Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Ekkifélaga Steingrími ætlar að takast það

flokkseigendur_786424.jpgNú er allt útlit fyrir að Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG, takist hið göfuga ætlunarverk sitt að flæma alla úr ,,vinstriheyfingu" sinni fyrir lok kjörtímabilsins, nema sjálfan sig, Álfheiði, Sóley Tomm, Svavarsfjölskylduna og búrtíkurnar knáu, Árna Þór Sigurðsson og Björn Val Brimz.

Það verður auðvitað jargansmikill höfuðverkur hjá ekkifélaga Steingrími að kaupa sér og sínu einvala liði að pólitískt framhaldslíf við næstu kosningar. Það sér hver maður að lítið verður úr framboði hjá mannlausum flokki og hverfandi líkur á að nokkur ljái þessháttar apparati atkvæði sitt.

Ekki er heldur líklegt að Samfylkingin taki svo glatt við Steingrími og hans kompanýi, þar eð Árni Þór og Svavarfjölskyldan voru ekki virt viðlits innan Samfylkingarinnar á sínum tíma og roluðust þaðan burt og í faðm Steingríms til að hjálpa honum við að fordjarfa VG.

Það má svo sem vel vera að Framsóknarmaddaman kunni að freistast til að hleypa eyðimerkurförunum inni hálffallið fjósið hjá sér, en sökum bágborinnar stöðu Framsóknarfjóssins og hræðilegrar heilsu Maddömunnar er harðla ólíklegt að húskarlar hennar treysti sér til að taka við slíkri sendingu.

Og þá er aðeins sjálft Erkiíhaldið eftir.

Þegar öllu er á botinn hvolft, er býsna ljóst að durgar og delinkventar Erkiíhaldsins eru boðnir og búnir að leiða Steingrím og hans vígamóða lið inní sali Valhallar, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, og fela þeim verkefni svo sem hæfir borgaralegu slekti og búrtíkum þeirra. 


mbl.is Formaður svæðisfélags VG hættur í flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íllt er að búa við dómgreindarskertan forsætisráðherra og undirgögl hans.

femma4_1057101.jpgJa, nú þykir mér heldurbetur tísta í tittlingaborg þegar undanrennugutlið Sigmundur Ernir Rúnarsson telur sig þess umkominn að hjóla í Ögmund Jónasson. Kveikjan að undanrennufrussi hins ringlaða þingmanns, Sigmundar Ernis, er, eftir því sem best verður séð, ummæli Ögmundar, sem hægrikrataþingmaðurinn túlkar á þá leið að Ögmundur hafi kveðið uppúr með að Jóönnu Sig skorti dómgreind.

Sér er nú hver vitleysan, herra S.E. Rúnarsson. Eins og ekki geti verið að Jóhönnu Sig sé í einhverju áfátt varðandi dómgreind ? Mér finnst að minnsta kosti ekki fara mikið fyrir dómgreind hjá Jóhönnu þegar hún hefur með handapati, hótunum og bölvi ráðist á þingmenn vinstriarms VG. Það hefur einhverjum verið gefið á trantinn fyrir minna.


mbl.is Deilir á Ögmund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á öðrum degi upp reis hún eins og Þorgeirsboli

boli_1056815.jpgÓjá. Vegurinn, sannleikurinn og lífið í Samfylkingunni hefur fram til þessa gengið útá að taka uppvakninga, sem beðið hafa pólitískan píslarvættisdauða, undir sinn ljúfa verndarvæng. Hver man ekki eftir öllum píslarvættisandlátum heilagrar Jóhönnu ? Eða Einars Karls og Hrannars Björns ? Eða þegar Björgvin G. Sigurðsson reis upp eins og Hjaltastaðarfjandinn eftir að hafa kastast fyrir björg í Hruninu Mikla ? Og nú hefur særingameisturum Samfylkingarinnar tekist að vekja sjálfa Steinunni Valdísi upp sínu sæla píslarvættisdái og hafa ekki aðrir gert betur síðan Galdra-Loftur var og hét. Má um það afrek segja eins og stendur í kvæðinu um annan upprisumann: ,,Á öðrum degi upp reis hún eins og Þorgeirsboli" ... og er nú orðin verkefnisstjóri hjá Samfylkingunni.
mbl.is Steinunn Valdís starfar fyrir Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upplausn í Sjálfstæðisflokknum á Egyptalandi

heim3_1056810.jpgNú er fyrirsjáanlegt að innan skamms muni böndin berast að Sjálfstæðisflokknum á Íslandi fyrst Túnisar og Egyptar hafa afhrópað sína Sjálfstæðisflokka. Það hlýtur að vera skelfilegt fyrir sléttgreidda Sjálfstæðismenn á Íslandi að horfa uppá hve grátt flokksbræður þeirra í Norður Afríku er leiknir þessa daganna og vita sem er að brátt komi röðin að þeim og þeir verði eftir atvikum að flýja land eftir að samtök þeirra hafa fengið norðurafríska meðhöndlun.
mbl.is Upplausn í flokki Múbarak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að heyra á endemi hinnar úrkynjuðu íhaldsframsóknarkratíu

Auðvaldssví 2Það mætti halda að Jóhanna Sigurðardóttir hafi færst í fang að leika hlutverk sjálfrar Framsóknarmaddömunnar, úr því að umrædd maddama gafst upp á rólunum og dó eins og Grýla gamla. Blessuð forsætisfraukan fer á kostum þessa dagana, opin í báða enda, barmafull af hneykslun á sínum kærasta vini, Sjálfstæðisflokknum. En því miður, þá skiftir nákvæmlega engu hvað Jóhanna gasprar og gólar yfir innvígðum krataskjátum og öðrum; krataeðlið breytist ekkert við það og því síður sú staðreynd að kratisminn er aðeins smávægilegt hliðarstef við kapítalismann sem enga þýðingu hefur í gangvirki borgarastéttarinnar annað en að blekkja hinar vinnandi stéttir.

Á meðan Jóhanna hefur hátt um meinta baráttu sína gegn valdaklíku íhaldsafla og sægreifa, vinnur hún blóðug uppað öxlum alla daga við að selja sjálfstæði og fullveldi þjóðar sinnar í hendur stórauðvaldinu í ESB og veit fátt nauðsynlegra en að koma kvótakóngaandstæðingnum Jóni Bjarnasyni útúr ríkisstjórn. Það liggur við að manni verði bumbult af því að leggja eyrun við hræsni og ruglanda þessa kynduga talsmanns íhaldsframsóknarkratíunnar.

En það nálgast óðfluga ögurstund í íslensku þjóðfélagi, ögurstund sem Jóhönnu og hinum í bræðra- og systralagi borgarastéttarinnar geðjast ekki að. Íhaldsframsóknarkratían hefur nefilega komið hlutum þannig fyrir, að æ fleirum er að verða ljóst að aðeins gagnger þjóðfélagsbylting er fær um að losa okkur undan járnhæl gjörspilltrar og samansúrraðrar valdastéttar og samtryggingarkerfi hinnar úrkynjuðu íhaldsframsóknarkratíu. 


mbl.is Ögurstund í sjávarútvegsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla að reyta kærleiksblómin af húsmæðrum landsins í þágu fallegrar hugsjónar

plokk.jpgÉg er einn af þeim fjölmörgu góðmennum sem eru afar stolir, og um leið djúpt snortnir, af endalausum vilja Íslendinga til að ,,láta gott af sér leiða" eins og það er kallað. Það er hreint dásamlegt hvað fólk getur lagt á sig við að safna aurum til að styrkja góð málefni; hlaupa milli húsa í stórhríð eða beljandi roki og rigningu til að biðja náungann um að láta smáaura af hendi rakna svo KR-ingar geti keypt nýjan leikmann fyrir næsta tímabil; hlaupa á harðaspertti kringum landið til safna áheitum í kosningasjóðsjóð fyrir Sjálfstæðisflokkinn; eða synda í einni striklotu frá Patreksfirði og norður á Halamið til styrktar fjölskyldum fyrrverandi bankamanna sem sitja í fangelsi.

Fyrir ári síðan brugðu karlmenn á það ráð að safna hormottu undir nefið til að vekja athygli á krabbameinum sem leggjast á karlmenn,. Og nú er komið að konum að leggja sinn skerf af mörkum til að beina athygli fólks að andstyggilegum krabbasjúkdómum.

Og vissulega er aðferð kvennanna, sem eru hreinræktaðar nútímakonur, til að vekja almenning til umhugsunar um banvæna sjúkdóma karla býsna eftirtektarverð: Þær ætla sem sé að safna skapahárum ! Mér skilst að þessi vel meinandi og fórnfúsa söfnun nútímakvennanna fari fram á ekki ólíkan hátt og þegar fólk gengur til berja og slítur krækiber af lyngi. Það stendur sem sagt til að álitlegur flokkur áðurnefndra nútímakvenna ætli að ganga á milli kynsystra sinna og reyta af þeim kærleiksblómin og safna þeim saman í myndarlegan haug til að stuðla að því að karlarnir í lífi þeirra fyllist ekki af krabbaóþverra og deyji drottni sínum eins og hverjir aðrir einstæðingrakkar sem öllum er sama um.

En hvernig karlmenn komast hjá því að fá krabbamein við það að konur verði reyttar á vissum líkamshluta, er mér, og eflaust fleirum, hulin ráðgáta. En það er auðvitað algjört aukaatriði hvort mér og öðrum skilningssljóum endemum sé eitthvað hulið varðandi hið frábæra framtak heiðurskvennanna sem á næstunni ætla að ganga á milli húsa þeirra erinda að reyta kærleiksblómin af húsmæðrum landsins.  


mbl.is Íslenskar stelpur safna skapahárum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skíði og hross eru vélabrögð Andskotans

ski3.jpgFrá því ég man eftir mér hefi ég haldið því fram að skíði væru framúrskarandi hættuleg verkfæri, sannkölluð vélráð Djöfulsins til að stórslasa fólk og stytta því aldur.

Sama má segja um hestana: Þessi hræðilegu kvikindi hafa slíkan ótölulegan fjölda mannslífa á samviskunni, að líkja má við styrjaldarrekstur gegn mannkyninu. Það kannast flestir við sögur af hrossum sem köstuðu knapa sínum af baki og út í opinn dauðann; eða bykkjurnar sem vaða eins og andskotinn útí vatnsföll með það eitt að markmiði að drekkja mönnunum sem sitja á baki þeirra; auk þess sitja hross um að sparka af alefli í næsta mann, stundum með báðum afturfótunum í einu og þarf víst ekki að fara í grafgötur um hvað fyrir þessum fólsku skepnum vakir með iðju sinni.

En varðandi skíðavandamálið þá kastar fyrst tólfunum þegar kerlingargægsni á sjötugsaldri láta sig hafa að bregða skíðum undir fúna spóaleggina á sér. Nýjasta dæmið um dáraskap af því tagi er undursamleg flugferð Díjönu von Furstenberg á skíðum fyrir skömmu. Enda fór sem fór og kerlingin varð að einni klessu eins og nefið á Gutta forðum.

Þessvegna segi ég: Stofnum samtök gegn skíðum og hrossum og krefjumst þess að umræddum vélabrögðum Andskotans verði komið fyrir eins fjarri fólki og hugsast getur. 


mbl.is Von Furstenberg slasast í skíðaslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálaskörungurinn úr Bolungarvík veður froðuna sína.

kol_1056183.jpgÁfram heldur stjórnmálaskörungurinn, Einar Kr. Guðfinnsson, að vaða froðuna uppað höku og munar ekki um. Nú heldur hann þvi fram að úrskurður Hæstaréttar Sjálfstæðismanna sé ,,ekkert minna en meiriháttaráfall fyrir lýðræðisríkið Ísland." Þetta segir maðurinn sem sat í og studdi hrunstjórnir liðinna ára af alefli og allan ófögnuðinn sem þeim fylgdi.

Og Einari Kr. munar heldur ekki um að staðhæfa að stjórnlagaþingskosningarnar hafi ekki verið leynilegar. Ekki veit ég hvort maðurinn, sem lét Vestfirðinga kjósa sig hvað eftir annað útá margsvikin loforð um uppstokkun kvótakerfisins eða jafnvel afnám þess, fór á kjörstað í umræddum kosningum, en hitt veit ég, að kosningin var leynileg í þeirri kjördeild þar sem ég greiddi mitt atkvæði.

Ekki hefi ég hugmynd um hversvegna þingmaðurinn Einar Kr. Guðfinnsson opnar nær aldrei svo á sér þverrifuna en að frá honum streymi fleipur og froðusnakk. Annaðhvort er þessi kvilli þingmannsins áunninn eða eðlislægur, en hvort heldur sem er, þá er svona háttarlag næsta hvimleitt og ekki til framdráttar alþingismanni, sem vill láta taka sig alvarlega.

En ef til vill hefur stjórnmálaskörungurinn úr Bolungarvík ekki áhuga á að vera tekin alvarlega. Það hlýtur eiginlega bara að vera. 


mbl.is Meiriháttar áfall fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað vilja ófyrirleitin glæpasamtök ekki stjórnlagaþing.

xd17.jpgÞað var sannarlega hin besta skemmtun þegar Jóhanna Sigurðardóttir tók sig til í lok umræðunnar um hæstaréttardómin sem féll í dag og sagði íhaldinu, glæpasamtökunum sem af einskærri ófyrirleitni kennir sig við sjálfstæði, til skítugra syndanna. Það er líka alveg hárrétt hjá Jóhönnu, að íhaldið er gjörsamlega á móti stjórnlagaþingi vegna þess að það er skíthrætt við að komið verði inní stjórnarskrá ákvæði um að auðlindir verði þjóðareign. Enn fremur er full ástæða að taka undir með Jóhönnu þegar hún segir að ekki komi til greina að hætta við stjórnlagaþing.

Já, það er jafn víst og dagur fylgir nótt Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki að íslenska þjóðin eigi auðlindirnar sem Ísland ræður yfir. Þessi ófélegi einkagróðaflokkur auðvaldsins vill að að fáir einstaklingar eigi auðlindirnar og geti ráðskast með þær að vild án þess að þjóðin sjálf hafi nokkuð um það segja. 

Fyrir skemmstu tóku Túnisbúar sig til og afhrópuðu sinn Sjálfstæðisflokk og bönnuðu hann með lögum eins gera á við glæpasamtök. Hið sama eiga Íslendingar fortakslaust að gera við sinn Sjálfstæðisflokk. Heilbrigður hugsunarháttur á ekki möguleika á að þróast til betri vegar meðan öfgasamtökin Sjálfstæðisflokkur fær að leika lausum hala og vinna skemmdarverk á þjóðlífinu að eigin vild.


mbl.is Íhaldið er „skíthrætt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðastjórnmálafræðingurinn sem hljóp með atkvæðaseðlana.

run_1056113.jpgÞá var öldin önnur þegar ,,alþjóðastjórnmálafræðingurinn" Silja Bora Ómarrsdóttir hljóp um borg og bý, eins og Andskotinn væri á hælunum á henni, með atkvæðaseðla fyrir kunningjakonu sína, frú Sóley Tomm, í forvalsprófkjöri VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Og ekki er nema von að Silju Boru komi á óvart, eftir að hafa sprett úr spori í Sóleyjarkosningunni, að hægt væri að gera kosningu ógilda. Í Sóleyjarkosningunni víðfrægu og alræmdu mátt kjörstjórnin segja af sér, en (hlaupa)kosningin stóð óhögguð.

Ja, það er nú meiri ,,alþjóðastjórnmálafræðingurinn" atarna. Konugreyið virðist vera skaðmenntuð.


mbl.is Hissa á að svo stórt verkefni sé ekki betur hugsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband