinga honum undir Rófuna. Ég vildi ég væri tófutittlingur.

Í dag láta ungir sjálfstæðismenn sér nægja að kumra dapurlega og úrelta sálma eftir Hannes Hólmstein Gissurarson eins og ,,Frjálshyggjan féll af björgum fram" og ,,Milton Friedman á líkbörunum. 


mbl.is Kynlífshneyksli í uppsiglingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprotafyrirtækjum eytt

AlkiÞað er í meira lagi dapurlegt að verða vitni að því að hið opinbera skuli drepa góð sprotafyrirtæki niður af fullri hörku jafnóðum og þau eru að komast á legg. Það er engum vafa undirorpið að íslendingar verða að gera allt til að koma hjólum atvinnu- og efnahagslífs í gang aftur, í því tilliti jaðrar aðförin að kannabisbændum við glæp; fjöldi manns missir vinnuna og efnahagslífið fær ekki það súrefni sem það þarfnast. Virtur hagfræðingur sagði í lærðum fyrirlestri á dögunum, að fátt virkaði betur á krepputímum en að reykja sig útúr vandanum af innanlandsræktuðu maríjúana. Fólki yrði glatt í geði af slíkum reykingum, rólegt og yfirvegað, gæfi skít í kreppukjaftæði og myndi þannig á örskömmum tíma vinna þjóðina alla útúr hinu kókaníníska efnahagshruni sem allt væri að sliga um þessar mundir.

Það er því ekki seinna vænna að lögreglan skili kannabisbændum afurðum þeirra strax svo hægt sé að hefjast handa svo um munar. 


mbl.is 32 kannabisræktanir stöðvaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súpa úr kokkhúsi Finns, Óla, Dóra, Alfredós og Kögunarfeðga

niðurgÞað held ég sé kræsileg súpa sem borin er fram úr eldhúsi Finns Ingólfssonar, Óla bónda á Miðhrauni, Halldórs Ásgrímssonar, Alfreðs Þorsteinssonar og Kögunarfeðga. Fyrir utan að vera bragðvond, óæt, er ég næsta vissum að umrætt súpugutl er heilsuspillandi, jafnvel baneitrað öðrum en innvígðum í miðstjórn Framsóknarfjóssins. Fyrir nokkrum árum fóru framsóknarkokkarnir að bragðbæta súpuna sína með frjálhyggjukryddi. Það hafði þær afleiðingar að eitrun hljóp í efnahags- og menningarlíf þjóðarinnar, sem lauk með því að bæði efnahagslífið og menningarlífið drápust eins og hænsnin sem komust í rottueitrið hér um árið.

En fyrst ég álpaðist til að minnast á miðstjórn Framsóknarflokksins: Hvaða persónur skipa þá stjórn með leyfi?


mbl.is Kosningakjötsúpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómerkilegt slúður

Hvern fjárann er einn fyrrverandi bankastjóragarmur að slúðra með að Björgólfur Guðmundsson stórgróssér og knattspyrnuhetja hafi vitað um 25 milljóna landsbankastyrkinn til Sjálfstæðisflokksins? Það mætti halda að hinum burtsparkaða bankastjóra sé í mun að núa salti í sár Sjálfstæðisflokksins og gera hneykslismál hans stærri og heilsu flokksmanna verri, hélt ég þó að á þærhörmungar væri ekki á bætandi. Aðvitað líta allir sanngjarnir menn á styrk Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins sem framlag til félags- og menningarmála.  
mbl.is Segir Björgólf hafa vitað af styrknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá sem var lægstur allra er nú efstur , fremstur og hæfastur

gitar2.jpgÁ þessu sést hvað Árni Johnsen er mikið gáfaðri en aðrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins; í stað þess að reyna að ljúga sig útúr fjölmörgum stórkostlegum hneykslismálum, sumum glæpsamlegum, eins og aðrir frambjóðendur FLokksins, lætur Árni sér nægja að söngla ,,Undir bláhimni" auk ,,Ég veit þú kemur" eftir eyjakommana Oddgeir og Ása í Bæ.

Fyrir síðustu kosningar var Árni Johnsen álitinn lægstur af öllu lágu í röðum frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins. Nú, tveimur árum síðar, er öldin sannarlega önnur, því sami Árni er af öllum almenningi talinn lang fremstur og hæfastur allra í Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Brekkusöngur fyrir kjósendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn stórbrotni stjórnvitringur og kaghýðing eftir viku

fleng.jpgHinn stórbrotni stjórnvitringur, Gvöðlaugur Þór Þórðarson, veit uppá hár að ástæðan fyrir alþingiskosningum eftir viku sé vinstriflokkunum að kenna, og að vinstriflokkarnir hafi einungis boðað til kosninga til að valda Sjálfstæðisflokknum sem mestum skaða. Ennfremur gat stjórnvitringurinn þess að það eina sem sameinaði vinstriflokkana væri fólska þeirra í garð Sjálfstæðisflokksins.

Á hinn bóginn virðist Gvöðlaugi, þó stórgáfaður sé, ómögulegt að muna og því síður að gera sér grein fyrir að það var þjóðin, með búsáhaldabyltingu og öðru andófi, sem hrakti Sjálfstæðisflokkinn frá völdum eftir að hann hafði komið þjóðinni á vonarvöl með dæmalausri óstjórn, spillingu, lygum og glæpsamlegri efnahagsstefnu sem kennd er við frjálshyggju.

Liðsmenn Sjálfstæðisflokksins í einkavæddum fjármálageiranum tóku stöðu á móti íslensku krónunni. Íslenska þjóðin svaraði að bragði með því að taka stöðu á móti Sjálfstæðisflokknum.

Í kosningunum þann 25. apríl næstkomandi verður Sjálfstæðisflokkurinn kaghýddur á bert rassgatið um land allt. Þá hýðingu getur Sjálfstæðisflokkurinn fyrst og fremst þakkað sjálfum sér, en einkum þó og sér í lagi gjörspilltri forystu sinni og þeim djöflaher sem kringum hana hefur dansað síðustu tvo áratugina.  


mbl.is Þarf að vinna litla sigra á hverjum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem hjartanu er kærast

Merkilegt þykir mér að þeir einu, sem fram að þessu hafa bloggað um kallinn sem beit framan af sköndli sínum, skuli vera konur. Ekki veit ég hverju þessi ódæmi sæta, en gamalt máltæki segir, að það sé tungunni tamast sem hjartanu er kærast. Þó má vera að mikill áhugi kvenna á meðferð kallsins í Brooklyn á leyndarlim sínum sé af einhverri áður ókunnri fémínískri rót runnin og það sé ósk þeirra, er þeirri stefnu fylgja, að sem flestir karlmenn fari að dæmi hins óhamingjusama tillabíts.
mbl.is Beit framan af eigin lim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin önnur skynsamleg leið í boði

Það er algjör óþarfi að reyna að snúa útúr orðum Katrínar Jakobsdóttur um blandaða leið launalækkana og niðurskurðar. Það er því miður engin önnur skynsamleg leið í boði. Það verður með öllum ráðum að verja þann snefil af velferðarkerfi eftir er. Miðað við útúrsnúninga sjálfstæðismanna á stefnu VG í ríkisfjármálum, tekjuöflun og útgjöldum, mætti ætla að Sjálfstæðisflokkurinn stefni ótrauður að því að ná fram sem mestu atvinnuleysi, fjöldagjaldþrotum heimila og þjóðargjaldþroti. Það er full ástæða fyrir kjósendur að vara sig á Sjálfstæðisflokknum; Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur í þeim skilningi sem þorri almennings álítur að stjórnmálaflokkur sé og eigi að vera, heldur er þetta fyrirbæri massív samtök valdasjúkra auðvaldsmafíósa og ójafnaðarmanna.

Eftir það sem á undan er gengið er full ástæða til að tekið verði af hörku á Sjálfstæðisflokknum, hann lagður niður og starfsemi hans bönnuð með lögum frá Alþingi. Þannig er farið með hliðstæð stjórnmálaöfl í öllum siðuðum löndum.


mbl.is Orð Katrínar falla í grýttan jarðveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Senditíkur LÍÚ-skrímslisins

AuðvaldskrakkiÞað vita allir sem vilja vita, að málþóf þingmanna Sjálfstæðisflokksins um stjórnarskrármálið á fyrst og fremst rætur sínar að rekja til þess að þessar senditíkur LÍÚ-auðvaldsins geta ekki hugsað sér að fiskveiðiauðlindin sé stjórnarskrávarin eign þjóðarinnar. Þessir ógæfusnatar stóðu fyrir því að einkavæða fiskinn í sjónum í þágu örfárra græðgissjúkra kvótavarga og það má enginn skuggi falla á þá sóðalegu einkavæðingu, sem sumir segja að sé rótin að efnahagshruninu. 
mbl.is Segja sjálfstæðismenn hafa varpað grímunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband