Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013

Hef trú á meira mannfalli en sílamávafalli þegar borgarfulltrúarnir fara að skjóta af tjarnarbakkanum

sila1.jpgÞað verður sjón að sjá, þegar borgarfulltúrar Reykjavíkurborgar storma fram á tjarnarbakkann með haglabyssur og riffla og hefja linnulausa skothríð á erkióvininn, sílamávinn. Hræddur er ég þó um, að í því stórbrotna hrakéli verði meira mannfall en sílamávafall.

Þó er mér sagt að landstólpinn, Sóley tromm, fýlí, romm, pomm, bomm, sé afbragðs skytta. Hún gæti máske hæft digran karlrembupúng fyrir neðan beltisstað og væri þá til einhvers unnið í hennar tilfelli. En ekki lýst mér á að láta byssu uppí hendurnar á Gnarrinu; hann er svo klauffengur, að hann væri vís með að skjóta götuljós í mask og mola og valda með því borginni tjóni. Um skotlist annarra í borgarstjórn Reykjavíkur ætla ég að leiða hjá mér að tíunda, svo skelfileg er kunnátta þeirra í meðferð skotvopna, þrátt fyrir að vera einlægir aðdáendur stríðsrekstrar Bandaríkjamanna útum víðan völl.

Og í þessum töluðum orðum, minnist ég kokkálaða eiginmannsins, sem kom árla morguns í beitningarskúr fyrir vestan, þar sem eljarinn var að beita timbraður og taugaveiklaður. Hinn kokkálaði hafði heldur engann formála að erindi sínu, vék sér beint að eljaranum og sagði alvarlegur í bragði: - Þú skaust konuna mína í nótt! Eljarinn varð að vonum hvumsa við og bjóst við hinu versta. En þá bætti hinn kokkálaði við með blendið bros á vör, en hann var stórmenni að eðlisfari: - En það gerir ekkert til, vinur, hún liggur í blóði sínu á eldhúsgólfinu heima. Og með það var eiginmaður hinnar ótrúu eiginkonu horfinn útum skúrdyrnar og útí skammdegismyrkrið.
mbl.is Þarf að skjóta mávana við Tjörnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleira fréttnæmt úr grillveislu frú Ingveldar

egg2.jpgÞað er rétt að halda til haga, þó ekki væri nema fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar, að heiðurspersónurnar Brynja Níelsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru gestir frú Ingveldar í frægri grillveislu hennar á dögunum.

Vart þarf þess að geta, að Brynjar júisti og alþingismaður er einkavinur frú Ingveldar, Kolbeins Kolbeinssonar, Indriða Handreðs og Máríu Borgargagns, og fer ákaflega vel á með þessum fimmmenningum, eins og gefur að skilja. Marga hafa þau fjöruna sopið saman og góðum tíma eytt í að samræma pólitískar hugsjónir sínar og lagt heila sína vel í bleyti til að komast að því hvernig hægt sé að brjóta lögin án þess að brjóta þau.

Í grillveislu frú Ingveldar tóku þeir Brynjar og Sigmundur Davíð ákaflega vel til matar síns, bruddu hvurn mávinn og stelkinn eftir annan ofaní sig og ropuðu hástöfum í hvert sinn sem þeir blésu frá sér. Ekki munaði þessum snillingum heldur að steypa í sig ákavíti, svartadauða og hvannarótarbrennivín fremur en örþyrstum eyðimerkurfara að þamba vatn ði lítratali í einum teyg.

Engann þarf að undra, að brátt fór að þyngjast róðurinn hjá þeim kumpánum, svo útbelgdir sem þeir voru orðnir af eðalvínum, sílamávum og stelkum. Brátt lagðist júristinn Brynjar bak við skáp og sofnaði þar og hraut gífurlega. En Sigmundi Davíð var lengra líf gefið, og eftir nokkrar árangurslausar tilraunir til að standa á löppunum, hlammaði hann sér í rammbyggðan leðurstól og fór að syngja. Það var mikill söngur. Svo mikill að Garðar Hólm hefði blygðað sín. Sem betur fer var lagstúfurinn og textinn, sem Sigmundur Davíð söng, passlega snubbóttur en skrýddur allskyns ringjum og rokum og hvalablæstri: ,,I am the eggman I am the eggman I am the walrus, suggiduggídugg ... I am the eggman I am the walrus ... sjúbbíbúífokk - helvítis sauðnaut eru þið, gvagg ... I am the eggman I am the eggman  ... þið getið sjáf verið helvítis walrus." Og þannig áfram, þar til frú Ingveldur sparkaði af alefli í bakið á stólnum sem Sigmundur Davíð sat í, og sagði honum að halda kjafti og syngja frekar ,,Lítill fulgl á laufgum teygi" eða ,,Vegir liggja til allra átta" í tangóútsetningu.
mbl.is „Eins og friðhelgin sé pólitísk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útburðarvæl Bjarkar

drunk14.jpgNú berast oss þau tíðindi útum heiminn, að náttúrþáttagerðarkarlinn Daví Attenborough hafi í hyggju að búa til þátt um útburði á Íslandi. Þar er um að ræða börn, sem vóru boru ur nýfædd og þeim komið fyrir í góðum pytti eða djúpum snjóskafli og þau látin deyja þar drottni sínum. Börn sem þannig vóru verkuð eftir fæðingu, áttu til að ganga dálítið aftur eftir dauða sinn og urðu menn og konur helst vör við gól þeirra og væl, sem nefnt var útburðrvæl.

Nú ætlar sem sé Davíð Attenborough að gera börnum þessum skil og hefir fengið hana Björk okkar hérna, dóttur Gvendar í rafmagninu, til að sjá um útburðarvælinn í myndinni. Og helvíti er gamli maðurinn glöggur, að finna einmitt einu manneskjuna í heiminum sem hefir fullkomna útburðarvælsrödd. Geri aðrir betur.

Eða eins og skáldið sagði: ,,Vælir úti í veðri og vindum vetrarnætur langt" ...
mbl.is Björk og Attenborough í samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grillveisla frú Ingveldar heppnaðist betur er grillveisla Ragnheiðar Elínar.

ingv7_1209144.jpgÞað held ég hafi verið þriflegur kattarláfujafningur, sem Ragnheiður Elín brasaði ofaní fórnarlömbin, sem neyddust til að éta ófögnuðinn sem hún bar þeim á borð. Ég er viss um að skútkarlarnir í gamla daga hefðu orðið æfir ef þeim hefði verið skaffaður kokkur í sama sama gæðaflokki og Ragnheiður Elín. Skútukarlarnir hefðu ekki verið seinir á sér að nota þessháttar matsvein í beitu og dregið keilu og marhnút í belg og biðu á kokkinn, auk blágómu og blákjöftu.

Í gær hélt frú Ingveldur mikla grillveislu í bakgarðinum heima hjá sér. Frú Ingveldur er orðlögð sjálfstæðiskona, sem fengið hefur, um árabil, fjölmargar áskoranir um að bjóða sig fram á lista Sjálfstæðisflokksins. En því miður hefur alltaf einhver andskotinn komið uppá á síðustu stundu, sem gert hefur að verkum að hún hefur neyðst til að hætta við framboð.

En víkjum ögn að grillveislunni frú Ingveldar í gær: Til að framkalla nýstárlegan blæ á grillveislu, steikti frú Ingveldur nokkra sílamáva og stelki, sem hún hafði sjálf skotið. Með lostætinu drukku gestirnir íslenskt ákavíti og hvannarótarbrennivín og varð af glasaglaumur mikill, smjatt og vellíðunarstunur.

Þótti grillveisla frú Ingveldar hafa vel heppnast í alla staði. Meira að segja tókst grillgestum frú Ingveldar að efna til talsverðra slagsmála við nágranna frú Ingveldar, sem voru ekki á eitt sáttir við veislugnýinn sem myndaðist við sílamávaátið og hvannarótardrykkjuna. En lyktir slagsmálanna fóru á besta veg, því nágrannarnir lögðu allir á flótta með brotin nef, tennur og handleggi.

Ef einhver kann að halda góðar veislur, þá er það frú Ingveldur. Það eina sem skyggði á, var að Máría Borgargagn varð svo ölvuð af ákavítinu og hvannarrótarbrennivíninu að hún komst ekki úr nærbuxunum, og sannaðist þar hið fornkveðna: Til hvers að fara í nærbuxur, eska, það er bara til þess að fara úr þeim aftur, eeessska.

Meðfylgjandi mynd var tekin í grillveislu frú Ingveldar.
mbl.is Ráðherra grillaði ofan í frumkvöðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslands Hrafnistumenn

davi_2.jpgMikill snillingur er öðlingurinn Villvill. Alltaf heldur hann áfram í boltanum þrátt fyrir að vera rekinn af velli í hverjum einasta leik. Þett kallar maður þrautsegju, enda er Villivill kominn í beinan karllegg af Hrafnistumönnum og á engar ættir að rekja til írskra þræla né annarra breskra smámenna. En Hrafnistumenn vóru sem kunnugt er, frægustu víkingar fornaldar áður en byggð var á Íslandi.

Elínbrandur Hálogason hét maður, sem uppi var á Vestfjörðum á átjándu öld. Elínbrandur þessi var kominn af þessum hvimleiðu írsku þrælum; var sauðaþjófur, hjallþjófur og hrossaþjófur og át hrosskjöt með hyski sínu eins og algerður villumaður. Þennan mann, ef mann skyldi kalla, tóku vestfirskir afkomendur Hrafnistumanna, frændur Villavill, og hengdu eins og rakka á klettasnös og létu hann hanga þar vikum saman öðrum af írskum þrælaættum til viðvörunar og til að sýna í leiðinni hvað Sannir Íslendingar af ætt Hrafnistumanna væru miklir menn og góðir.

En nú eru semsé Villivill, Þorbjörg Helga og Láfi læknir komin í hörkuslag og alls óvíst á þessari stundu hverjar lyktir munu verða. Þó kæmi mér ekki á óvart þótt dómari leiksins ræki hrafnistukappann Villavill af velli í miðjum klíðum, Láfi félli fyrir borð og Þorbjörg Helga stæði uppi sem sigurvegari, jafnvel þótt hún sé ekki af ættum Hrafnistumanna.
mbl.is Viðtalið við Þorbjörgu dapurlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ryan Gosling komst í góða veislu á höfuðborgarsvæðinu.

Það er meiri andskotans hundaheppnin að graddinn Goslingur sé aftur kominn til Íslands. Að fornu máli hefði slíkt kallast hvalreki mikill.

kol3_1208738.jpgHitt vita færri, að ekki var Goslingur þessi fyrr lentur á Keflavíkurflugvelli, en hann lét aka sér í loftköstum beint í partý hjá Indriða Handreði og Máríu Borgargagni.

Og á heimili Indriða Handreðs og Máríu Borgargagns var fyrir aldeilis hoppandi hamagangur á Hóli með algjöru nærbuxnaleysi og öðrum framússkarandi ósiðlegheitum. Kolbeinn Kolbeinsson var að vísu fjarverandi, þar eð hann er í sóttkví eftir suddalegt mellustand í Brussel á dögunum. En frú Ingveldu var í partýinu og tók Goslingnum fagnandi og fór með hann rakleitt á náðhúsið og læsti að sér.

Það sem gerði veisluna að heimili Máríu Borgargagns og Handreðsins merkilegi en ella, var að þar voru samankomin ýmis stórmenni bæði lífs og liðin. Dauðadrukkinn miðill sá um að halda virku talsambandi við þá sem farnir eru yfir móðuna miklu, en þeir sem áttu að heita lífs töluðu fyrir sig sjálfir, nema þeir sem lágu hist og her í áfengisdái. Af framliðnu fólki í partýinu má nefna sanna Íslendinga á borð við M. Skonsukall, Herra Akranes, Sigurð Breiðfjörð, Pétur Þríhross, Kristján Fjallaskáld og Jónas Hallgrímsson. En frægastur þeirra sem lágu í brennivínsdái var hið fræga tónskáld GJH, en honum tókst að þessu sinni að vera í einni lotu rænulaus sökum ofdrykkju í fjóra sólarhringa samfleytt.
mbl.is Gosling kominn aftur á klakann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýragarðsstemning á blaðamannafundi. - Kolbeinn Kolbeinsson var í fylgdarliði Sigmundar Davíðs.

hangi6_1208734.jpgEkki lái ég þeim þarna í útlöndunum að gerast dálítið grínaktugir þegar þeir komast í návígi við íslenska stjórnmálalabbakúta. Þeim hefur auðvitað þótt sjón að sjá náunga, sem laug sig til valda með innatómum loforðum, mæta til leiks útbelgdan af kjarngóðu fóðri úr forðabúri Halldórs Ásgrímssonar, Finns Ingólfssonar og gifturíka kaupfélgsstjórans á Sauðárkróki. Fyrir blaðasnápana sem mættu á blaðamannafundinn í Brussel hefur þessi uppákoma með framsóknarkynjaða íslendingnum líkst meira ferð í dýragarð en nokkru öðru. Enda býðst fólki í útlöndum sárasjaldan tækifæri á að sjá kykvendi af tegundinni framsóknarmaður, svo það er lítil furða þó þeir hafi glaðst og sperrt eyrun þegar þessháttar skepna varð á vegi þeirra.

Þá er í frásögu færandi, að Kolbeinn Kolbeinson skrifstofustjóri var í fylgdarliði Sigmundar Davíðs Oddssonar í Brusselferðinni góðu. Er þar skemmst frá að segja, að Kolbeinn hafði vit á að halda til á hóruhúsi þar í Brussel, megnið af tímanum sem þeir stöldruðu þar við. En sem kunnugt er, hefur Kolbeinn Kolbeinson skrifstofustjóri verið gegnheill framsóknarmaður frá blautu barnsbeini og kann öll trixin sem við á að éta í framsóknarpólitík. Þega kol5_1208735.jpgKolbeinn kom heim úr þessari vel heppnuðu ferð, setti eignkona hans, frú Ingveldur, hann beinustu leið í sóttkví, því hún fann strax angandi mellulykt af manni sínum um leið og hann sté fæti inní forstofuna að heimili þeirra hjóna.
mbl.is Rauðbirkinn Sigmundur Davíð heillar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Síra Baldvini var vísað rangt til vegar í Ráðhúsinu

sira2.jpgHinn merki eðalklerkur, síra Baldvin, lenti í fyrir mistök í allskemmtilegri vegvillu fyrir fáeinum dögum. Að vísu ók hann ekki eins og blindur bjöllusauður útí eitthvert lokað drulluforað, sem eitt sin var vegur til Vopnafjarðar.

Ónei, síra Baldvin átti erindi í Ráðhús Reykjavíkur til að sálusorga einn dapran skrifstofustjóra þar á bæ, en var óvart vísað inn á sjáfs borgarstórans. Þegar síra Baldvin bar þar að garði, sat Gnarrið makindalegt í borgarstjórastólnum með krosslagða fætur uppá borði og var að hugsa til þeirra dýrðardaga þegar það var nörd og pönk.

- Ekki ætlaði ég að tala við þig í dag, mælti síra Baldvin með sínum ofurdigra karlarómi, þegar hann sá hver fyrir var á skrifstofunni.

Gnarrið spratt eins og þúfutittlingur uppúr borgarstjórastólnum og hrökklaðist uppað vegg og fann í leiðinni lömunarheilkennin hellast eins og hland úr koppi yfir blessaðar fínu taugarnar í líkamanum.

- En fyrst ég er hingað komin, er rétt að ég eigi við þig fáein orð, hélt síra Baldvin áfram, ískkilega rólegur og brúnaþungur. - Mér hefir verið sagt að þú sér búinn að gefa Múhámeðstrúarmönnum leyfi til að byggja villutrúarstöð hér í Reykjavík. Og ég skal segja þér það í óspurðum fréttum, að við þessháttar Djöfulsins ásetning verður ekki unað mótspyrnulaust.

Að því sögðu, gekk síra Baldvin hægum, þungum skrefum í átt að Gnarrinu, sem hafði þá þegar glatað fótavist og lagst dauðlamað í gólfið. Síra Baldvin, sem aldrei hefur haft orð á sér fyrir málalenginar og óþarfa bull, þreif annarri krumlu sinni í hnakkadrambið á Gnarrinu, lyfti því upp eins og hvolpi, horfði beint í augun á hinum ógæfusama borgarstjóra og sagði ofur stillt: - Veistu það lagsmaður, að eftir fimm mínútur munt þú liggja hér á gólfinu fullflengdur og með buxurnar niður við hæla. Síðan framkvæmdi síra Baldvin réttlætið á Gnarrinu og skildi það svo eftir á gólfinu eins og hann hafði lofað og hvarf á braut til að sinna sínu upphaflega erindi í Ráðhúsið.

Það liðu fullar tvær klukkustundir frá því síra Baldvin yfirgaf skrifstofu borgarstjóra þar til Gnarrið þorði að hreyfa einn einasta vöðva í skrokknum á sér, og það tók hann níutíu mínútur til viðbótar að reisa sig upp í lóðrétta stöðu og hífa brækurnar uppum helauman botninn á sér. Á meðan Gnarrið var að bjástra við að koma buxunum á réttan stað tautaði hann í sífellu: - Helvítis kallinn, helvítis kallinn ... Svo staulaðist hann grátandi heim eins og ,,Siggi var úti með ærnar í haga."
mbl.is Ferðamenn festast á gömlum vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband