Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Frans skaufi og heiðurshjónin

xs2Kolbeinn Kolbeinsson og eiginkona hans, frú Ingveldur, voru líka á Flúðum í dag ásamt stórvini þeirra hjóna, Frans skaufa.

Já.

Þau voru öll leidd á brott af Flúðum laust fyrir klukkan 16.00 og þeim ekið á ókunnan stað og skilin þar eftir.

Þess má geta, að frú Ingveldur er einn umsækjanda að bæjarstjórastöðu í Árborg - og er talin vel hæf til starfsins. Að sjálfsögðu.


mbl.is Klaufaskapur á Flúðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fengitími sauðfjár og rétt náttúrunnar hringrás.

kind3Það er svo sem ljómandi, svo langt sem það nær, blessað myndskeiðið sem fylgir þessari göfugu frétt. Þó finnst mér vanta tilfinnanlega að veita lesendum mbl.is innsýn í það allra skemmtilegasta sem fylgir svona hátíðum, en það er þegar útúrþreifandifullir krakkaskrattar fara að bögglast við að þjóna eðlunarfýsn sinni; en það er að sjálfsögðu hápunktur og grundvallarmarkmið allra góðra verslunarmannahelga.

Það vita allir sem vilja vita og eitthvað þekkja til gangverks himintunglanna og réttrar náttúrunnar hringrásar, að fengitími sauðfjár síðari hluta desembermánaðar ár hvert á sér beina samsvörun í djöfulskap mannskepnunnar kringum mánaðarmótin júli-ágúst.


mbl.is Sölumennska og stuð í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar við fórum á ungmennalandsmót

perrEinhverntímann, sennilega fyrir daga mannkynssögunnar liggur mér við að segja svo langt er síðan, var ég sendur ásamt nokkrum ungmennum af sama sauðahúsi og ég á svona unglingalandsmót. Við mættum á tilsettum tíma á mótsstað með níðþungar íþróttatöskur fullar með brennivíni og tókum þegar til við að vinna að afreksverkum í anda drengilegrar keppni og heimsmeta. Fljótlega snérist metnaður okkar allra einungis að tveimur íþróttagreinum: áfengisneyslu og kvennafari. Má segja að við höfum henst aftur á bak og áfram um mótssvæðið í einu sætkenndu stangarstökki með buxurnar á hælunum þá þrjá daga sem íþróttakeppnin stóð.

Ekki er að orðlengja að varla rann af okkur félögunum næstu árin á eftir, því svo áhugasamir urðum við í að iðka fyrrnefndar tvær íþróttagreinar. Og það get ég sagt ykkur fyrir satt, piltar mínir, að í þessum tveimur ágætu íþróttagreinum sannreyndum við félagarnir, að æfingin skapar meistarann.  


mbl.is Mikið fjölmenni í Borgarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt dæmi um mannapa

aparÞingflokkur Sjálfstæðisflokksins er glæsilegt dæmi um mannapa, sem án sýnilegrar ástæðu fá að valsa um lausir í stað þess að vera geymdir í búri, öðrum fíflum til viðvörunnar. Auðvitað er það mikið ábyrgðarleysi af hálfu þjóðarinnar að hafa ekki búrað þessa hættulegu mannapategund fyrir löngu síðan. Það hefði til dæmis ekki orðið neitt efnahagshrun á Íslandi ef þingmenn Sjálfstæðisflokksins dvalið bak við mannapahelda rimla og þar með ekki haft tök á að smjúga eins og soltnir melrakkar innum og utanum gjörvalla stjórnsýslu landsins, öllum til stórtjóns og leiðinda.


mbl.is Mannskepnur til sýnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanrennuskrípin í VG á tussufínu flugi

flokkseigendur_786424.jpgÞað er ekki á dekurdýrin, búrtíkur Svavars, Álfheiðar og Steingríms, undanrennuungmennin í VG logið, að þar fer fénaður sem á lítið skylt við raunverulega vinstristefnu, sósíalisma og stéttarbaráttu. Þegar þessi apparöt, sem flokkseigendafélag VG hefur troðið inná launaskrá hins opinbera af engri skynsemi, taka síðan uppá að gera sér að leik, í umboði húsbænda sinna, að afvegaleiða fjölmiðla í stórum mikilvægum málum og þar með einnig alþýðufólk til sjávar og sveita, kalla þau slíka gjörninga tussufína og eru hróðug af.

Ég sé ekki eina einustu ástæðu til að halda svona innantómu hyski uppi með peningum úr ríkissjóði og geri að sjálfsögðu ráð fyrir að Steingrímur og Álfheiður sjái að sér og fjarlægi dekurdýrin sín af launskrá ríkisins, annað væri fáránlegt. En ég geri mér auðvitað líka grein fyrir, að Steingrímur og Álfheiður eru ekki líkleg til að sjá að sér því að þeim geðjast áreiðanlega ekki að því að launa nytsömum búrtíkum sínum með því að lóga þeim og það um hásumar.


mbl.is Hefur beðið ráðherra afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG stilli nöðrunum í SF upp við vegg.

jol3Það er vonandi komið að því að VG girði uppum sig og setji Samfylkingunni afarkosti, ekki bara varðandi Magma, heldur fjölda mála. Ef einhver er enn haldinn þeirri fásinnu í VG að núverandi ríkisstjórn sé vinstristjórn, m.a.s. fyrsta hreinræktaða fyrirbærið af því tagi á Íslandi, og þess vegna beri að halda í henni lífinu, er sá hinn sami haldinn dómgreindarskorti á háu stigi. Núverandi ríkisstjórn er jafn langt til hægri og kapítalísk og sá gamli skuggabaldur, húsbóndinn í Neðra.

Nú á VG semsagt að stilla nöðrunum í Samfylkingunni upp við vegg og láta þær velja á milli vinstristefnu eða útlegðar í íslenskri pólitík. Annað er varla í boði, eða hvað?


mbl.is Draugasögur um afarkosti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt mál og ótrúverðugir spjátrungsgoggar

fool6Mikið ósköp á Sjálfstæðisflokkurinn bágt ef mbl.is hefur ekki getað fundið skárri viðmælanda innan flokksins en Sigurð Kára Kristjánsson. Að eyða orðum að þessháttar apparati ber annaðhvort vott um abstrakt kímnigáfu á háu stigi eða dapurlega uppgjöf. Öllum ætti að vera í fersku minni þegar Sigurður þessi Kári og hans líkar á Alþingi fóru að brasa við að reyna að koma brennivíni inní matvöruverslanir á sama tíma og efnahagslíf þjóðarinnar fuðraði upp í logum frjálshyggjunnar í byrjun október 2008.

Þó að Össur Skarphéðinsson sé sorglega auðvirðilegt umræðuefni svona yfirleitt, þá er það sem hann er að pukrast við þessa dagana í brusselskunni svo alvarlegt, að fréttamiðlar ættu að sjá sóma sinn í halda ótrúverðugum spjátrungsgoggum á borð við Sigurð Kára til hlés þegar fjallað er um jafn alvarlegan hlut.  


mbl.is Össur að tala til Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krypplingstein byskub og örlög hans

ös1Hér á árum áður var á meðal okkar ágætur náungi, sem ævinlega var kallaður Krypplingstein byskup af þeim sem þekktu til hans. Það sem aðgreindi Krypplingstein byskub frá öðrum mönnum, fyrir utan nafnið, var sú einalda staðreynd að hann var ekki eins og fólk er flest. Eitt helsta áhugamála Krypplingsteins var að predika nauðsyn þess að selja Ísland, með manni og mús, einhverju góðu og ríku landi, ,,svo við færum að hafa það gott" eins og hann orðaði það.

Krypplingstein byskubi hést uppi að messa þetta geðuga áhugamál sitt í tvö eða þrjú ár á götunum í þorpinu sínu áður en hann var tekin úr umferð og komið fyrir á vitfirringahæli.

Það vekur okkur, sem þekktum til títtnefnds Krypplingsteins byskubs og örlaga hans, að frétta misseri eftir misseri, æ ofaní æ, af Össuri Skarphéðinssyni flakkandi um, land úr landi, predikandi sama boðskap og Krypplingstein byskub var úrskurðaður geggjaður fyrir, af ábyrgum, hámenntuðum geðlæknum. 

Hvenær ætli þessum ósköpum linni?


mbl.is Aukinn stuðningur við aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svipað gerist í Suður-Múlasýslu fyrir allnokkrum árum.

boyÞað er ekki nema von að manngreyið standi ráðþrota frammi fyrir þessari uppákomu í fjölskyldunni: Hann gengur að eiga gullfallega konu sem er dökk á brún og brá og hún launar fyrir sig með því að ala honum hvítingja. Fyrr má nú gagn gera. Og segjum nú sem svo að maðurinn kæmist að því að konan hafi farið á tónleika með Rolling Stones níu mánuðum áður sá hvíti fæddist, þá er eins víst að karlanganum færi að svima dálítið.

Annars varð svipaður atburður í Suður-Múlasýslu fyrir allnokkrum árum. Þar eignuðust ljóshærð hjón dreng sem er alveg eins og Grænlendingur. Þessi drengur er meira að segja sólginn í matvæli sem Grænlendingum fellur einum í geð og auk þess hjólbeinóttur eins og títt er með fólk á Grænlandi. Aldrei hefur fengist nokkur botn í þennan strákgarm, en móðir hans var gerð ærulaus af sveitungum hennar og loks flutt á geðveikrahæli í Reykjavík, eftir hafa árangurslaust leitað ráða hjá læknum gegn Grænlendingum.


mbl.is Svört hjón eignast hvítt barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og FH á eftir að tapa meira og stærra

ball1Þeir hafa gott af því FH-ingarnir að fá smá æfingu í að tapa áður en kemur að leiknum gegn Víkingi Ólafsvík þann 28 júli; tapið í kvöld gerir þeim auðveldara að með takast á við tapið gegn Ólsurum þegar þar að kemur. En svo mikið er víst, að Víkingarnir frá Ólafsvík ætla ekki að taka Hafnfirðingana neinum vettlingatökum í næstu viku, enda lið FH skelfingu lostið og sumir leikmanna þegar farnir að væta buxurnar af hræðslu við að mæta örlögum sínum.

En mikið verður gaman að fá þennan bikar hingað til Ólafsvíkur. Það verður áreiðanlega hægt að nota hann til að skíra krakka uppúr honum.

 


mbl.is FH úr leik eftir annað tap gegn BATE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband